Reynslusögur íslenskra kvenna

Þegar Íris greindi frá aðstæðum sínum fékk hún skila­boð frá um fimm­tíu íslenskum konum sem lýstu reynslu sinni af heil­brigð­is­kerf­inu og stöðu kvenna með endó­metríósu. Brot af þeim sögum má finna hér. Sögurnar eru óstað­festar en birtar með leyfi þeirra sem segja frá.

Reynslusögur íslenskra kvenna

Hæ! Mig langar að hrósa þér og þakka inni­lega fyrir að vekja athygli á endó­metríósu og þess­ari grafal­var­legu van­þekk­ingu og skiln­ings­leysi sem mætir manni, bæði í heil­brigð­is­kerf­inu og sam­fé­lag­inu almennt hér á Íslandi. Ég er sjálf með endó­metríósu og hefur alla tíð liðið eins og ég standi ein varð­andi þetta því það er lítið um lausnir eða skiln­ing. Ég hef aldrei fengið form­lega grein­ingu svo ætli ég sé ekki sjálfs­greind þar sem ég er með öll ein­kennin. Það eru nokkur ár síðan ég gafst upp á því að leita mér hjálpar í heil­brigð­is­kerf­inu, því einu lausn­irnar voru pillan og sterk verkja­lyf sem leysa alls ekki vand­ann heldur virk­uðu í mínu til­felli eins og lélegur plástur á sárið. 

2 Illa haldin af verkjum í vinnunni 

Þegar mig grun­aði að ég væri með endó­metríósu þá fór ég til kven­sjúk­dóma­læknis sem full­yrti að ég væri með klamydíu og nennti engan veg­inn að sinna mér. Ég fór þá til ann­ars læknis sem pant­aði strax tíma á Land­spít­al­anum hjá end­óteym­inu og var að fara í aðgerð núna í maí. Ég beið í fjögur ár eftir aðgerð­inni og hef verið að reyna að eign­ast barn núna í að verða tvö ár. Fékk loks­ins lyf í ágúst til að hjálpa mér og svo kom í ljós að ég væri lík­lega með fjöl­blöðru­eggja­stokka­heil­kenni líka. Nú er ég að far­ast úr verkjum þar sem ég er stödd í vinn­unni, því ég hef ekki efni á að sleppa úr vinnu. Engin verkja­lyf virka og í vinn­unni þarf ég að hjálpa öðrum en eng­inn getur hjálpað mér. Ég hef samt góða reynslu af Land­spít­al­anum, því minn læknir hlustar á mig, en þar sem ég er búin að fara í þessa aðgerð veit ég ekki hvert fram­haldið verður. 

3 Lausnin hvergi í návígi 

Ég er 18 að verða 19 ára og er búin að vera með slæma túr­verki síðan ég byrj­aði á blæð­ingum 12 ára gömul, en það versn­aði veru­lega þegar ég var 15 ára og varð til þess að ég mætti lítið í skól­ann í 9. og 10. bekk. Þegar ég var á fyrstu önn­inni minni í fram­halds­skóla, árið 2018, mætti ég ekk­ert nema tvær vikur í ágúst og var þá mjög verkjuð. Ég fæ túr­verki fyrir, á meðan og eftir. Mömmu fór þá að gruna að þetta væri endó. Ég fór til kven­sjúk­dóma­læknis á heilsu­gæslu í heima­bænum sem setti mig á pill­una og lét mig fá verkja­lyf sem ég varð mjög veik af. Eftir að mér snar­versn­aði hætti ég bæði á pill­unni og verkja­lyfj­unum og fór aftur til kven­sjúk­dóma­læknis. Hún sagði þá að verkirnir væru ímyndun, ég væri að ýkja verk­ina og ætti bara að taka verkja­lyfið.

Mamma fékk þá nóg og hringdi út um allt. Ég fékk tíma hjá lækni sem var frá­bær og sagði að þetta væri lík­lega endó­metríósa og lét mig fá brjóstapill­una, en það hjálp­aði ekki. Hún sendi mig þá til læknis sem er hluti af end­óteym­inu og sendi mig í speglun í maí þar sem ekk­ert fannst nema smá blóð og sam­grón­ingar á milli ristils og maga, og þannig.

Fór aftur til hennar í júní þar sem ég var sett aftur á sömu pill­una og upp­haf­lega og fékk verkja­lyf. Enn á ný þurfti ég að hætta á pill­unni vegna mik­illa verkja. Átti að hitta þennan lækni aftur sama ár en nú er árið 2020 og ég hef ekk­ert heyrt frá honum, nema í gegnum skipti­borð Land­spít­al­ans, þar sem mér var tjáð að hann hefði farið í veik­inda­leyfi og orðið eftir á með sjúk­linga.

Endósam­tökin bentu á lækni sem ég fór til árið 2019. Hún setti mig á enn eina pill­una og skoð­aði myndir úr spegl­un­inni en sá ekk­ert, sagði að ég fengi bara mjög slæma túr­verki og það þyrfti að stöðva þá með pill­unni en ég ætti ekki að taka mikið af verkja­lyfjum. Enn og aftur gerði pillan allt verra þar til ég hætti á henni. Ég er enn mikið verkjuð, með mikla ristils­verki og á kannski eina góða viku í mán­uði þar sem ég er ekki mjög verkjuð.

4 Sárkvalin í tvo sólarhringa

Ég var með inn­vortis blæð­ingar og var ólýs­an­lega kvalin í tvo daga eftir kvið­hols­speglun, en hjúkr­un­ar­fræð­ing­arnir töl­uðu við mig eins og ég væri að þykj­ast vera verkjuð þótt það væri bók­staf­lega að líða yfir  mig af sárs­auka þar sem ég lá í rúm­inu. Blóð­þrýst­ing­ur­inn var svo lágur að hann mæld­ist ekki og ég þurfti adrena­lín­sprautu í lærið. Ég var eins og lík í framan og leit hræði­lega illa út. Samt var komið fram við mig eins og ég væri aum­ingi og vælu­kjói. Mér fannst það ógeðs­leg upp­lifun. Eitt skiptið hringdi ég bjöll­unni og sagði að mig svim­aði svo rosa­lega mikið en fékk svarið: Og hvað viltu að ég geri í því? Eftir þessa tvo sól­ar­hringa af hryll­ingi fór ég síðan í aðra aðgerð þar sem blóðið var hreinsað úr kviðnum. 

5 Var sögð of þung og með hægðatregðu 

Neminn spurði lækn­inn hvað þetta væri. Í stað þess að hjálpa nem­anum stóð lækn­ir­inn hjá og sagði að þetta væru æðar. Eftir ein­hverjar mín­útur – sem mér fannst líða eins og væru klukku­tímar af pynt­ingum – tók lækn­ir­inn tækið og var harð­hentur á meðan hann sýndi nem­anum það sem hann var að leita að. Þegar ég var farin að halda að nú hlyti þetta að vera búið svo ég gæti kom­ist út þá þrýsti lækn­ir­inn són­ar­tæk­inu upp og sagði að þetta væri maginn og þarna væru þarm­arnir. Ég lá þarna ber­skjölduð að drep­ast úr verkjum, hafði varla sofið og upp­lifði að það væri verið að brjóta á mér með því að nota mig sem sýn­ing­ar­ein­tak. Þegar ég fékk loks­ins að standa upp dreif ég mig í fötin og sett­ist ann­ars staðar. Sem betur fer var mamma hjá mér, ann­ars hefði ég ekki kom­ist í gegnum þessa skoðun. Ég hugs­aði með mér að þetta hlyti að sýna ein­hverjar nið­ur­stöður svo sárs­auk­inn væri þess virði, en fékk síðan að heyra að ég væri í ofþyngd, ætti að hreyfa mig meira og væri með hægða­tregðu. Ég hef samt aldrei heyrt um að mor­fín virki á verki vegna hægða­tregðu. Mér var sagt að fara heim og taka magnesíum ásamt íbú­fen. Ég hefði vænt­an­lega ekki farið á bráða­mót­töku ef íbú­fen virk­aði á verk­ina. Eftir nokkra mán­uði fékk ég tíma hjá end­óteym­inu og brotn­aði niður þegar ég þurfti að fara á kvenna­deild­ina því ég gat ekki hugsað mér að leggj­ast aftur á bekk­inn. Ég neit­aði því og lækn­ir­inn sagði að það væri allt í lagi. Þegar ég sagð­ist vera á lyfjum sagð­ist hún ekk­ert meira geta gert fyrir mig. Þetta er ekki einu sinni þjón­usta. Eftir þetta hef ég ákveðið að fara ekki upp á slysó eða leita mér lækn­is­að­stoðar þegar ég fæ næsta kast. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár