Fjögurra barna móðir á flótta undan ofbeldi vill komast heim til Íslands

Barns­faðir Ingu Hen­rik­sen er ákærður fyrir að beita hana og börnin fjögur ofbeldi í bræðiskasti og meiða nítján mán­aða gam­alt barn þeirra. Inga ætlar sér að flytja heim til Íslands frá Svíþjóð en hefur áhyggjur af rétt­indum sínum og skorti á stuðn­ingi.

Fjögurra barna móðir á flótta undan ofbeldi vill komast heim til Íslands
Langar bara heim í örygg­is­netið sitt Inga vill bara kom­ast heim til Íslands með börnin sín fjögur.

„Ég ætla ekki að skrímsla­væða hann. Hann eins og aðrir ger­endur eru mennskir og það á ekki taka af þeim ábyrgð­ina af gjörðum þeirra. Hann vissi og veit nákvæm­lega hvað hann gerði,“ segir Ingunn Val­gerður Hen­rik­sen, Inga, en sam­býl­is­maður hennar er ákærður fyrir að beita hana alvar­legu heim­ilsof­beldi 17. apríl síð­ast­lið­inn.

Samkvæmt ákæru átti ofbeldið sér stað á heimil þeirra í Hels­ingja­borg í Svíþjóð, fyrir framan fjögur börn Ingu sem einnig urðu fyrir ofbeldi af hálfu sam­býl­is­manns hennar. Inga segir ofbeldið hafa verið svo alvar­legt að hún missti með­vit­und í tvígang og þegar lög­regla kom á stað­inn hand­tók hún mann­inn sem var úrskurð­aður í þriggja sól­ar­hringa gæslu­varð­hald, í ein­angrun. Sak­sókn­ari úrskurð­aði mann­inn í nálg­un­ar­bann og hefur verið gefin út ákæra á hendur honum fyrir lík­ams­árás á hendur Ingu og tveimur barna hennar. „Mér líður ekki vel, mig langar bara að kom­ast heim í netið mitt,“ segir Inga sem stefnir á að kom­ast heim til Íslands í byrjun júní en þegar heim er komið ríkir algjör óvissa um hvaða aðstoð henni býðst til að koma fót­unum undir sig.

Segist hafa rotast

Lýs­ing­arnar á ofbeld­inu eru ógn­vekj­andi en Inga skrif­aði Facebook-færslu þar sem hún sagði sögu sína og skil­aði skömminni. Hún lýsir því hvernig sam­býl­is­maður hennar hafi komið heim úr vinnu, ang­andi af áfeng­is­lykt. Hann hafi þegar haft allt á hornum sér, öskrað á börnin, meitt nítján mán­aða gam­alt barn þeirra með því að kippa í hendi þess svo það hafi farið að hágráta. Hegðunin hafi færst í auk­ana, hann hafi ausið fúk­yrðum yfir Ingu og börnin, skellt hurðum þannig að þær hafi skemmst og harð­neitað öllum beiðnum Ingu um að fara út af heim­il­inu til að ná áttum. Hann hafi þá ógnað þeim, fyrst Ingu og síðan börnum hennar, sem hafi endað með því að hann hafi tekið Ingu upp og grýtt henni í gólfið þar sem hún rot­að­ist.

„Börnin horfðu á hann kýla mig í vegg­inn með þeim afleið­ingum að haus­inn fór í vegg­inn, ég datt út og fékk floga­kast og piss­aði á mig“

„L fríkar út og ég heyri öskrin hennar í fjar­lægð. Hann segir henni að halda kjafti og reynir að hrinda henni. Hún hleypur inn í her­bergi. Ég man ekki hvernig ég komst fyrir framan her­bergi barn­anna þar sem hann heldur hnef­anum á lofti og segir börn­unum að halda sig inni í her­bergi og halda kjafti. Ég bið hann um að fara út, hann ýtir mér til hliðar og ég urra að honum að snerta ekki börnin mín.“

Við þetta gekk sam­býl­is­maður Ingu aftur í skrokk á henni, segir hún. „Börnin horfðu á hann kýla mig í vegg­inn með þeim afleið­ingum að haus­inn fór í vegg­inn, ég datt út og fékk floga­kast og piss­aði á mig.“

Hélt því fram að Inga hefði dottið.

Inga lýsir því að þegar hún rank­aði við sér hafi hún séð sam­býl­is­mann sinn grípa í peysu dóttur hennar og grýta henni í gólfið, á systur sína. Börnin hafi öll öskrað á hjálp hvert í kapp við annað og beðið um að hringt yrði á lög­regl­una því mað­ur­inn væri að drepa móður þeirra. Dóttir Ingu hljóp svo fram á gang til að sækja hjálp og nágrannar þeirra brugð­ust við og rudd­ust inn í íbúð­ina, Ingu og börn­unum til bjargar. Hann hafi þá haldið því fram að allt væri þetta mis­skiln­ingur og að Inga hefði ein­fald­lega bara dottið. Lög­reglan hafi hins vegar komið á svæðið og fært mann­inn burt í járnum.

Inga segir að mað­ur­inn hafi hins vegar alveg vitað hvað hann væri að gera. „Venjuleg mann­eskja sem reið­ist reynir að koma sér út úr aðstæð­unum, til að ná ró og ræða síðan málin eftir að ró er náð. Ég bauð honum það ítrekað, aftur og aftur en hann tók því ekki. Ég var á fundi hjá áfallateymi hér úti í Hels­ingja­borg fyrr í dag og þar var mér bent á að hann var við stjórn­völ­inn allan tím­ann. Þó okkur, mér og börn­unum, hafi liðið eins og hann væri í ein­hverju ann­ar­legu ástandi þá varð hann alveg poll­ró­legur um leið og nágrann­inn kom inn.“

Vísað af heimilinu og úrskurðaður í nálgunarbann

Sam­býl­is­maður Ingu var úrskurð­aður í nálg­un­ar­bann gagn­vart henni 20. apríl síð­ast­lið­inn sem gildir til 16. júní næst­kom­andi. Þá var honum vísað af sam­eig­in­legu heim­ili þeirra. Samkvæmt úrskurð­inum er honum óheim­ilt að hitta Ingu, að setja sig í sam­band við hana eða elta hana með nokkrum hætti.

Í úrskurð­inum segir að vegna aðstæðna sé hætta á að sam­býl­is­maður Ingu muni brjóta gegn lífi hennar, heilsu, frelsi eða frið­helgi. Yfir­stand­andi rann­sókn á ofbeld­is­broti sam­býl­is­manns Ingu skýtur stoðum undir kröfu um nálg­un­ar­bannið, segir í úrskurð­inum. Rann­sóknin sýnir fram á að sam­býl­is­maður hennar hafi beitt Ingu ofbeldi að börnum hennar við­stöddum, segir enn fremur í úrskurð­inum. 

Bannað að nálg­ast InguNálg­un­ar­bannið gildir til 16. júní næst­kom­andi.

Stigvaxandi ógnanir

Inga segir að mað­ur­inn sinn hafi ekki áður lagt hendur á sig en síð­ustu mán­uði hafi hegðun hans farið stig­versn­andi í garð hennar og barn­anna. Hann hafi verið skap­stór, jafn­vel kastað hlutum og í febr­úar hafi hann ráð­ist á son Ingu, skellt honum upp að vegg og á gólfið. „Síðan þá hefur hann sýnt af sér ógn­andi hegðun ítrekað, lamið hnef­anum í borðið, öskrað á mig, staðið yfir mér og potað fingrum í and­litið á mér.“

Inga seg­ist kann­ast við slíka hegðun en þegar hún kynnt­ist manni sínum var hún að hafði hún áður verið í ofbeld­is­sam­bandi. Fyrr­ver­andi maki hennar hafði beitt hana and­legu, lík­am­legu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi. „Þegar ég kynnt­ist mann­inum mínum þá var ég á við­kvæmum stað vegna sam­skipta við þann mann. Sam­býl­is­mað­ur­inn minn stóð mjög þétt við bakið á mér, hann var mjög sjar­mer­andi, vel máli far­inn og áhuga­samur um mig og lífið almennt. Það var svo mikil stoð að honum að ég huns­aði öll við­vör­un­ar­merki.“

„Ef við hefðum búið heima á Íslandi hefði ég hent honum út“

Spurð hvort að það, þegar litið væri í bak­sýn­is­speg­il­inn, hafi verið rauð flögg á lofti frá upp­hafi varð­andi hegðun hans játar Inga því. „Hann var alltaf mjög fljótur upp. Áður en við fluttum hingað út hafði hann tekið í börnin mín, beitt lík­am­legu afli, og ég hafði átt sam­ræður við hann um að svona væri ótækt, þetta gengi ekki. En hann hefur beitt ákveð­inni ótta­stjórnun alla tíð, ekki síst í garð barn­anna.“

Fannst hún í erfiðri stöðu

Fjöl­skyldan flutti út til Sví­þjóðar fyrir tæpu ári síðan til að upp­lifa eitt­hvað nýtt, það var heill­andi að flytja úr landi. Inga ætl­aði sér að klára fæð­ing­ar­or­lof úti í Hels­ingja­borg og hefja nám í afbrota­fræði í háskól­anum þar í haust en mað­ur­inn hennar var kom­inn með vinnu úti. Inga segir að hún hafi átt ákveðið örygg­is­net úti í Svíþjóð, meðal ann­ars býr vin­kona hennar ásamt fjöl­skyldu sinni í um 40 mín­útna fjar­lægð. Engu að síður segir Inga að henni hafi liðið eins og hún væri í erf­iðri stöðu þarna úti til að bregð­ast við ógn­andi og óeðli­legri hegðun sam­býl­is­manns hennar. „Ef við hefðum búið heima á Íslandi hefði ég hent honum út, ég hefði verið búin að henda honum út. Mér fannst til­hugs­unin um að henda honum út í ekki neitt hérna úti óþægi­leg enda átti hann ekki örygg­is­net hér úti.“

Inga segir að búið hafi verið að ákveða að fjöl­skyldan flytti heim til Íslands í sumar, mann­inum hennar hafi ekki liðið vel úti í Svíþjóð og því hafi staðið til að þau kæmu heim til Íslands í júní. Í lok októ­ber á síð­asta ári segir Inga að mað­ur­inn hafi brugð­ist trausti hennar. „Ég held að eftir það þá hafi sam­bandið verið til­finn­inga­lega bara búið. Ég var að reyna að gefa séns, sýna umburð­ar­lyndi, skiln­ing og til­lits­semi en hann vildi ekki leita sér neinnar aðstoðar hér úti. Hann bar alltaf fyrir sig tungu­mála­erf­ið­leika en það er hægt að hafa sam­band við sál­fræð­inga á Íslandi ef vilji er fyrir hendi. Mér leið eins og hann væri að setja okkar sam­band í bið þar til að við kæmum til Íslands, þá myndi hann leita sér aðstoðar, en á meðan óx bara þessa erf­iða og ógn­andi hegðun og varð verri og verri.“

„Ég vakn­aði grát­andi í morgun og er búin að gráta í allan dag, fram að þessu við­tali“

Inga bíður nú eftir því að kom­ast heim til Íslands og stefnir að því að fljúga hingað 6. júní. Hún er þegar komin með íbúð hér á landi en er í óvissu um félags­lega aðstoð. Hún hefur nú fyrir fjórum börnum og sjálfri sér að sjá en á meðan lög­heim­ili hennar er skráð úti í Svíþjóð kemst hún ekk­ert áfram í íslenska kerf­inu, ekki hvað varðar fjár­hags­að­stoð, auknar hús­næð­is­bætur eða annað. Ef hún hins vegar flytur lög­heim­ili sitt frá Svíþjóð þá missir hún þá aðstoð sem hún hefur notið þar til að vinna úr ofbeld­inu. Hún er því kvíðin fyrir því hvað er framundan. „Ég þarf á stuðn­ingi heima að halda til að koma undir mig fót­unum að nýju. Ég get ekki farið vinna, ef ég fæ vinnu, fyrr en litla stelpan mín fær leik­skóla­pláss. Þetta er ansi snúið og ég veit ekki alveg hvernig þetta bjarg­ast. Ég get til dæmis ekki fengið gám­inn fluttan heim, ég þarf að leita á náðir mömmu til þess og finnst það ansi erfitt. Svo þurfum við að fara í sótt­kví þegar við komum heim þannig að það hægir líka á öllu ferl­inu. Mér líður eins og kerfið þurfi að bregð­ast hraðar við heima á Íslandi. Ég hafði sam­band við Bjark­ar­hlíð, sem benti mér á þjón­ustu­mið­stöðvar borg­ar­innar en þar er ekk­ert hægt að gera fyrr en ég er komin með lög­heim­ili heima. Ef ég hins vegar færi lög­heim­ilið heim þá missi ég stuðn­ing hér í Svíþjóð. Ég held að álagið sem að fylgir þessu öllu sé hættu­legt and­legu hlið­inni og það verði að meta það. Þetta er engin normal staða að vera í.“

Inga segir að sú aðstoð sem hún og börnin hennar hafi notið í Svíþjóð sem þolendur heim­il­is­of­beldis, hafi verið til mik­illar fyr­ir­myndar og vel haldið utan um hana. Spurð hvernig henni líði seg­ist hún varla vita það. „Ég er alls konar. Ég vakn­aði grát­andi í morgun og er búin að gráta í allan dag, fram að þessu við­tali. Mér finnst erfitt að þurfa að halda haus fyrir framan börnin fjögur og þurfa að keyra þessi mál öll áfram. Mér líður ekki vel, mig langar bara að kom­ast heim í netið mitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár