Endurtekin skemmdarverk unnin á listaverki í Vesturbænum

Málað yfir og krotað á stóra vegg­mynd af borg­ar­lands­lag­inu á grind­verki við Hofs­valla­götu. Talið er að sama kona hafi staðið fyrir skemmd­ar­verk­unum í bæði skiptin. Eigendur hyggj­ast kæra fyrir eigna­spjöll.

Endurtekin skemmdarverk unnin á listaverki í Vesturbænum
Krotað á lista­verk í tvígang Juan Pictures, til vinstri, var í fyrra­dag mættur til að laga skemmd­irnar frá því á annan í páskum. Fram­haldið, nú eftir að aftur hafa verið unnar skemmdir á lista­verk­inu, er óljóst. Mynd: Úr einkasafni

Í tvígang á stuttum tíma hafa verið unnin skemmd­ar­verk á vegg­lista­verki sem er málað á grind­verk sem stendur við Hofs­valla­götu í Vesturbæ Reykja­víkur. Skemmd­ar­verk voru unnin á mynd­inni á annan í páskum og aftur um hádeg­is­bil í dag, eftir að lista­mað­ur­inn sem upp­haf­lega mál­aði mynd­ina hafði komið og lag­fært fyrri skemmdir. Eftir því sem vitni segja hefur sama kona verið að verki í bæði skiptin. Ekki er vitað hvað henni gengur til með skemmd­ar­verk­unum. 

Döpur yfir skemmd­ar­verk­unumÓlöf segir að lista­mað­ur­inn, Juan Pictures, stjórni fram­haldi máls­ins og hvort verkið verði lagað á ný.

Ólöf Magn­ús­dóttir býr í og er eig­andi að hús­inu sem grind­verkið til­heyrir og þar með eig­andi að grind­verk­inu. Hún segir að eig­endur hygg­ist nú leggja fram kæru vegna eigna­spjalla.  „Síðast vildum við það ekki af því að við vorum að vona að þetta væri búið.“ Lög­reglan hafði tal af kon­unni sem stóð að skemmd­ar­verk­unum eftir fyrra atvikið og veit því um hverja er að ræða.

Verkið hefur staðið á þessum stað um nokk­urt skeið og almennt þótt til mik­illar prýði. Það er unnið af lista­mann­inum Juan Pictures í sam­ráði við eig­endur grind­verks­ins. „Verkið kom þannig til að ég aug­lýsti eftir því hvort ein­hver vildi gera verk á vegg­inn og á saman tíma var hann að aug­lýsa eftir vegg til að gera verk á.  Við borg­uðum efnið og sáum um alla und­ir­vinnu og tókum þátt í hug­mynda­vinnu en verkið er hans. Það er því hans að ákveða næstu skref,“ segir Ólöf. Til stóð að Juan myndi koma í dag til að klára síð­ustu smá­at­riðin í við­gerð eftir fyrri skemmd­ar­verkin en ein­hverjar breyt­ingar verða þar á. 

Sérstaklega ráðist að Hallgrímskirkju

Athygli hefur vakið að í bæði skiptin sem verkið hefur verið skemmt hefur mynd af Hall­gríms­kirkju verið sér­stakur skot­spónn. Ólöf bendir á að Hall­gríms­kirkja sé hluti af mynd­verk­inu vegna stöðu hennar í arki­tektúr og borg­ar­lands­lagi Reykja­víkur. „Hugsunin á bak við verkið var að blanda saman ólíkum menn­ing­ar­heimum.  Við erum með borg­ar­lands­lagið og við erum með tölvu­leikja­heim og við erum með grafítí og við erum að færa íslenskan sam­tíma inn í tölvu­leik sem líka brúar kyn­slóða­bil. Kirkjan er þarna ekki sem trú­ar­legt tákn heldur sem virð­ing­ar­vottur við Guðjón Sam­ú­els­son sem var mjög virkur þáttak­andi í skipu­lagn­ingu Vest­ur­bæj­ar­ins, og hann­aði til að mynda Verka­manna­bú­stað­ina beint á móti, svo dæmi séu nefnd.“

„Kirkjan er þarna ekki sem trú­ar­legt tákn heldur sem virð­ing­ar­vottur við Guðjón Sam­ú­els­son“

Ólöf segir að það sé mjög dap­ur­legt að þurfa að horfa upp á svona skemmd­ar­verk, hvað þá ítrekað. Mikill stuðn­ingur hefur birst í Facebook-hópnum Vest­ur­bær­inn vegna máls­ins og Ólöf segir gott að finna fyrir því. „Þetta er mjög áber­andi veggur og það að við settum verk á vegg­inn var alltaf að fara að fara að breyta þessu verki í sam­eign.  Það sem mér finnst dásam­legt í þessu er að sjá hversu fljótt þetta verk hefur orðið að ein­hverju sem við í hverf­inu eigum saman og hvað fólk af ólíkum kyn­slóðum tengir við það. Ég held að ég og við séum bara jafn döpur og aðrir í hverf­inu yfir þessum skemmd­ar­verkum.“

Hall­gríms­kirkja skemmdSvo virð­ist sem skemmd­ar­varg­ur­inn beri í brjósti andúð í garð Hall­gríms­kirkju en hún var einnig skemmd í fyrra skiptið.



Tölu­verðar skemmdirÍ tvígang á und­an­förnum dögum hafa verið unnar skemmdir á vegg­lista­verk­inu sem stendur á grind­verki við Hofs­valla­götu.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár