Íslenska ríkið gefur Fiskeldi Austfjarða leyfi til laxeldis sem skipta um hendur fyrir milljarða í Noregi

Íslenska lax­eld­is­fyr­ir­tækið, Fiskeldi Aust­fjarða, verður skráð á markað í Noregi. Ætlað mark­aðsvirði félags­ins er nú þegar tvö­falt hærra en það var fyrir tveimur árum. Þeir sem hagn­ast á við­skipt­unum eru norsk lax­eld­is­fyr­ir­tæki sem sáu hagn­að­ar­tæki­færi í lax­eldi á Íslandi.

Íslenska ríkið gefur Fiskeldi Austfjarða leyfi til laxeldis sem skipta um hendur fyrir milljarða í Noregi
Eig­end­urnir sem hagn­ast á við­skipt­unum Eigendur MNH Holdings og Midt-Norsk Havsbruk sem seldu Laxeldi Aust­fjarða til NTS AS árin 2017 og 2018 og högn­uð­ust vel á fjár­fest­ing­unni. Troels Dolmen, sem er lengst niðri í stig­anum á mynd­inni, er einn þeirra og einng Solvår Hal­les­datter Hardesty sem er fremst á mynd­inni.

Íslenska lax­eld­is­fyr­ir­tækið Fiskeldi Aust­fjarða, sem stundar sjó­kvía­eldi í Berufirði og Fáskrúðs­firði, er metið á 21 millj­arð íslenskra króna fyrir skrán­ingu félags­ins á markað í Noregi. Við­skipti með norskt móð­ur­fé­lag þess, Ice Fish Farm AS, á hluta­bréfa­mark­aðnum hófust föstu­dag­inn 5. júní. Stærsti eig­andi Fisk­eldis Aust­fjarðar, Midt-Norsk Havbruk, skráði sig fyrir nýju hlutafé upp á 70 millj­ónir norskra króna, rúm­lega 1 millj­arði króna, og tveir fjár­fest­ing­ar­sjóðir fyrir 140 millj­ónum, rúm­lega 2 millj­örðum króna í aðdrag­anda skrán­ing­ar­innar.

Helstu verð­mætin í íslenska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu eru fram­leiðslu­leyfin á laxi sem fyr­ir­tækið hefur yfir að ráða og kemur þetta glögg­lega fram í gögnum um íslenska lax­eld­is­fyr­ir­tækið. Því má segja að verðið á hluta­bréf­unum í fyr­ir­tæk­inu ráð­ist af þeim fram­leiðslu­kvóta á eld­is­laxi sem fyr­ir­tækið á hér á landi, með sams konar hætti og verð­mæti sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja ræðst öðrum þræði af þeim kvóta sem fyr­ir­tækin hafa yfir að ráða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu