Íslendingar fastir erlendis: „Okkur langar að komast heim“

Yfir sex þús­und sím­töl og fyr­ir­spurnir hafa borist borg­ara­þjón­ustu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins síð­ustu vikur, meðal ann­ars frá Íslend­ingum sem eru stranda­glópar erlendis. Einn óskaði til að mynda um aðstoð við að finna upp­skrift að fiski­súpu sem hann hafði fengið á Íslandi fyrir nokkrum árum.

Íslendingar fastir erlendis: „Okkur langar að komast heim“
Dætur Birtu og Othman Þær hafa ásamt for­eldrum sínum verið í útgöngu­banni frá 15. mars, en þau dvelja í nálægð við borg­ina Marra­kesh í Marokkó. For­eldr­arnir bíða þess að kom­ast heim til Íslands með þær en gleðj­ast yfir því að hafa garð þar sem dæt­urnar geta leikið sér. Mynd: Úr einkasafni

Enn eru 57 ein­stak­lingar stranda­glópar víða um heim, sem ekki hefur tek­ist að koma aftur heim til Íslands eftir að ferða­tak­mark­anir skullu á vegna covid-19. Þeir voru 211 um mán­aða­mótin mars/apríl en síðan þá hafa tæp­lega 150 manns fengið aðstoð við að kom­ast til lands­ins frá borg­ara­þjón­ustu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Flestir þeirra sem ekki hafa kom­ist heim eru á Spáni en einnig eru ein­stak­lingar í nokkrum ríkjum Afríku, í Mið-Aust­ur­löndum, Austur-Asíu, Suður-Ameríku og víðar. Þetta kemur fram í svari frá Maríu Mjöll Jóns­dóttur, deild­ar­stjóra hjá Utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. 

Á meðal þeirra sem vilja kom­ast heim eru hjónin Birta Árdal Nóra Berg­steins­dóttir og Othman Karoune. Þau hafa verið búsett á víxl á Íslandi og Marrokkó, þaðan sem hann er. Þau eiga fjórar ungar dætur og hafa verið í ströngu útgöngu­banni frá því 15. mars. „Það var björg­un­ar­flug frá Marokkó 17. apríl sem við hefðum getað farið með, en við fengum að vita af því með tveggja daga fyr­ir­vara og það var of margt sem við þurftum að greiða úr til að geta stokkið á það. Við ákváðum því að fara ekki í flugið, enda héldum við að útgöngu­bannið væri við það að klár­ast. Sama dag og flugið fór var hins vegar til­kynnt að það yrði að minnsta kosti mán­uður í við­bót í útgöngu­banni hér,“ segir Birta. Hún bætir þó við að aðrir Íslend­ingar hafi kom­ist að í þeirra stað sem hafi verið gott, því sjálf búi þau við góðar aðstæður, hafi meðal ann­ars garð út af fyrir sig þar sem börnin geta leikið sér.

„En okkur langar að kom­ast heim“ 

Óvissan er hins vegar farin að reyna á, segir Birta, og ekki sér fyrir end­ann á henni. Landa­mær­unum hafi verið lokað 19. mars og síðan hafi ekki verið hægð­ar­leikur að kom­ast úr landi. Af og til séu flug á áætlun en þeim sé alltaf frestað þegar nær dregur brott­far­ar­degi. „Við vitum ekki hvernig þetta verður, hvort við kaupum flug þegar útgöngu­bann­inu lýkur eða hvort það verði yfir höfuð ein­hver flug að hafa þá. Við erum í sam­bandi við danska sendi­ráðið hér og starfs­fólkið þar ætlar að láta okkur vita af það verður flug á þeirra vegum héðan, en það er í raun og veru ólík­legt. Það fer vel um okkur þó það sé að verða ansi heitt, um 40 gráður í dag. En okkur langar að kom­ast heim.“ 

Hjálpuðu elskendum og mataráhugafólki

Frá og með deg­inum í dag, 4. maí, er hefð­bundið snið komið á starf­semi borg­ara­þjón­ust­unnar en hún er opin árið um kring, allan sól­ar­hring­inn. Hlutverk hennar alla jafna er að gæta hags­muna og öryggis Íslend­inga erlendis en að und­an­förnu hefur starf­semin verið mun umgangs­meiri en vana­lega og úrlausn­ar­efni er tengj­ast Covid-19 verið fyr­ir­ferð­ar­mikil. Í það heila hafa um 550 manns í 56 ríkjum fengið úrlausn sinna mála. Yfir átta­tíu manns hafi komið heim með borg­ara­flugum Norð­ur­landa, Eystra­salts­landa og ann­arra Evr­ópu­ríkja, auk þess sem á annað hund­rað manns hafi nýtt sér sér fjögur flug frá Varsjá í mars og apríl, á vegum pól­skra stjórn­valda.

María Mjöll segir að þó að starf­semi sé nú aftur orðin hefð­bundin hjá borg­ara­þjón­ust­unni sé það enn í for­gangi að aðstoða þá sem vilja kom­ast heim. Áfram verði fylgst með stöðu mála og upp­lýs­ingum, ráð­gjöf og aðstoð miðlað til þeirra sem enn þurfa á því að halda. Hún segir að almennt virð­ast að flestir þeirra sem enn eru séu í aðstöðu til að vera áfram erlendis þar til flug­fram­boð eykst að nýju og ferða­tak­mörk­unum verði aflétt.

Borg­ara­þjón­ustan veitti almenna ráð­gjöf í yfir 6 þús­und sím­tölum og tölvu­póstum sem henni bár­ust og þús­undum skila­boða við nær 600 ein­stak­linga í gegnum Facebook. Auk þess var haft beint sam­band að fyrra bragði við 5.750 manns sem skráðir voru erlendis, þar af á þriðja þús­und í síma, til að kanna stöðu þeirra.

María segir að meðal þeirra þús­unda hjálp­ar­beiðna sem borist hafi að und­an­förnu hafi nokkrar eft­ir­minni­legar slæðst með, eins og sú sem barst frá banda­rískum ferða­manni, sem hafði fengið úrlausn sinna mála hjá borg­ara­þjón­ust­unni. „Um leið og hann þakk­aði fyrir sig spurði hann hvort við gætum kannski aðstoðað hann við að hafa uppá upp­skrift að fiski­súpu sem hann hafi fengið á Íslandi fyrir nokkrum árum.“ Vel hafi verið brugð­ist við því og upp­skrift­inni verið flett upp fyrir mann­inn. Þá hafi ást og róm­an­tík oft komið til sög­unnar, enda hafi elskendur, sem staddir voru hvor í sínu land­inu, fengið ráð­gjöf um hvernig þeir gætu náð saman á þessum skrýtnu tímum.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár