Píratar bæta við sig fylgi

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar dregst saman, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist enn stærstur í könnun MMR. Sós­í­alista­flokk­ur­inn fengi sína fyrstu þing­menn kjörna.

Píratar bæta við sig fylgi
Píratar Flokk­ur­inn mælist næst­stærstur á eftir Sjálf­stæð­is­flokki. Mynd: Kristinn Magnússon

Píratar mæl­ast nú næst stærsti flokk­ur­inn á Alþingi sam­kvæmt könnun MMR. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærstur með fylgi nær fjórð­ungs aðspurðra.

Könnunin var fram­kvæmd 23. til 28. júlí og hefur fylgi flokka breyst lítið frá síð­ustu könnun. Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar dregst mest saman og hefur flokk­ur­inn tapað rúmum þremur pró­sentu­stigum frá síð­ustu mæl­ingu í júní. Mælist hann sá þriðji stærsti með 13,1 pró­senta fylgi.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 24 pró­senta fylgi, jafn mikið og í síð­ustu könnun og nálægt kjör­fylgi í kosn­ingum haustið 2017. Píratar mæl­ast með 15,4 pró­senta fylgi, rúm­lega tveimur pró­sentum meira en í síð­ustu könnun og vel yfir fylg­inu árið 2017 sem var 9,2 pró­sent.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn rís einnig nokkuð í könn­un­inni. Mælist hann með 8,6 pró­sent og nartar í hæla Vinstri grænna, sem mæl­ast með 10,8 pró­sent. Í kosn­ing­unum fengu Vinstri græn 16,9 pró­sent, en Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, hefur til­kynnt um að næstu kosn­ingar fari fram 25. sept­em­ber 2021.

Mið­flokk­ur­inn mælist með 8,4 pró­sent og Viðreisn sömu­leiðis. Sós­í­alista­flokk­ur­inn hækkar í könn­un­inni og mælist með 5,1 pró­sent. Mundi slíkt fylgi tryggja flokknum þing­styrk að loknum kosn­ingum, en flokk­ur­inn hefur ekki boðið áður fram til Alþingis. Flokkur fólks­ins mælist með 4 pró­senta fylgi.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist 47,7 pró­sent, aðeins meiri en í síð­ustu mæl­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár