„Eins og mús í hrammi kattar á leiðinni heim“

Elín Ýr Arnar Haf­dís­ar­dóttir lýsir því að ókunn­ugur karl­maður í „veiði­hug“ hafi elt sig heim að næt­ur­lagi, en hún hafði hafnað boði hans um kyn­líf og lesið honum pistil­inn um mannasiði. Hún seg­ist hafa lent í slíku áður, en hefur fengið sig fullsadda af slíkri ógn­ar­hegðun karla.

„Eins og mús í hrammi kattar á leiðinni heim“
Elín Ýr Arnar Haf­dís­ar­dóttir Elín lýsir reynslu sinni af grófri og end­ur­tek­inni áreitni karl­manna í sinn garð á gangi að næt­ur­lagi. Síð­ast­lið­inn laug­ar­dag mætti hún karl­manni á Klambra­túni sem áreitti hana kyn­ferð­is­lega og elti hana heim.

Elín Ýr Arnar Haf­dís­ar­dóttir lýsir skugga­legu atviki að næt­ur­lagi þegar hún mætti ókunnum karl­manni á Klambra­túni á leið sinni úr heim úr mið­bænum. Hún segir hann hafa verið ágengan í leit sinni að sam­neyti, svo ágengan að hann hafi gefið lítið fyrir höfnun og skammir, en elt hana heim. Hún komst undan, en vill deila reynslu sinni þar sem hún er komin með nóg af slíkri hegðun. 

Elín segir reynsl­una ekki nýja, heldur hafi slíkt hent hana ítrekað á yngri árum. Það hafi þó komið henni á óvart að lenda í þessu á ný sem full­orðin kona og lýsir hún reynslu sinni á Twitter. „Ég vann á bar í tvö ár og gekk þá ein heim upp Laugaveg þegar fólk var að týn­ast heim. Ótelj­andi oft hef ég lent í alls kyns mönnum. Þeir hafa kallað á eftir mér, gripið í mig, klæmst við mig. Reynt að fá mig inn í bíla, reynt að fá mig heim með sér,“ segir hún.

Hún lýsir atviki þar sem karl­maður réðst á hana og hún þurfti að verja sig með hús­lyklunum sem hún hafði reiðu­búna, líkt og margar aðrar konur sem ganga einar heim. „Einn reyndi að afgreiða erindi sitt upp við hús­vegg á Hverf­is­götu. Verandi kona, búandi í miðbæ, gang­andi heim að nóttu hef ég alltaf haft var­ann á. Með hús­lykla í lóf­anum stakk ég lykl­inum af krafti við nýrna­stað. Hann datt í keng og meðan ég hljóp í burtu kall­aði hann mig öllum illum nöfnum.“

Taldi sig örugga

Elín bjó í Hafn­ar­firði í ára­tug og á þeim tíma tók hún leigu­bíl heim úr bænum, en nýlega flutti hún aftur í nágrenni mið­bæjar og gekk því heim þetta kvöld. „Verandi orðin eldri taldi ég mig ekki lengur mark­hóp. Ég var líka með þá óraun­hæfu von að bylt­ingar síð­ustu ára hefðu gert eitt­hvað, skilað ein­hverju,“ segir hún. „Þegar ég kem að Klambra­túni stendur maður við götu­horn. Hann heilsar. Ég gleymdi mér. Ég pass­aði mig alltaf á því áður að heilsa ekki. Hunsa frekar og fá ein­hver fúk­yrði á eftir mér fyrir vikið. Hann stökk til. Fór að tala við mig.“

Á meðan hún leit­aði í vös­unum eftir hús­lyklum og síma hugs­aði hún með sér: „Hættir þetta aldrei?“ Hún seg­ist hafa reynt hvað hún gat að styggja hann ekki. „Ég gekk greiðar en ekki um of. Sumir elska að sjá ótta. Hann spurði hvort ég ætti heima í nágrenn­inu. Ég sagði kannski. Hann spurði hvort ég hefði verið í partýi. Spurði hvort ég væri happý. [...] Spurði hvort hann mætti fylgja mér. Nei takk sagði ég. Spurði hvort ég vildi drykk. Nei sagði ég. Sagði svo að ég kysi að ganga ein. Það kom par inn á túnið og hann let sig hverfa. Parið beygði af leið og ég áfram,“ segir Elín. 

Hún segir hann hafa birst fljót­lega aftur og áreitt hana áfram.  „Þegar ég nálg­að­ist runna að þá birt­ist hann þaðan. Við hitt­umst á ný sagði hann. Ég sagði ekk­ert. Gerir þig ein­hver ham­ingju­sama spurði hann. Ég sagð­ist gera sjálfa mig ham­ingju­sama. Viltu að ég geri þig ham­ingju­sama með kyn­lífi spurði hann. Ég greip fastar um lyk­il­inn.“ 

Eins og köttur og mús

„Svo fékk ég nóg af þessum leik; að vera eins og mús í hrammi kattar á leið­inni heim að nóttu. Ég sneri mér við. Horfði í augu hans sem ég pass­aði mig alltaf á að gera ekki. Las honum pistil­inn um óvið­eig­andi hegðun, að ég og allar konur viljum geta gengið heim að næt­ur­lagi án þess að hitta graða karla í veiði­hug. Ég sagði honum að koma sér í burtu og bera virð­ingu fyrir því sem ég hefði beðið hann um.“ Hún gekk í burtu en segir hann hafa hrópað á eftir henni hvort hann gæti fengið núm­erið hennar. Enn og aftur brást hún við neit­andi.

„Ég sneri mér við. Horfði í augu hans sem ég pass­aði mig alltaf á að gera ekki“

Þegar hún gekk inn í Hlíð­arnar, rétt ókomin heim, sá hún hann birt­ast á næsta götu­horni. Hún stað­næmd­ist og leit til hans. „Hann bakkar á bak við runna. Ég held áfram að nálg­ast húsið mitt og smeygi mér fyrir hornið í kringum garð, fer inn bak­dyrnar. Ég stopp­aði við glugg­ann og sá hann koma. Hann sneri að lokum við og fór.“

Hún spyr sig: „Hvenær í and­skot­anum geta konur gengið heim einar án þess að vera með hús­lykil sem vopn, með sím­ann ólæstan til að smella á 112. Án þess að spá í því hvort það sé betra að ganga hlið­ar­götu eða almenn­ings­garð? Án þess að vera myrtar því þær gengu einar heim? Nauðgað? Barðar? Úthúðað fyrir að segja nei?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár