Frásagnir mæðra af ofbeldi kerfisins

Samtökin Líf án ofbeldis birta sögur mæðra sem hafa yfir­gefið ofbeld­is­sam­bönd, en upp­lifa hörku kerf­is­ins sem hyglir hags­munum ofbeld­is­manna og lítur fram hjá frá­sögn fór­mar­lamba þeirra.

Frásagnir mæðra af ofbeldi kerfisins
Líf án ofbeldis Samtökin Líf án Ofbeldis deila frá­sögnum mæðra af ofbeldi í kerfi sem hyglir hags­munum ofbeld­is­manna.

Samtökin Líf án ofbeldis deila á Facebook síðu sinni frá­sögnum mæðra af ofbeldi sem þær hafa flúið, en sitja enn uppi með eft­ir­köst þess vegna verk­ferla kerf­is­ins. 

Ein móðir skrifar um upp­lifun sína af því að kom­ast af í kerfi þar sem frá­sagnir barna af kyn­ferð­is­of­beldi í Barna­húsi eru álitnar „ein­hliða gagna­öflun móður.“ Hún segir tíu ár vera liðin frá því að kyn­ferð­is­of­beldið var stað­fest í loka­skýrslu af sál­fræð­ingi í Barna­húsi. 

„Í ítrek­uðum umgengn­is­málum og dag­sekt­ar­málum er sagt við mig af full­trúum sýslu­manns­emb­ættis að alltaf verði reynt að koma á umgengni við föður og skiptir engu þótt börnin hafi sagt frá kyn­ferð­is­of­beldi í Barna­húsi. Fulltrúi slengir því framan í mig að dag­sekt­irnar gætu orðið allt frá 25.000 - 50.000 á dag. „Dag­sektir“ af því að ég vil ekki að brotið verði á börn­unum mínum aftur,“ segir hún. 

Sem ein­stæð móðir segir hún kostn­að­inn sem þessu fylgir vera íþyngj­andi og hafi hún þurft að vinna mikið til þess að standa undir honum. Sú raun hafi á sama tíma þrengt að börn­unum fjár­hags­lega. „Endalaus lög­fræði­kostn­aður, margar millj­ónir, stundum þarf ég að kæra hand­ó­nýta úrr­skurði frá emb­ætt­inu. Mikið vildi ég óska þess að ég hefði getað unnið minna og veitt börn­unum mínum meira fyrir allan þennan pen­ing.“

Auk þess seg­ist hún þurfa að greiða allan sál­fræði­kostnað barn­anna upp á eigin spýtur, en þau hafi þurft hjálp til að vinna úr afleið­ingum ofbeld­is­ins. „Ég þarf að greiða ein allan sál­fræði­kostnað því auð­vitað þurfa börn að fá hjálp til þess að vinna sig út úr ofbeld­inu. Fyrir utan að halda utan um þetta og vera eina for­eldrið sem börnin mín eiga, þá þarf ég að díla við stefnu­votta sem koma á heim­ilið mitt um tíu leytið á kvöldin. Þá á ég lík­lega bara að geta sofið vel og tek­ist úthvíld á við það sem dag­ur­inn ber í skauti sér. Kerfið hleypur með ofbeld­inu hring eftir hring.“

Hún segir kerfið taka afstöðu gegn sér og Barna­vernd ekki fúsa til að hjálpa. „Ég er góð mamma og það skal eng­inn taka frá mér, hvorki félags­ráð­gjafar né lög­fræð­ingar hjá sýslu­manns­emb­ætt­inu í Reykja­vík. Eitthvað fólk út í bæ. Barna­vernd blandar sér ekki í umgengn­is­mál þegar ég leit­aði þangað, af hverju ekki? Á fundi hjá Umboðs­manni Barna var talað um „erfið ágrein­ings­mál“ og emb­ætti blandi sér ekki í ein­stök mál.“

Hún segir emb­ætti sýslu­manns Reykja­víkur hafa skikkað hana til þess að fara fögrum orðum um föður barn­anna, þann sem mis­not­aði þau kyn­ferð­is­lega, í þeirra návist. „Það stendur í úrskurði full­trúa hjá sýslu­manns­emb­ætt­inu í Reykja­vík að ég eigi að tala jákvætt um föður barna minna heima hjá mér. Ekki nóg með að ég eigi að tækla lífið út á við, þá á ég að tala jákvætt um ger­anda barna minna heima hjá mér. Hvaða skila­boð eru það til barn­anna? Að þetta kyn­ferð­is­of­beldi sé bara allt í lagi og ég standi ekki með þeim?“

Kerfið sem vopn í höndum ofbeldismanns 

Frásögn ann­arrar konu lýsir kerf­inu sem vopni í höndum ofbeld­is­manns sem hún skildi við fyrir tveimur árum síðan, en hún deilir með honum sam­eig­in­legu for­ræði.  

„Ég skildi við barns­föður minn fyrir tveimur árum síðan vegna and­legs ofbeldis gagn­vart mér og börn­unum okkar. Við erum með sam­eig­in­legt for­ræði sem gengur alls ekki því að við virð­umst ekki getað átt kurt­eis­is­leg sam­skipti, alveg sama hvað er reynt,“ segir hún. 

Hún segir börn­unum líða illa hjá föður sínum, en umgeng­is­samn­ingur og hótun um dag­sektir þvingi hana til þess að láta þau dvelja hjá honum. „Ég hef staðið í mjög ströngu síð­ustu tvö árin að setja honum mörk en hann finnur alltaf nýjar leiðir til að reyna að stjórna mér. Sam­eig­in­lega for­ræðið er eitt stjórn­tækið. Ég er löngu búin að blokka hann á öllum sam­fé­lags­miðlum vegna ógeð­felldra skila­boða. Börnunum líður illa á heim­ili föður og vilja ekki vera þar en ég verð að senda þau vegna umgengn­is­samn­ings­ins og hótun um dag­sektir ef ég ákveð að senda þau ekki.“

Hún segir félags­þjón­ust­una hafa verið litla hjálp og sátt­ar­með­ferð aðeins virkað í návist utan­að­kom­andi aðila. „Ég hef verið í sam­bandi við félags­þjón­ust­una síð­ast­liðið ár en það hefur lítið komið út úr því annað en að það eigi að hjálpa okkur að „bæta sam­skiptin.“ Við erum búin að fara í gegnum sátta­með­ferð sem bar ágætis árangur á meðan við vorum með þriðja aðila en um leið og það var búið þá fór allt í sama farið. Ég er með lög­fræð­ing sem hefur ráð­lagt mér að sækja um fulla for­sjá og er ég að hug­leiða það en ég veit að það á eftir að taka mik­inn toll af börn­unum.“

Hún seg­ist vera föst og að henni sé hent á milli kerfa. „Ég er ennþá í þessu ofbeld­is­sam­bandi þrátt fyrir að hafa skilið við mann­inn fyrir tveimur árum og ég þarf að senda börnin mín til hans,“ segir hún að lokum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár