Lokahóf, afdrep og djass

Tón­leik­ar, sýn­ing­ar og við­burð­ir 8. til 22. maí.

Lokahóf, afdrep og djass

Þetta og ekki svo margt fleira er á döf­inni næstu vik­urnar. Athugið að tíma­setn­ingar gætu breyst með stuttum fyr­ir­vara. Margir við­burð­irnir eru ókeypis, en hægt er að styðja lista­menn með því að kaupa verk þeirra eða plötur á net­inu.

Ísland vaknar úr dvala

Hinn 4. maí síð­ast­lið­inn var gefið út leyfi til að aflétta vissum þáttum sam­komu­banns­ins, og má því segja að landið og borgin séu að vakna til lífs á ný. Enn eru fjölda­tak­mark­anir í gildi og gerð krafa um tveggja metra fjar­lægð á milli ein­stak­linga, en þetta heim­ilar þó nokkrum menn­ing­ar­stofn­unum að opna dyr sínar á ný. Þar má nefna Lista­safn Reykja­víkur, Ljós­mynda­safn Reykja­víkur, Árbæj­ar­safnið, Borg­ar­bóka­safnið, Hafn­ar­borg og fleiri staði. Einnig hafa mörg kvik­mynda­hús opnað dyr sínar, en vegna COVID-19 hafa engar nýjar myndir verið gefnar út og því er dag­skráin full af end­ur­sýndum eldri myndum. Stefnt er að því að opna sund­laugar 18. maí, en þó með áður­nefndum tak­mörk­unum. Ein­hverjir barir hafa nú þegar opnað dyr sínar, en ekki er búist við frek­ari til­slök­unum fyrr en 25. maí.

Lokahóf Glópagull: Þjóðsaga

Hvar? Midpunkt
Hvenær? 9. maí kl. 14.00–17.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Sýning Stein­unnar Gunn­laugs­dóttur sam­anstendur af tveimur sjálf­stæðum verkum sem tengj­ast í gegnum ólík en skyld vís­inda­leg ferli sem fara fram á hríð­dimmri heiði í grennd við manna­byggðir. Steinunn vinnur þvert á miðla og gerir skúlp­t­úra, mynd­bönd, hljóð­verk, teikn­ingar, gjörn­inga og inn­setn­ingar.

Elín Ey

Hvar? Samtökin ‘78
Hvenær? 9. maí kl. 20.00
Streymi: FB-síða Sam­tak­anna

Tón­list­ar­konan Elín Ey hefur verið virk í íslensku tón­list­ar­sen­unni um ára­bil og komið fram bæði undir eigin nafni og með hljóm­sveit­inni Sísý Ey. Nýverið gaf hún út stutt­skíf­una Gone, en búast má við því að hún verði spiluð ásamt eldra efni. Tón­leik­arnir eru hluti af dag­skrá Hinsegin daga.

Risa kílómarkaður Rauða krossins

Hvar? Rauða­kross­búðin Skútu­vogi
Hvenær? 9. & 10. maí
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Rauða­kross­búð­irnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa í mörg ár unnið gegn fata­sóun með því að safna not­uðum fötum og bjóða lands­mönnum að kaupa föt í góðu ástandi gegn vægri þóknun í stað þess að senda erlendis til end­ur­nýt­ingar. Þessa helgi eru föt verð­lögð eftir kílóa­magni, og því auð­velt að gera góð kaup á mikið af fötum.

Smásala

Hvar? Harbin­ger
Hvenær? 9.–30. maí 
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Retail, eða Smásala, er einka­sýn­ing Geir­þrúðar Finn­boga­dóttur Hjörvar. Skúlp­t­úr­arnir sem eru til sýnis eru inn­blásnir af hlutum sem seldir eru í búðum, og einnig af sýn­inga­kerf­unum hvar slíkum hlutum er stillt fram. Sýningin fjallar því um fag­ur­fræði­legar nautnir versl­un­ar­blæt­is­ins og um ánægj­una af skringi­leik­anum sem því fylgir.

Erling Klingenberg

Hvar? Nýló & Kling & Bang
Hvenær? 9. maí–28. júní
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Þessi sýn­ing veitir skýra og nýja sýn á teng­ingar, sam­hengi og inni­hald verka frá 25 ára lit­ríkum ferli Erlings T.V. Klin­gen­bergs. Lista­fer­ill hans hefur ein­kennst af heið­ar­leika og húmor, en verk frá mis­mun­andi tíma­bilum verða til sýnis í Mars­hall­hús­inu, bæði í rými Nýló og Kling & Bang.

Múlinn jazzklúbbur

Hvar? Harpa
Hvenær? 8., 15., & 22. maí kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 3.000 kr.

Múlinn jazzklúbbur heldur uppi virkri dag­skrá í maí, en hann flytur tón­list þrisvar á næstu tveimur vikum í Flóanum, sem er stórt og opið rými Hörpu sem býður upp á nægt rými til að virða tveggja metra regl­una. Hinn 8. maí kemur Frels­is­sveit Nýja Íslands fram, 15. eru ókeypis tón­leikar með Halli’s Mafaggas, og 22. kemur Kvartett Ólafs Jóns­sonar fram.

Gjörningar í Ekki brotlent enn

Hvar? Hafn­ar­hús
Hvenær? Mánudaga og föstu­daga kl. 14.30 & 15.15
Aðgangs­eyrir: 1.840 kr.

Sýning Andreas Brunners, Ekki brot­lent enn, hefur verið fram­lengd til 7. júní. Sýningin sam­anstendur af afsteypum og skúlp­t­úrum með vísun í allt frá frum­myndum hug­mynda yfir í forn-grískar sögur og Bleika pardus­inn. Á mánu­dögum og föstu­dögum fer fram gjörn­ingur þar sem tveir aðilar mála súlu aftur og aftur, í mis­mun­andi litum, í eins konar eilífri hringrás.

Þögult vor

Hvar? Hafn­ar­borg
Hvenær? Til 17. maí
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Þögult vor er sam­sýn­ing Lilju Birg­is­dóttur, Herttu Kiiski og Katrínar Elvars­dóttur þar sem þær kalla fram ljúfar og hlýjar til­finn­ingar gagn­vart nátt­úru­legu umhverfi okkar. Með því að ein­beita sér að feg­urð­inni í því fundna, sem fær að ganga í end­ur­nýjun líf­daga, von­ast þær til að ná að vekja tíma­bæra virð­ingu fyrir við­kvæmu ástandi hins hrörn­andi heims.

Afdrep

Hvar? Veður og vindur gluggagall­erí
Hvenær? Til 27. júní
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Afdrep eftir Ragn­heiði Sig­urð­ar­dóttur Bjarna­sonar er til­raun til að tjá til­finn­inga­legt lands­lag með því að leita inn á við, fylgja rödd okkar innra barns inn í lendur und­ir­með­vit­und­ar­innar og dagdrauma. Í rým­inu er skapað sér­stakt and­rúms­loft með þar sem hringrás líf­ræns nið­ur­brots og end­ur­bygg­ingar, taktur og seigla nátt­úr­unnar er í fyr­ir­rúmi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár