Landhelgisgæslan varar við hafís sem nálgast landið

Stífar norð­an­áttir færa með sér hafís suður á bóg­inn.

Landhelgisgæslan varar við hafís sem nálgast landið
Skip­verji fylgist með Hafísinn var skammt utan við Halamið út af Vest­fjörðum, í gær. Mynd: Landhelgisgæslan

„Land­helg­is­gæslan varar við hafís undan Vest­fjörðum,“ segir í við­vörun um hafís, „lands­ins forna fjanda“, sem Land­helg­is­gæslan taldi að gæti rekið hratt að landi. Hafísinn var næst landi um 43 sjó­mílur norð­vestur af Straum­nesi á Vest­fjörðum í gær klukkan 16. 

„Veður og vindar voru með þeim hætti Land­helg­is­gæsl­unni þótti lík­legt að hafís væri á svæð­inu og gæti rekið hratt að landi,“ segir í til­kynn­ing­unni. 

Vonsku­veður er á svæð­inu, eins og á land­inu öllu. Gul við­vörun er í gildi í dag vegna veð­urs á Vest­fjörðum, Norð­vest­ur­landi og Norð­ur­landi eystra. Það verður élja­gangur eða snjó­koma með skafrenn­ingi, lélegt skyggni og erfið akst­urs­skil­yrði.

Næstu daga er spáð stífum norð­an­áttum með köflum og köldu veðri. Horfur eru á snjó­komu næstu helgi, en í næstu viku gæti hlýnað.

Skip­verjar á varð­skip­inu Þór komu auga á haf­ís­inn, sem var rétt utan við hin feng­sælu Halamið. Haft er eftir Halldóri Nellett, skip­verja á Þór, að ísinn sé tættur. Hann reki hratt til suðsuð­vest­urs og sjá­ist illa á rat­sjá. Finna má íshrafl og ísmola utan svæð­is­ins sem kort­lagt var af Land­helg­is­gæsl­unni.

Nánari upp­lýs­ingar fyrir sjó­far­endur hér.

HafísinnHér sést ísinn út úr brúnni á Þór.
Kort­lagn­ing íss­insHafísinn rekur í suðsuð­vestur og var ótt­ast að hann gæti borið hratt að landi.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár