Sandra Líf fannst látin

Eftir þriggja daga leit fannst Sandra Líf Þór­ar­ins­dóttir Long látin í fjör­unni á Álfta­nesi.

Sandra Líf fannst látin

26 ára gömul kona, Sandra Líf Þór­ar­ins­dóttir Long, sem leitað hefur verið að frá því aðfara­nótt laug­ar­dags, fannst látin í fjör­unni á Álfta­nesi í dag, skammt frá upp­hafs­stað leitar að henni um helg­ina.

Sandra var búsett í Hafn­ar­firði.

Í til­kynn­ingu frá lög­reglu segir að fjöl­skylda hennar þakki þeim sem leit­uðu að henni. „Fjöl­skylda hennar vill koma á fram­færi þakk­læti til allra þeirra sem veittu aðstoð við leit­ina.“

Fyrst var lýst eftir Söndru laug­ar­dag­inn 11. apríl síð­ast­lið­inn. „Ekki er talið að and­lát hennar hafi borið að með sak­næmum hætti,“ segir í til­kynn­ingu lög­reglu.

Sandra Líf bjó í Setbergi í Hafn­ar­firði og sýndi mynd­band hana fara úr íbúð sinni á fimmtu­dags­kvöld. Hún stund­aði nám í þjóð­fræði við Háskóla Íslands og starf­aði sem þjónn með­fram námi. Áður en hún hvarf hafði hún farið í hádeg­is­mat til ömmu sinnar og afa, sem þótti ekk­ert athuga­vert í fari hennar. Þá hitti hún vin­konu sína, sem tók ekki eftir neinu óeðli­legu í fari hennar.

„Það eina sem við vitum er að hún keyrir inn á Álftanes um klukkan sjö á skír­dag,“ sagði Olga María Þór­halls­dóttir Long, frænka hennar, í sam­tali við Vísi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár