Spenna eykst meðal utangarðsfólks

Fólk lýsir auknum fjölda úti­gangs­manna og ógn­andi hegðun þeirra í mið­borg Reykja­víkur. Lögregla hefur þó ekki fengið fleiri mál inn á borð til sín en kann­ast við áhyggjur af auknu erg­elsi. Deild­ar­stjóri hjá Reykja­vík­ur­borg segir þörf á mun fleiri með­ferð­ar­úr­ræðum en séu í boði.

Spenna eykst meðal utangarðsfólks
Aukinn sýni­leiki Utan­garðs­fólki í Reykja­vík hefur ekki fjölgað en mögu­lega ber meira á því nú á meðan sam­komu­bann ríkir. Mynd: Davíð Þór

Upplifun fólks um að fjöldi úti­gangs­manna hafi auk­ist og aukna hörku af þeirra hálfu í mið­borg Reykja­víkur, nú í miðjum COVID-19 far­aldr­inum, sam­rým­ist ekki upp­lifun þeirra sem sinna mál­efnum heim­ils­lauss fólks hjá Reykja­vík­ur­borg. Þá hefur lög­reglan ekki þurft að hafa aukin afskipti af þessum hópi. Hins vegar er fólk sam­mála um að ekki megi mikið út af bregða í þjón­ustu við þennan hóp því fólk merkir aukið erg­elsi í þeirra röðum. Er þar helst um að kenna skertu aðgengi að fíkni­efnum og almennu óör­yggi vegna kór­óna­veiru­far­ald­urs­ins. 

Á sam­fé­lags­miðlum hefur verið uppi umræða þar sem fólk hefur lýst áhyggjum sínum af breyttri stemn­ingu meðal heim­il­is­lauss fólks í mið­borg­inni. Meira beri á því, það sé ógn­andi við aðra veg­far­endur og til­raunir til inn­brota séu tíð­ari en verið hefur.

„Ég held nú ekki að þeim sé að fjölga heldur séu þeir kannski bara sýni­legri“

Bragi Skafta­son, einn eig­enda Vín­stúkunnar Tíu sopa lýsti þannig á Facebook að hann upp­lifði það sem svo að hann yrði meira var við ógæfu­menn á göt­unum, þeir virk­uðu margir hverjir býsna hátt uppi og hann upp­lifði þá marga hverja hættu­lega. „Upplifun mín síð­ustu daga og nú síð­ast í kvöld er ein­fald­lega sú að þessir grey menn eru út um allt núna, ógn­andi fólki og ger­andi til­raunir til inn­brota hvar­vetna,“ skrif­aði Bragi og fleiri tóku undir í umræðum. 

Jóhann Karl Þórisson aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn hjá Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir að þeir sem sinni þessum hópi hafi rætt um það við lög­reglu að þau merki aukið erg­elsi hjá sumum sem telj­ast til þessa hóps. Einhver þurrð sé að verða á fíkni­efna­mark­aði og það hafi áhrif. „Ég held nú ekki að þeim sé að fjölga heldur séu þeir kannski bara sýni­legri því það er færra fólk í bænum. Við svo sem höfum ekki beint fengið erindi út af þessu, útköllum hefur ekki fjölgað, en við höfum heyrt af áhyggjum vegna þess að það virki sem svo að það sé styttri þráður hjá ýmsum.“

Skert aðgengi að fíkniefnum hefur áhrif

Hrafn­hild­ur Ólöf Ólafs­dótt­ir er deild­ar­stjóri yfir mál­efn­um heim­il­is­lausra með fjöl­þætt­an vanda hjá borg­inni. Hún segir að þó ekki megi gera lítið úr upp­lifun fólks virð­ist þeim sem starfa við mála­flokk­inn ekki sem svo að meira beri á ógn­andi til­burðum eða afbrotum. Hins vegar merki þau ákveðna óþreyju og spennu meðal sinna skjól­stæð­inga.

„Við finnum fyrir því að það er skert aðgengi að fíkni­efnum og verð á þeim virð­ist hærra, sem hefur áhrif á þennan hóp þar sem stór hluti þeirra á við vímu­efna­vanda að etja. Það er líka skert aðgengi að ýmissi þjón­ustu, á meðan að á sam­komu­banni stendur, eins og mat­ar­út­hlut­unum svo dæmi séu tekin. Það er einnig veru­lega skert aðgengi að öllum með­ferðum, við höfum til að mynda miklar áhyggjur af ótryggri stöðu innan SÁÁ. Það er auk­inn vilji af hálfu okkar fólks til að kom­ast í með­ferðir, bæði frá­hvarfs­með­ferðir en eins afvötnun og við fáum fleiri beiðnir þar um. Þess vegna er mikil þörf á auknu aðgengi að við­halds­með­ferðum og frá­hvarfs­með­ferðum og við myndum vilja sjá heibrigð­is­yf­ir­völd bregð­ast við því. Þessi hópur upp­lifir kvíða og van­líðan í þessu ástandi eins og aðrir, og jafn­vel meira.“

„Það er því almennt góð stemn­ing þar og bæði starfs­fólk og gestir upp­lifa sig örugg í skýl­unum“

Hrafn­hildur segir að mikið hafi verið gert til að reyna að bregð­ast við kór­óna­veiru­far­aldr­inum og því hvernig hann hitti þennan hóp fyrir. Unnið hafi verið að því að auka við pláss, þannig hafi nýtt hús­næði verið tekið í notkun úti á Granda og tek­ist hafi að fækka þeim konum sem að jafn­aði dvelja í Konukoti með því að finna þeim skjól ann­ars staðar. „Við höfum opnað neyð­ar­skýlin allan sól­ar­hring­inn og bætt þar við alla þjón­ustu, skipu­lagt allt út frá leið­bein­ingum land­læknis og sótt­varn­ar­læknis. Það er því almennt góð stemn­ing þar og bæði starfs­fólk og gestir upp­lifa sig örugg í skýl­unum. En það er auð­vitað þannig að hóp­ur­inn er mjög fjöl­breyttur, sem nýtir þessa þjón­ustu, og sumir vilja ekki dvelja í neyð­ar­skýl­unum yfir dag­inn. Mögulega ber meira á þeim sökum þess að færra fólk er á ferli í mið­borg­inni en þeim hefur ekki fjölgað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár