Birtist upphaflega í Stundinni fyrir rúmum 6 árum.

Svona dreifist veiran í lokuðu rými

Líkurnar á því að sýkjast af kórónu­veirunni eru margfalt meiri í lokuðu rými en utandyra en erfitt getur verið að átta sig á hversu mikla nánd þarf til og hversu miklar líkurnar eru á smiti. Eftir­farandi samantekt er byggð á allra nýjustu upplýsingum frá vísinda­mönnum og heilbrigðis­yfirvöldum á Spáni og er hér endurbirt með góðfús­legu leyfi dagblaðsins El País.

Sex manns koma saman í heimahúsi, þar af einn smitberi. 31% hópsmita á Spáni hafa komið upp við þessar aðstæður, að megninu til hjá fjölskyldum og vinahópum.

Fólkið situr saman í óloft­ræstu herbergi í fjórar klukku­stundir og talar hátt án þess að nota andlits­grímur. Fimm þeirra smitast óháð því hvort fjarlægðar­takmarkanir eru virtar eða ekki, samkvæmt aðferða­fræðinni sem útskýrð er í greininni.

Ef fólkið notar grímur eru fjögur þeirra útsett fyrir smiti. Grímur koma ekki í veg fyrir smit ef nálægðin við smitbera er langvarandi.

Smithættan lækkar í tæplega eitt smit ef hópurinn notar grímur, styttir tímann um helming og loftræstir rýmið.

Þrátt fyrir að kórónu­veiran sé ekki eins smitandi og sjúkdómar á borð við mislinga eru vísinda­menn nú sammála um að hún geti dreifst á milli fólks með örlitlum dropum eða úða sem hangir í loftinu, t.d. eftir hnerra, hósta eða einfald­lega venjulega öndun. En nákvæmlega hverjar eru líkurnar á smiti innandyra og hvernig er hægt að forðast það?

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár