Dótturfélag Kaupfélagsins endurgreiðir 17 milljóna hlutabætur eftir fjölmiðlaumfjöllun

Kjöt­vinnsla Kaup­fé­lags Skag­firð­inga nýtti hluta­bóta­leið­ina en velur nú að end­ur­greiða 17 millj­ónir króna.

Dótturfélag Kaupfélagsins endurgreiðir 17 milljóna hlutabætur eftir fjölmiðlaumfjöllun
Vilja ekki rík­is­að­stoð Kaup­fé­lag Skag­firð­inga, sem Þórólfur Gíslason stýrir, segir að fyr­ir­tækið leiti allra leiða til að reka fyr­ir­tækið án „sér­tækrar rík­is­að­stoðar“ og þess vegna end­ur­greiði það hluta­bæt­urnar.

Dótt­ur­fé­lag Kaup­fé­lags Skag­firð­inga hefur ákveðið að end­ur­greiða 17 millj­óna króna hluta­bætur sem starfs­menn kjöt­vinnslu fyr­ir­tæk­is­ins, Esju Gæðafæði,  fengu í apríl. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga.

Stundin fjall­aði um notkun Kaup­fé­lags Skag­firð­inga á hluta­bóta­leið­inni fyrir helgi.

Í tikynn­ingnni um end­ur­greiðsl­una segir: „Að gefnu til­efni skal tekið fram að kjöt­vinnsl­an hef­ur aldrei greitt kaup­fé­lag­inu arð. Vegna umræðu um arð­greiðslur er áréttað að Kaup­fé­lag Skag­f­irð­inga starfar á grund­velli laga um sam­vinnu­fé­lög. Af þeirri ástæðu hef­ur það alla tíð, eða í 130 ár, nýtt lang­stærst­an hluta fram­legðar starf­sem­inn­ar til innri upp­bygg­ing­ar í stað hefð­bund­inna arð­greiðslna hluta­fé­laga til eig­enda sinna.“

50 prósent tekjufall

 Ágúst Andr­és­son, fram­kvæmda­stjóri Esju og for­stöðu­maður kjöt­af­urða­stöðvar Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, ræddi um þá ákvörðun félags­ins að nýta sér hluta­bóta­leið­ina í frétt Stund­ar­innar. „Esjan er fyrst og fremst mat­væla­fyr­ir­tæki sem þjón­ustar veit­inga­hús og stór­eld­hús á mark­aði. Það þarf ekk­ert að hafa mörg orð um það hvaða áhrif það hefur á okkur þegar engir ferða­menn eru hér á landi. Mörgum veit­inga­húsum hefur verið lokað og mötu­neyti eru lokuð.“ 

Ágúst sagði að tekju­fall Esju vegna COVID-19 hafi verið 50 pró­sent í apríl.

„Það þarf ekk­ert að hafa mörg orð um það hvaða áhrif það hefur á okkur þegar engir ferða­menn eru hér á landi“ 

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga keypti kjöt­vinnsl­una Esju árið 2016 sem og kjöt­versl­un­ina Gallerí Kjöt. Sam­keppn­is­eft­ir­litið þurfti að sam­þykkja kaupin á kjöt­vinnsl­unni vegna sterkrar stöðu Kaup­fé­lags Skag­firð­inga á kjöt­mark­aðnum á Íslandi. Esja hefur verið rekin í gamla hús­næði Osta og smjör­söl­unnar á Bitru­hálsi í Reykja­vík sem kaup­fé­lagið keypti fyrir nokkrum árum. 

Esja var með tæp­lega 2,8 millj­arða tekjur árið 2018 en skil­aði nærri 200 millj­óna tapi.

Listinn lengist

Í til­kynn­ing­unni í dag útskýrir Kaup­fé­lag Skag­firð­inga ákvörðun sína um end­ur­greiðsl­una svona: „Með þess­ari ákvörðun er sú stefna kaup­fé­lags­ins und­ir­strikuð að leita allra leiða til þess að ná því mark­miði inn­an sam­stæð­unn­ar án sér­tækr­ar aðstoðar frá ís­lenska rík­inu. Þess vegna verður feng­inn rík­is­stuðn­ing­ur á grund­velli hluta­bót­ar­leiðar end­ur­greidd­ur.“

Þetta dótt­ur­fé­lag Kaup­fé­lags­ins bæt­ist við hóp þeirra fyr­ir­tækja sem hafa ákveðið aðend­ur­greiða hluta­bætur. Fyrir helgi til­kynni Skelj­ungur meðal ann­ars um slíka end­ur­greiðslu í kjöl­far umfjöll­unar fjöl­miðla. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hlutabótaleiðin

Fréttir

Guð­laugur Þór hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umfjöll­unar um hags­muna­tengsl við Bláa Lónið

Utan­rík­is­ráð­herra er eini ráð­herr­ann sem hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umræðna um efna­hags­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna Covid-19. Fjöl­skylda Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á einnig ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem hefur nýtt sér úrræði stjórn­valda vegna Covid-19.
FréttirHlutabótaleiðin

Mat­væla­fyr­ir­tæki með eign­ar­haldi í skatta­skjóli nýtti hluta­bóta­leið­ina

Mat­væla­fyr­ir­tækiið Mata, sem er eígu eign­ar­halds­fé­lags­fé­lags á lág­skatta­svæð­inu Möltu sem sagt er hafa öll ein­kenni skatta­skjóls, setti 20 starfs­menn á hluta­bóta­leið­ina. Fram­kvæmda­stjór­inn, Eggert Árni Gíslason vill ekki ræða um eign­ar­haldið á Möltu en segir að engin skil­yrði vegna eign­ar­halds hafi verið á notkun hluta­bóta­leið­ar­innar.
FréttirHlutabótaleiðin

Einka­rekið lækn­inga­fyr­ir­tæki nýtti hluta­bóta­leið­ina eftir 450 millj­óna arð­greiðslur

Tekjur röntgen­lækna­fyr­ir­tæk­is­ins Íslenskrar mynd­grein­ingar dróg­ust nær alveg saman í apríl í miðjum COVID-19 far­aldr­inum. Fram­kvæmda­stjór­inn segir að tekju­fall og flutn­ingar hafi gert það að verkum að félagið hafi neyðst til að fara hluta­bóta­leið­ina. Fyr­ir­tækið hefur verið ofar­lega á lista yfir arð­söm­ustu fyr­ir­tæki lands­ins hjá Credit Info.
FréttirHlutabótaleiðin

Hót­el­keðja fjöl­skyldu Hreiðars Más sem fjár­mögnuð var úr skatta­skjóli nýtir hluta­bóta­leið­ina

Hót­el­keðjan Gistiver ehf. nýtir hluta­bóta­leið­ina eins og mörg önnur hótel á Íslandi hafa gert í kjöl­far COVID-19. Hreiðar Már Sig­urðs­son og Anna Lísa Sig­ur­jóns­dóttir eiga hót­el­keðj­una og var hún fjár­mögnuð í gegnum Lúx­em­borg og Tortóla. Sjóður Stefnis hýsti eign­ar­haldið en þessum sjóði hefur nú verið slitið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár