Talið að um íkveikju hafi verið að ræða

Flest bendir til að um íkveikju hafi verið að ræða þegar kvikn­aði í þriggja hæða húsi á Bræðra­borg­ar­stíg í gær. Þrír eru látnir og tveir á gjör­gæslu. Einn er í haldi lög­reglu vegna máls­ins.

Talið að um íkveikju hafi verið að ræða

Þrír eru látnir eftir brun­ann á horni Bræðra­borg­ar­stígs og Vest­ur­götu í gær. Tveir eru eru á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans og sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er að minnsta kosti annar þeirra mjög alvar­lega slas­aður og í bráðri lífs­hættu. Enn­fremur herma heim­ildir Stund­ar­innar að flest bendi til að um íkveikju hafi verið að ræða.

Samkvæmt til­kynn­ingu frá Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru þrír látnir eftir brun­ann sem kom upp í hús­inu um miðjan dag í gær. Eftir því sem Stundin kemst næst mun einn þeirra þriggja vera mann­eskja sem hopp­aði út um glugga á þriðju hæð húss­ins í til­raun til að bjarga sér frá eld­inum. Hinir tveir sem lét­ust munu ann­ars vegar hafa verið staddir á annarri hæð húss­ins og hins vegar á þriðju hæð. Slökkvi­liðs­menn þurftu frá að hverfa í leit að mönn­unum vegna aðstæðna í hús­inu en slökkvi­liðs­menn voru í hættu vegna hruns af efri hæðum og af þaki en einnig sökum hættu á að gólf kynni að hrynja undan þeim.  

Flest bendir til þess að um íkveikju hafi verið að ræða og lík­lega mun eld­ur­inn hafa komið upp á annarri hæð húss­ins. Jón Viðar Matth­í­as­son, slökkvi­liðs­stjóri hjá Slökkvi­liði höf­uð­borg­ars­svæð­is­ins, sagði í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun að það hefði komið mönnum hans á óvart hversu mik­ill eld­ur­inn var orð­inn og hversu hratt hann breidd­ist út, þegar þeir komu á stað­inn.

Tvennt eru á gjör­gæslu eftir brun­ann og mun annað þeirra vera í bráðri lífs­hættu. Einn hefur verið útskrif­aður af sjúkra­húsi. Tveir voru hand­teknir á vett­vangi fyrir að hlýða ekki fyr­ir­mælum lög­reglu en sleppt eftir skýrslu­tökur. Einn er í haldi lög­reglu í þágu rann­sóknar á elds­voð­anum. Ákvörðun um hvort kraf­ist verði gæslu­varð­halds yfir mann­inum verður tekin síðar í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Bruninn á Bræðraborgarstíg

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár