Þorgrímur Þráinsson ræðir um læsi

Stund­in send­ir út menn­ing­ar­við­burði á veg­um Menn­ing­ar­hús­anna í Kópa­vogi á með­an sam­komu­banni stend­ur. Í dag fjallar Þor­grímur Þrá­ins­son um mik­il­vægi lest­urs, hreyf­ingar, svefns og matar­æðis. Útsend­ingin hefst klukkan 13.

Stundin mun á næstu vikum senda út menn­ing­ar­við­burði í sam­starfi við Menn­ing­ar­húsin í Kópavogi. Við­burð­irnir verða haldnir klukkan 13 á mánu­dögum, mið­viku­dögum og föstu­dögum á meðan sam­komu­banni stendur vegna COVID-19 heims­far­ald­urs­ins. Hægt verður að sjá við­burð­ina á for­síðu Stund­ar­innar, á Facebook-síðu Stund­ar­innar og Facebook-síðu Menn­ing­ar­hús­anna í Kópavogi.

Meðal þeirra sem koma fram í við­burða­röð­inni eru Sævar Helgi Bragason stjörnu­fræð­ingur, Gerður Kristný skáld,  Jógvan, Matti Matt, Vignir Snær, Ragna Fróða­dóttir, Andri Snær Magnason rit­höf­undur, Sig­ur­björn Bern­harðs­son, Halla Oddný, Þor­grímur Þrá­ins­son, Elín Björk Jón­as­dóttir, Einar Falur, Kordo kvar­tett­inn og Hrönn Egils­dóttir.

Í dag fjallar Þor­grímur Þrá­ins­son um mik­il­vægi lest­urs, hreyf­ingar, svefns og matar­æðis. Útsend­ingin hefst klukkan 13. Streymi af við­burð­inum verður birt í þess­ari frétt og á fyrr­greindum Facebook-síðum ásamt for­síðu Stund­ar­innar. Þá verður upp­taka til­tæk á sömu stöðum í kjöl­farið.

Eft­ir­far­andi er til­kynn­ing frá menn­ing­ar­hús­unum í Kópavogi um við­burð­inn:

Kúltúr klukkan 13 | Þor­grímur Þrá­ins­son

Þor­grímur Þrá­ins­son ræðir um læsi í Kúltúr klukkan 13 mið­viku­dag­inn 8. apríl. Læsi er eitt mik­il­væg­asta lýð­heilsu­mál þjóð­ar­innar. Ef börn ná tökum á læsi, eflist sjálfs­mynd þeirra, árangur í skóla batnar og börnin ná tökum á sjálfum sér. Ein mik­il­væg­asta glíma lífs­ins er glíman við mann sjálfan og reglu­lega stöndum við frammi fyrir mik­il­vægum áskor­unum. 

Þor­grímur Þráins fjallar um mik­il­vægi lest­urs, hreyf­ingar, svefns og matar­æðis. Hann er sjálfur þriggja barna faðir og seg­ist hafa gert fjölda mis­taka í upp­eld­is­málum. Og lært af þeim. 

Þor­grímur Þrá­ins­son var fyrrum lands­liðs­maður í fót­bolta og hefur starfað með lið­inu síð­ast­liðin 13 ár. Þá hefur hann verið tengdur for­varna­starfi í lið­lega 30 ár og síð­ast­liðin 12 ár hefur hann heim­sótt alla skóla á land­inu, árlega, og flutt fyr­ir­lest­ur­inn; Verum ást­fangin af líf­inu fyrir nem­endur í 10. bekk. Að auki hefur hann skrifað 38 bækur, flestar fyrir börn og ung­menni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kúltúr klukkan 13

MenningKúltúr klukkan 13

Gerð­ar­Stundin klukkan 13: Mósaík úr mat­vælum

Stund­in send­ir út menn­ing­ar­við­burði á veg­um Menn­ing­ar­hús­anna í Kópa­vogi á með­an sam­komu­banni stend­ur. Í dag verð­ur þriðja Gerð­ar­Stund­in send út frá Gerð­arsafni þar sem mynd­list­ar­menn­irn­ir Berg­ur Thom­as And­er­son, Logi Leó Gunn­ars­son og Una Mar­grét Árna­dótt­ir leiða skap­andi fjöl­skyldu­smiðju í Stúd­íói Gerð­ar. Út­send­ing­in hefst klukk­an 13.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár