Fór í frí og kemst ekki heim til sín

Guð­mundur Ingi Jónsson alþjóða­við­skipta­fræð­ingur býr í borg­inni Haimen í Jinangsu-hér­aði á aust­ur­strönd Kína. Hann fór þaðan til Fil­ipps­eyja um miðjan jan­úar, í það sem átti að vera stutt frí, en vegna ýmissa ferða­tak­mark­ana vegna COVID-19 far­ald­urs­ins hefur hann ekki kom­ist til síns heima og dvelur nú í Taílandi. Þar í landi tók útgöngu­bann gildi í gær.

Fór í frí og kemst ekki heim til sín
Ströndin í Hua Hin í Taílandi Fáir eru á ferli á strönd­inni, sem að öllu jöfnu iðar af lífi og fjöri. Útgöngu­bann gekk í gildi í Taílandi í dag. Mynd: Guðmundur Ingi Jónsson

Guð­mundur Ingi Jónsson alþjóða­við­skipta­fræð­ingur hefur um tveggja ára skeið verið búsettur í borg­inni Haimen í Jiangsu-hér­aði á aust­ur­strönd Kína þar sem hann kennir hag­fræði og við­skipta­tengdar greinar. Hann fór þaðan til Fil­ipps­eyja um miðjan jan­úar, í það sem átti að vera stutt frí.  Síðan þá hafa verið settar ýmsar ferða­tak­mark­anir til og frá Kína vegna útbreiðslu COVID-19 far­ald­urs­ins og Guð­mundur, sem hefur fært sig um set til Taílands, hefur ekki enn kom­ist heim til sín og alls óvíst er hvenær af því verður.

Í dag gekk í gildi útgöngu­bann á Taílandi vegna far­ald­urs­ins og þar er nú ein­göngu veitt nauð­syn­leg þjón­usta.

Ströndin í Hua Hin í TaílandiÞar sjást fáir á ferli. Útgöngu­bann sem nær yfir hluta sól­ar­hrings­ins tók gildi í land­inu í dag.

„Ég er í strandbæ sem heitir Hua Hin, það er heil­mik­ill Tenerife bragur hér og hingað kemur mikið af fólki frá Norð­ur­lönd­unum,“ svarar Guð­mundur spurður hvar hann sé.

Þar hefur hann verið und­an­farnar fimm vikur og hefur getað sinnt starfi sínu í fjar­vinnu hingað til, enda var skól­anum sem hann starfar við lokað um tíma og fjar­kennsla tekin upp. 

Hefði þurft að fara í langa sóttkví á vegum yfirvalda 

Að störfumGuð­mundur Ingi hefur getað sinnt störfum sínum í Kína frá Taílandi í gegnum fjar­funda­búnað.

Hann segir að hann hafi valið að snúa ekki aftur til Kína að svo stöddu sé að þeir, sem koma inn í landið, þurfi að fara í nokk­urra vikna sótt­kví, stundum fleiri en eina, í hús­næði eða hót­eli á vegum hins opin­bera. „Það er tals­vert annað fyr­ir­komu­lag á þessum málum í Kína en til dæmis í Evrópu. Skólinn sem ég kenni við hefði fyrst sett mig í sótt­kví og síðan hefðu yfir­völd einnig gert það. Ég þekki dæmi um útlend­inga sem búa í Kína og hafa þurft að vera í sótt­kví á gisti­heim­ilum eða hót­elum á vegum rík­is­ins í margar vikur á eigin kostnað.“

Þegar til­kynnt var að skól­inn sem hann starfar við yrði opn­aður á nýjan leik um mán­aða­mótin ákvað hann engu að síður að snúa aftur til Kína. Hann hugði á þá ferð um síð­ustu helgi, en tveimur dögum áður en hann ætl­aði að láta verða af því var lokað fyrir allar komur útlend­inga til lands­ins. Guð­mundur hefur búið og starfað í Kína í nokkur ár, en hann segir að það skipti engu máli í þessu sam­bandi.

Sagt vera útlendingum að kenna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár