Eltur af byssumönnum og leitaði hjálpar hjá fjölskyldu: „Óttinn var ógeðslegur“

Fjöl­skyldu­faðir lýsir því hvernig hann flúði með konu sína og tvo unga syni af leik­velli í Vest­ur­bænum af ótta við vopn­aða menn. Lög­reglan hand­tók menn­ina í gær­kvöldi.

Eltur af byssumönnum og leitaði hjálpar hjá fjölskyldu: „Óttinn var ógeðslegur“
Leik­skól­inn Strák­arnir voru fastir í ról­unum þegar mann­inn bar að garði. Fyrstu við­brögð for­eldr­anna voru að losa þá og koma sér burt.

Tveir menn, vopn­aðir byssu, voru í gær hand­teknir við Þjóð­minja­safnið eftir að lög­reglu barst til­kynn­ing um að þeir hefðu ógnað þriðja mann­inum í Vest­ur­bænum. Maðurinn sem ógnað var leit­aði ásjár hjá fjög­urra manna fjöl­skyldu sem var við leik á lóð leik­skól­ans Drafn­ar­borgar. „Hann spyr hvort við getum hjálpað honum því það séu menn að elta hann, vopn­aðir byssu, og þeir ætli að drepa hann.“ Svona lýsir fjöl­skyldu­fað­ir­inn því þegar mað­ur­inn kom til þeirra og hvernig hann og konan hans flúðu með dreng­ina sína tvo, tveggja og fjög­urra ára, í dauð­ans ofboði.

Fjöl­skyldu­fað­ir­inn, sem vildi ekki að nafn sitt kæmi fram, lýsti því í sam­tali við Stundina hversu óraun­veru­legar og ógn­vekj­andi aðstæð­urnar hefðu verið. „Við vorum á lóð Drafn­ar­borgar í gamla Vest­ur­bænum um kvöld­mat­ar­leytið í gær, ég og konan mín og synir okkar tveir. Strák­arnir voru að róla og við öll mjög glöð í góða veðr­inu. Þá sá ég mann í stutt­erma­bol og jogg­ing­buxum koma hlaup­andi í gegnum garð í næsta nágrenni og hoppa yfir grind­verkið og inn á leik­skóla­lóð­ina.“

Handtóku byssu­mennLög­reglan hand­tók menn­ina tvo við Þjóð­minja­safnið í gær­kvöldi. Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint.

„Hann leit út eins og vofa“

Fjöl­skyldu­fað­ir­inn lýsir því að mað­ur­inn hefði hlaupið í átt til þeirra, náfölur af hræðslu. „Hann leit út eins og vofa. Hann spyr hvort við getum hjálpað honum því það séu menn að elta hann, vopn­aðir byssu, og þeir ætli að drepa hann.“ Við þessar upp­lýs­ingar fóru öll við­vör­un­ar­kerfi af stað og lýsir fað­ir­inn því að sjálfs­bjarg­ar­við­leitni hafi tekið yfir allt. 

„Hann leit út eins og vofa“ 

„Í fyrstu sá ég engan annan en mað­ur­inn var svo hræddur að hann hrein­lega stam­aði, hann ótt­að­ist svo um eigið öryggi. Strák­arnir voru ennþá fastir í ról­unum og við hlupum til að losa þá og koma þeim af lóð­inni og í burtu. Konan mín hljóp í burtu með annan strák­inn og ég tók hinn. Ég velti fyrir mér í smá stund hvort mað­ur­inn væri bara eitt­hvað veikur en þá horfði hann djúpt á mig og ég sá að hann var ekki á lyfjum eða neinu slíku, hann var bara í hræðslu­losti. Þá komst ég bara á eitt­hvað við­vör­un­ar­stig og átt­aði mig á for­gangs­mál væri að tryggja öryggi okkar og barn­anna. Þetta var mjög erfið upp­lifun.“

Kom óvænt inn á lóð­ina Maðurinn stökk yfir grind­verkið og leit­aði hjálpar hjá fjöl­skyld­unni. Hann var svo hræddur að hann var náfölur og stam­aði.

Flúðu í ofboði með unga syni sína

Fjöl­skyldu­fað­ir­inn lýsir því að mað­ur­inn hafi reynt að fela sig upp við leik­skóla­bygg­ing­una og hringt sím­tal sem virt­ist vera við ein­hvern honum tengdan. Faðirinn hafi hins vegar skipað honum að leggja á og hringja á Neyð­ar­lín­una sem hann hafi gert. 

„Hann spurði ítrekað hvort ein­hver væri að koma. Óttinn var ógeðs­legur. Við komum okkur af frá leik­skól­anum, drösl­uðum hjólum og dót­inu okkar með okkur en samt vorum við furðu skýr í þessum aðstæðum. Maðurinn reyndi að elta okkur en ég sagði honum að það gæti hann ekki gert, við yrðum að koma strák­unum okkar í burtu.“

„Við vissum ekk­ert um örlög manns­ins, það var það erf­ið­asta“

Fjöl­skyldan var kom­inn all­nokkurn spöl í burtu þegar að sírenur byrj­uðu að óma um hverfið. Þá vissu þau ekki hvað hefði orðið af mann­inum og voru í áfalli vegna þessa atburðar, þótt drengirnir væru eins og þeir eiga að sér að vera. „Við vissum ekk­ert um örlög manns­ins, það var það erf­ið­asta. Hann var af erlendum upp­runa og í höfð­inu fór ég í gegnum ótal margar hugs­anir um aðstæður þessa manns í fyrra lífi, við hvers konar aðstæður hann hefði búið og hvort að þetta væru hugs­an­lega afleið­ingar af ein­hverju slíku. Hvort hann væri kannski frá ein­hverju því svæði sem hefðu verið þjökuð af stríðs­á­tökum og þjáð­ist af áfallastreituröskun.“

Fjöl­skyldu­fað­ir­inn segir að gær­kvöldið hafi farið í að fylgj­ast með frétta­miðlum og púsla saman atburða­rásinni og það hafi verið mik­ill léttir þegar ljóst var að eng­inn hafi meiðst og menn­irnir sem stóðu að hót­un­unum hafi náðst. 

Lög­reglan fékk til­kynn­ingu um málið um klukkan sjö í gær­kvöldi og kom á stað­inn, auk þess sem sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra var kölluð út. Á Facebook-síð­unni Vest­ur­bær­inn er greint frá því að fólk hafi orðið vitni að því þegar maður, vopn­aður hagla­byssu, gekk í skrokk á öðrum manni á Holts­götu. Eftir því sem vitni greindu Stund­inni frá munu menn­irnir tveir hafa farið af vett­vangi í hvítum fólks­bíl en verið hand­teknir við Þjóð­minja­safnið. Þeir eru báðir um þrí­tugt. Lagt var hald á vopnið við hand­töku. Mun engan hafa sakað að sögn lög­reglu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár