Forstjóri Ríkiskaupa: Rannsókn vegna brota hefði ekki haft áhrif á valið

For­stjóri Rík­is­kaupa segir að það hefði ekki haft áhrif á nið­ur­stöðu útboðs á kynn­ing­ar­her­ferð fyrir Ísland ef það lægi fyrir að aug­lýs­inga­stofan M&C Saatchi sæti rann­sókn vegna bók­halds­brota. Liggja þurfi fyrir dómur eða stað­fest­ing frá opin­berum aðilum um að brot hafi átt sér stað. Íslenska aug­lýs­inga­stofan Peel, sam­starfs­að­ili M&C Saatchi hér á landi, full­yrðir að að meiri­hluti fram­leiðsl­unnar vegna verk­efn­is­ins muni fara fram hér á landi.

Forstjóri Ríkiskaupa: Rannsókn vegna brota hefði ekki haft áhrif á valið
Úr her­ferð­inni Inspired by Iceland Stofn­endur aug­lýs­inga­stof­unnar Peel, sem er sam­starfs­að­ili alþjóð­legu aug­lýs­inga­stof­unnar M&C Saatchi, komu á sínum tíma að gerð her­ferð­ar­innar Inspired by Iceland. Á þeim tíma voru þeir starfs­menn Íslensku aug­lýs­inga­stof­unnar.

Mikil óánægja ríkir meðal íslenskra aug­lýs­inga­stofa með þá ákvörðun Rík­is­kaupa að fela alþjóð­legu aug­lýs­inga­stof­unni M&C Saatchi gerð kynn­ing­ar­her­ferð­ar­innar „Ísland saman í sókn“ eða Destination Iceland, sem ætlað er að laða erlenda ferða­menn aftur til Íslands. Allar stærstu aug­lýs­inga­stofur hér á landi tóku þátt í útboð­inu en í það heila bár­ust 15 til­lögur, 8 erlendar og 7 inn­lendar. M&C Saatchi í sam­starfi við íslensku aug­lýs­inga­stof­una Peel varð fyrir val­inu. 

Greint var frá því í frétt á vef mbl.is í dag að M&C Saatchi sæti rann­sókn breska fjár­mála­eft­ir­lits­ins vegna bók­halds­mis­ferlis. Í svari Halldórs Ó. Sig­urðs­sonar, for­stjóra Rík­is­kaupa, við þeirri spurn­ingu Stund­ar­innar hvort Rík­is­kaup hafi verið með­vituð um þá rann­sókn og hvort hún hafi verið tekin inn í mynd­ina þegar ákvörðun var tekin um að skipta við stof­una, sagði hann frétt eða rann­sókn á þessu stigi ekki hafa áhrif á val bjóð­anda. Liggja þurfi fyrir dómur eða stað­fest­ing frá opin­berum aðilum um að ein­hver brot hafi átt sér stað. Í svari hans segir jafn­ramt að til­boðin séu valin út frá fyr­ir­fram­gefnum val­for­sendum og hæfis­kröfum sem fram koma í útboðs­gögnum í sam­ræmi við íslensk lög. „Rík­is­kaupum ber skylda til að stað­festa að úti­lok­unar­á­stæður 68. gr. laga um opin­ber inn­kaup eigi ekki við um fyr­ir­tæki áður en end­an­legur samn­ingur er gerður. Á þess­ari stundu er ekk­ert sem bendir til þess að um slíkt sé að ræða. Í 68. gr. segir m.a. að „bjóð­andi sem hefur verið sak­felldur með end­an­legum dómi“ fyrir til­tekin afbrot skal úti­lok­aður frá þátt­töku í inn­kaupa­ferli. Lögin heim­ila ekki að ákvarð­anir um val á bjóð­endum byggi á frétta­flutn­ingi heldur á stað­reyndum og ef svo ber undir end­an­legum dómum um afbrot. Fyr­ir­tækið stóðst allar hæfis­kröfur útboðs­gagna en eins og fyrr er nefnt þá verður að leita end­an­legra stað­fest­inga um hæfi bjóð­and­ans áður en gengið er frá end­an­legum samn­ingi.“

„Fyr­ir­tækið stóðst allar hæfis­kröfur útboðs­gagna“

Þá bendir hann á að lög um opin­ber inn­kaup byggi á þeirri for­sendu að Ísland er aðili að Evrópska efna­hags­svæð­inu og skylt sé að aug­lýsa útboð þar ef fjár­hæðir fara yfir ákveðin við­mið­un­ar­mörk. 

Aug­lýs­inga­stofan M&C Saatchi sendi frá sér yfir­lýs­ingu í gær­kvöldi, þar sem brugð­ist var við umræð­unni hér á landi um rann­sókn­ina. Þar segir að aldrei hafi verið ætl­unin að leyna neinu hvað hana varðar. „Fjallað hefur verið um þetta mál nokkuð ítar­lega í breskum og alþjóð­legum fjöl­miðlum. Um er að ræða gam­alt mál sem teng­ist ein­göngu mál­efnum eign­ar­halds­fé­lags­ins og ferlum þess við upp­lýs­inga­gjöf sem skráð félag. Mik­il­vægt er að fram komi að félagið upp­lýsti um það að eigin frum­kvæði. Í kjöl­farið hefur umrætt vinnu­lag verið end­ur­skoðað og nýr fjár­mála­stjóri og algjör­lega nýtt fjár­málateymi hafa tekið við hjá eign­ar­halds­fé­lag­inu. Enginn þeirra sem ábyrgð báru starfa þar lengur. Málið hefur jafn­framt engin áhrif haft á þau dótt­ur­fé­lög M&C Saatchi Group sem unnu að sig­ur­til­lög­unni að kom­andi mark­aðs­her­ferð íslenskrar ferða­þjón­ustu. Ekkert þess­ara dótt­ur­fyr­ir­tækja og eða ein­stak­lingar innan þeirra tengd­ust mál­inu sem fjallað er um í umræddri frétt Morg­un­blaðs­ins,“ segir meðal ann­ars í yfir­lýs­ing­unni. 

Munaði litlu á fyrstu og öðru sæti

M&C Saatchi hlaut 87,17 stig af hund­rað mögu­legum en aug­lýs­inga­stofan Pipar/TBWA, sem hafn­aði í öðru sæti, hlaut 86,35 og mun­aði því innan við einu stigi á til­lög­unum. Guðmudur Hrafn Pálsson, fram­kvæmda­stjóri aug­lýs­inga­stof­unnar Pipar/TBWA, sem jafn­framt er for­maður Sambands íslenskra aug­lýs­inga­stofa, er meðal þeirra sem lýst von­brigðum með nið­ur­stöð­una. Í við­tali við mbl.is sagði hann bæði skrýtið og svekkj­andi að á tímum þegar stjórn­völd séu með verk­efni um að velja eigi íslenskt skuli jafn­stórt verk­efni og raun ber vitni fara úr landi. Verkefni hér á landi skapi bæði tekjur og vinnu fyrir Íslend­inga. 

Segir stóran hluta framleiðslunnar fara fram hér

For­svars­menn aug­lýs­inga­stof­unnar Peel, sem eru fyrr­ver­andi starfs­menn Íslensku aug­lýs­inga­stof­unnar og unnu þar meðal ann­ars að verk­efn­inu Inspired by Iceland, hafa sent frá sér til­kynn­ingu þar sem brugð­ist er við umræðu um nið­ur­stöðu útboðs­ins. Þar segja þeir að meiri­hluti fram­leiðsl­unnar vegna her­ferð­ar­innar verði hér á landi. Peel hygg­ist ráða önnur inn­lend fram­leiðslu­fyr­ir­tæki og fleira vant aug­lýs­inga­fólk til að vinna með sér að átak­inu. „Við ætlum að aug­lýsa Ísland sem áfanga­stað í öðrum löndum. Stór hluti af fram­leiðsl­unni mun fara fram hér því þekk­ingin á land­inu sem við erum að mark­aðs­setja skiptir máli. Við ætlum að ráða til okkar fjölda íslenskra und­ir­verk­taka á ýmsum sviðum fram­leiðsl­unnar og því munu margir fleiri njóta góðs af verk­efn­inu,“ er haft eftir Magnúsi Magn­ús­syni, stofn­anda og fram­kvæmdatjóra Peel í til­kynn­ing­unni. Segir hann að til standi að mark­aðs­setja Ísland í útlöndum. Til þess að ná góðum árangri þurfi að vinna með fólki sem þekkir vel til á þeim mörk­uðum og starfa þar alla daga. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár