„Viltu þegja, maður?“ Kappræður Bidens og Trump fóru úr böndunum

Joe Biden kall­aði Donald Trump Banda­ríkja­for­seta trúð. Stjórn­andi kapp­ræð­anna missti tökin og hugs­an­legt er að seinni umferð­inni verði aflýst. Trump sagði öfga­hópum að bíða átekta.

„Viltu þegja, maður?“ Kappræður Bidens og Trump fóru úr böndunum
Kapp­ræð­urnar Klukkan eitt í nótt að íslenskum tíma áttu sér stað fyrstu kapp­ræð­urnar fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum. Kosið verður 3. nóv­em­ber. Mynd: SAUL LOEB / AFP

Fyrstu kapp­ræður Donalds Trump for­seta og Joe Bidens, fyrr­ver­andi vara­for­seta, fóru gjör­sam­lega úr bönd­unum eftir að spyrlinum Chris Wallace mistókst ítrekað að þagga niður í fram­bjóð­end­unum sem gjömm­uðu á sama tíma. Sér­stak­lega fór for­set­inn mik­inn í til­raunum sínum til að grípa fram í fyrir bæði Wallace og Biden. Fyrir vikið mynd­að­ist skekkja í þeim tíma sem hvor fram­bjóð­andi átti að fá til að svara spurn­ingum.

Upp­lausnin var slík að beint eftir kapp­ræð­urnar sagði Wolf Blitzer, frétta­þulur CNN, að hann hefði efa­semdir um að þetta yrði end­ur­tekið. Til stóð að Trump og Biden mætt­ust aftur en eftir átökin í nótt þykir ekki víst að það ger­ist þó að engin opin­ber til­kynn­ing þess efnis hafi verið gefin út. 

Biden fékk oft ekki nema rétt að byrja svör sín þegar for­set­inn tók af honum orðið. Þegar Biden kvart­aði undan því að þessi stöð­ugu frammíköll rugl­uðu sig í rím­inu sagði stjórn­and­inn Chris Wallace: „Ég á sjálfur í vand­ræðum.“ Wallace þurfti oft að end­ur­taka: „Herra for­seti! Gerðu það, herra for­seti, leyfðu honum að tala!“ eða ein­fald­lega „Herra­menn… herra­menn… ger­iði það, hættið þessu!“ þegar báðir köll­uð­ust á og huns­uðu spurn­ing­arnar stundum alfarið. 

Biden brosti lengst af þegar þetta gerð­ist en varð smám saman arg­ari og kvæsti á Trump: „Viltu þegja maður? Þetta er svo ófor­seta­legt!“ Síðar sagði hann: „Þessi trúður leyfir mér ekki að tala!“ Hann kom syni sínum Hunter Biden til varnar þegar Trump reyndi ítrekað að leiða umræð­urnar að meintum greiðslum sem hann hefði fengið frá Rúss­landi. Sagði Biden að for­set­inn væri ein­fald­lega lyg­ari og ekki væri hægt að taka mark á neinu sem hann segði. Mál sonar síns hefðu verið rann­sökuð í þaula og ásakn­irnar reynst byggð­ast á sandi. 

Það var greini­legt af öllu að menn­irnir báru enga virð­ingu fyrir hvor öðrum og not­uðu ýmis upp­nefni. Þegar Biden gaf í skin að Trump væri illa gef­inn brást hann hinn versti við og sagði: „Þú skalt ekki tala um gáfur við mig, það er ekk­ert gáfu­legt við þig Joe!“

Brot úr kapp­ræð­unum

Sagði öfgahópum að bíða átekta

Það hefur vakið mikla athygli að þegar talið barst að öfga­hópum á hægri væng banda­rískra stjórn­mála, sem styðja Trump, tal­aði hann beint til þeirra og sagði þeim meðal ann­ars að bíða átekta.  

Wallace spurði sér­stak­lega um hóp sem kall­ast Proud Boys og hefur verið lýst sem öfga­hóp sem aðhyllist meðal ann­ars kyn­þátta- og kven­hatur auk þess að dreifa sam­sær­is­kenn­ingum. Liðsmenn þeirra hafa und­an­farið mætt vopn­aðir á mót­mæli Black Lives Matter sam­tak­anna og hefur það leitt til harðra átaka. Wallace spurði hvort for­set­inn væri til­bú­inn að ávarpa slíka hópa og segja þeim að leggja niður vopn eða „stand down“ á frum­mál­inu. 

Svip­brigði TrumpsFor­set­inn bar til­finn­ing­arnar utan á sér eins og oft.

Trump sagði þá að skila­boð sín væru: „Stand back and stand by“ sem gæti útlagst sem „Stígið til baka og bíðið átekta.“ Liðsmenn Proud Boys fögn­uðu þessu ákaft á Twitter og sagði einn áhrifa­maður innan sam­tak­anna að nú hefðu þeir fengið opin­bert leyfi til að efla aðgerðir sínar: „Trump basically said to go fuck them up! this makes me so happy,“ Þá birti Telegram rás Proud Boys mynd af skjalda­merki sínu með orð­unum „Stand back, stand by.“

Þetta vekur ekki síst áhyggjur í ljósi þess að í kapp­ræð­unum neit­aði Trump að segja hvort hann myndi við­ur­kenna úrslit kosn­ing­anna og vildi ekki skuld­binda stuðn­ings­menn sína til þess að taka þeim þegj­andi ef grunur vakni um að brögð væru í tafli. Fullyrti for­set­inn að póst­kosn­ingar og atkvæði greidd utan kjör­staða væru ávísun á kosn­inga­svindl og spáði því að hæsti­réttur lands­ins þyrfti að sker­ast í leik­inn. 

Trump hefur legið undir ámæli fyrir að virða ekki hinstu ósk hæsta­rétt­ar­dóm­ar­ans Ruth Bader Ginsburg sem féll frá á dög­unum og bað um að eft­ir­maður hennar yrði ekki skip­aður fyrr en eftir kosn­ingar. Allt útlit er fyrir að nýr og mun íhalds­sam­ari dóm­ari, Amy Coney Barrett, hljóti sam­þykki þings­ins á þeim rúma mán­uði sem er til kosn­inga þó að skipun dóm­ara við hæsta­rétt hafi aldrei gengið svo hratt fyrir sig áður í sögu Banda­ríkj­anna. Til þess hefur Repúblikana­flokk­ur­inn til­skil­inn meiri­hluta og vegna nýlegra laga­breyt­inga í valda­tíð Trumps geta Demókratar ekki lengur beitt mál­þófi til að stöðva ferlið. 

Sagðist hafa bjargað 1,8 milljón mannslífum

COVID-19 far­ald­ur­inn bar oft á góma í kapp­ræð­unum og sagði Biden að aðgerð­ar­leysi Trumps gæti þýtt að tvö hund­ruð þús­und Banda­ríkja­menn til við­bótar myndu deyja af völdum veirunnar á næstu mán­uðum, til við­bótar við sama fjölda sem nú þegar hefur lát­ist.  

Svip­brigði BidensFraman af reyndi Biden að brosa að framíköllum..

Trump sagði hins vegar að það væri alrangt og full­yrti að Biden hefði ekki getað staðið sig eins vel og hann gerði í að útvega önd­un­ar­vélar og hlífð­ar­búnað. Hafði hann eftir ónefndum sér­fræð­ingum að allt að tvær millj­ónir hefðu farist af völdum COVID-19 ef ekki hefði verið gripið til þess­ara aðgerða, hann hafi því þvert á móti bjargað 1,8 milljón manns­lífa. 

Chris Wallace spurði út í full­yrð­ingar Trumps þess efnis að bólu­efni yrði til­búið til dreif­ingar á allra næstu vikum en ekki næsta sumar eins og heil­brigð­is­yf­ir­völd og lyfja­fyr­ir­tæki hafa sagt. Gat for­set­inn ekki fært neinar sann­anir fyrir mái sínu en vitn­aði í sam­töl við ónefnda áhrifa­menn í lyfja­iðn­að­inum sem hefðu sagt sér að bólu­efnið gæti verið til­búið fyrir kosn­ingar. Hann myndi skipa hernum að dreifa því til lands­manna til að flýta ferl­inu. 

Skatta­mál Trumps vöktu einnig heitar umræður en nýlegur leki til banda­rískra fjöl­miðla er sagður sýna að hann hafi greitt lít­inn sem engan skatt af tekjum sínum og beitt bók­halds­brellum til að koma út á sléttu. Rétt fyrir kapp­ræð­urnar sendi Biden fjöl­miðlum afrit af sínum skatt­skýrslum og eig­in­konu sinnar nokkur ár aftur í tím­ann sem virð­ast ekki sýna neitt af sama tagi. 

Trump sagði Biden og Wallace fara með rangt mál, lek­inn væri byggður á lygum og í raun greiddi hann millj­ónir doll­ara í allskyns skatta á ári hverju.

Reynt að stilla til friðarChris Wallace, umræðu­stjóri og þátt­ar­stjórn­andi af Fox News, hefur verið harð­lega gagn­rýndur fyrir að missa tök á kapp­ræð­unum.

Allt í steik

Það er óhætt að segja að kapp­ræð­urnar hafi vakið sterk við­brögð á sam­fé­lags­miðlum strax og þær hófust. Þegar þeim lauk eftir rúm­lega 90 mín­útur voru frétta­skýrendur á einu máli um að algjör upp­lausn hafi ein­kennt kvöldið. Margir vildu kenna Trump um hvernig fór, aðrir sögðu Wallace hrein­lega hafa verið tal­aðan í kaf. Stjórn­andi umræð­anna hafi verið sá sem stóð sig verst, þótt honum hafi verið nokkur vor­kunn. 

Í miðri orra­hríð­inni skrif­aði rit­höf­und­ur­inn Jill Filopovic á Twitter að hún vor­kenndi Hillary Clinton að horfa á átökin eftir að hafa verið ráð­lagt að halda sig til hlés í kapp­ræðum við Trump fyrir fjórum árum. Clinton svar­aði um hæl: „You have no idea.“ 

Frétta­skýrendur stóru sjón­varps­stöðv­anna voru helur ómyrkir í máli.  „It was a shit show,“ sagði til dæmis Dana Bash, stjórn­mála­skýr­andi CNN. „That debate was a disgrace,“ kapp­ræð­urnar voru hneysa, svar­aði Jake Tapper, frétta­þulur á sömu stöð. Breska blaðið Guardian segir Wallace sæta sér­stak­lega harðri gagn­rýni og vitnar í hol­skelfu skila­boða á Twitter frá ýmsum frétta­skýrendum bæði í Bret­landi og Banda­ríkj­unum. 

Peter Spiegel, frétta­stjóri Financial Times í Banda­ríkj­unum, lýsti kapp­ræð­unum í beinni á vef blaðs­ins ásamt kol­legum sínum. Skrifar hann meðal ann­ars: „Já, þetta var ‘toxic’. Já, Wallace missti stjórn­ina. Og, já, Biden hélt ró sinni. En verður þetta slæmt fyrir Trump? Málið með Trump er að hann snýr öllu á haus í póli­tík. Frammi­staða kvölds­ins gerir sjó­aða frétta­skýrendur eins og okkur í Washington alveg brjál­aða en gæti þessu verið vel tekið í þeim ríkjum sem hann þarf mest á að halda?“

Í lok kvölds­ins tók Spiegel undir vanga­veltur um að þessar kapp­ræður yrðu þær síð­ustu og seinni umferð­inni yrði hrein­lega aflýst eftir þessa flug­elda­sýn­ingu í nótt.

Kapp­ræð­urnar í heild sinniHér má horfa á kapp­ræður Bidens og Trumps í nótt í fullri lengd.

Frétta­stöðin CNN tók saman lista yfir það góða og slæma í kapp­ræð­unum eða „hits and mis­ses“. Í flokknum hits er hins vegar ekk­ert, þar stendur ein­fald­lega: „[Þessu plássi er með­vitað haldið auðu. Þetta voru full­kom­lega hræði­legar kapp­ræður sem gerðu ekk­ert til þess að upp­lýsa almenn­ing um fram­bjóð­end­urna tvo og hvað þeir myndu gera ef þeir fengju fjögur ár til þess að þjóna sem for­seti Banda­ríkj­anna. Þetta voru, án nokk­urs vafa, alverstu kapp­ræð­urnar sem ég hef fjallað um í tvo ára­tugi í þessu starfi. Það, að þær hafi átt sér stað þegar meira en 200 þús­und Banda­ríkja­menn hafa dáið úr Covid-19 og spár gera ráð fyrir því að fjöldi lát­inna tvö­fald­ist fyrir 1. jan­úar gerir skrípa­lætin enn meira slá­andi og sárs­auka­full. Þarna var lýð­ræð­inu gerður óleikur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetatíð Donalds Trump

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár