Tómas er sendiherra samhliða alþjóðlegu dómaraembætti

Tómas H. Heiðar. for­stöð­ur­maður Haf­rétt­ar­stofn­unar Íslands og dóm­ari við Alþjóð­lega haf­rétt­ar­dóm­stól­inn, virð­ist hafa verið skip­aður sendi­herra án þess að nokkur hafi vitað af því. Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur ekki svarað spurn­ingum um skipan Tómasar síð­ast­liðna fimm daga. Ekki liggur fyrir hvernig það fer saman að vera sendi­herra Íslands og dóm­ari við alþjóð­legan dóm­stól.

Tómas er sendiherra samhliða alþjóðlegu dómaraembætti
Team Iceland Ekki liggur fyrir hvaða utan­rík­is­ráð­herra skip­aði Tómas H. Heiðar sem sendi­herra. Gunnar Bragi sagði að „Team Iceland“ ynni saman þegar Tómas var skip­aður dóm­ari árið 2014. Myndin er sam­sett.

Tómas H. Heiðar, for­stöðu­maður Haf­rétt­ar­stofn­unar Íslands, var skip­aður sendi­herra Íslands árið 2014 eða 2016 og hefur sam­hliða því starfi verið með dóm­ara­emb­ætti við Alþjóð­lega haf­rétt­ar­dóm­stól­inn í Hamborg. Óljóst er hvenær Tómas var skip­aður í sendi­herra­starfið og af hverjum. Tómas seg­ist sjálfur hafa verið skip­aður sendi­herra árið 2014 en utan­rík­is­ráðu­neytið hefur sagt í opin­beru svari frá utan­rík­is­ráð­herra að hann hafi verið skip­aður árið 2016. 

Þegar fréttin var birt höfðu ekki borist svör frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu við fimm spurn­ingum sem Stundin sendi því á fimmtu­dag­inn í síð­ustu viku. Opin­berar aðilar hafa viku til að svara spurn­ingum fjöl­miðla. 

Ekki náð­ist í Tómas H. Heiðar við vinn­nslu frétt­ar­innar. 

Í mörgum hlut­verkumTómas H. Heiðar er í mörgum hlut­verkum. Hann er sendi­herra, for­stöðu­maður Haf­rétt­ar­stofn­unar Íslands og dóm­ari við Alþjóð­lega haf­rétt­ar­dóm­stól­inn.

Líklega skipaður af Gunnari Braga eða Lilju

Í fer­il­skrá á heima­síðu Alþjóð­lega haf­rétt­ar­dóm­stóls­ins stendur að Tómas hafi verið skip­aður árið 2014 en sam­kvæmt svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, sem birt var á heima­síðu ráðu­neyt­is­ins, var þetta gert 2016.

Í fer­il­skrá sinni segir Tómas ekki hvar hann var eða er sendi­herra eða gagn­vart hverjum. Einungis að hann hafi verið skip­aður sendi­herra í ótil­greindu landi árið 2014. 

Þetta eru einu tvær heim­ild­irnar sem Stundin hefur fundið um að Tómas H. Heiðar sé sendi­herra.

Samkvæmt öðrum heim­ildum Stund­ar­innar var Tómas H. Heiðar „sendi­herra í leyfi“ frá árinu 2014 og sam­kvæmt sömu heim­ildum var ekki almenn vit­neskja um það innan utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins að Tómas H. Heiðar hafi verið sendi­herra og ekki liggur fyrir hvað hann hefur gert sem slíkur. 

„Kosn­inga­bar­áttur finn­ast lika innan diplom­ata­heims­ins en þar vinna allir saman í Team Iceland“

Gunnar Bragi Sveins­son skip­aði Tómas Heiðar sem sendi­herra þann 1. sept­em­ber 2014. 

Gunnar Bragi studdi Tómas

Þegar Tómas H. Heiðar var skip­aður dóm­ari við Alþjóð­lega haf­rétt­ar­dóm­stól­inn um sum­arið 2014 sagði Gunnar Bragi Sveins­son, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra, á Facebook: „Kosn­inga­bar­áttur finn­ast lika innan diplom­ata­heims­ins en þar vinna allir saman í Team Iceland. Til ham­ingju Tómas.“

Þetta bendir að minnsta kosti til nokk­urra kynna þeirra Gunnars Braga og Tómasar enda var sá síða­nefndi auð­vitað starfs­maður ráðu­neyt­is­ins og er í raun enn ef hann er „í leyfi“ sem sendi­herra. 

Tómas starf­aði um ára­bil í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu og var meðal ann­ars full­trúi Íslands í Alþjóða­hval­veiði­ráð­inu. Hann var aðal­samn­inga­maður Íslands um fisk­veiðar lands­ins, meðal ann­ars mak­ríl­veiðar, í við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið á árunum 2009 til 2013.

Ekki náð­ist í Gunnar Braga við vinnslu frétt­ar­innar. 

Spurningarnar sem utanríkisráðuneytið hefur ekki svarað

Stundin sendi utan­rík­is­ráðu­neyt­inu spurn­ingar um skipan Tómasar H. Heiðar sem sendi­herra á fimmtu­dag­inn. 

Eftir ítrek­anir á spurn­ing­unum hafa svör ekki borist. Ein af spurn­ing­unum snýst um það hvernig það getur farið saman að vera sendi­herra sem „gætir hví­vetna hags­muna Íslands gagn­vart öðrum ríkjum“, eins og segir í lögum um utan­rík­is­þjón­ust­una, og dóm­ari við alþjóð­legan dóm­stól þar sem hann á að vera hlut­laus í málum sem varða haf­rétt. 

Spurn­ing­arnar sem Stundin sendi utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. 

1. Hvenær var Tómas H. Heiðar skip­aður sendi­herra? Í svari frá utan­rík­is­ráð­herra 2017 var það sagt hafa verið 2016 en sam­kvæmt annarri heim­ild var það 2014. Samkvæmt seinni heim­ild­inni stendur: Ambassa­dor (2014). Hvort er rétt?

Sjá hlekki:

https://www.stjornarradid.is/raduneyti/utanrikisraduneytid/utanrikisradherra/stok-raeda-utanrikisradherra/2017/10/12/1014.-mal-Starfsfolk-i-utanrikisthjonustunni/

https://www.itlos.org/the-tribunal/members/judge-tomas-heidar/

2. Hvaða ráð­herra skip­aði Tómas sem sendi­herra og af hverju var hann skip­aður?

3. Hver hafa störf Tómasar verið sem sendi­herra, ef hann er ennþá starf­andi sem slíkur?

4. Nýtur Tómas ein­hverra rétt­inda sem sendi­herra, átt er við hvort hann fái greidd laun fyrir störf sín, njóti eft­ir­launa­rétt­inda og svo fram­vegis?

5. Að mati utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, hvernig fer það saman að sendi­herra Íslands sé á sama tíma dóm­ari við alþjóð­legan dóm­stól eins Tómas er? Eru ein­hver önnur dæmi um þetta í sög­unni? 

https://www.vb.is/frettir/tomas-h-heidar-domari-vid-althjodlega-hafrettardominn/109903/?q=OR

Árétt­ingar:

Eins og kemur fram í frétt­inni er Tómas H. Heiðar sendi­herra. Hann er hins vegar í leyfi frá störfum eins og kemur fram. Í fyrstu útgáfu frétt­ar­innar var sagt að Tómas „gegni starfi sendi­herra“. Þessu orða­lagi hefur verið breytt þar sem það kann að vera vill­andi eins og hann sé starf­andi sendi­herra um þessar mundir, til dæmis í ein­hverju landi eins og Svíþjóð eða Banda­ríkj­unum, fyrir Íslands hönd. Svo er ekki. Tómas er hins vegar sendi­herra við utan­rík­is­ráðu­neytið þó hann sé í leyfi. 

Fréttin hefur verið upp­færð í ljósi þess að utan­rík­is­ráðu­neytið hefur svarað spurn­ingum um málið og upp­lýst að það var Gunnar Bragi Sveins­son sem skip­aði Tómas Heiðar sem sendi­herra í byrjun sept­em­ber árið 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár