Halla Oddný og Gerður Kristný á Bókasafni Kópavogs

Stund­in send­ir út menn­ing­ar­við­burði á veg­um Menn­ing­ar­hús­anna í Kópa­vogi á með­an sam­komu­banni stend­ur. Í þess­ari útsend­ingu spjallar Halla Oddný Magn­ús­dóttir fjöl­miðla­kona við Gerði Kristnýju skáld á Bóka­safni Kópavogs. Út­send­ing­in hefst klukk­an 13.

Stundin mun á næstu vikum senda út menn­ing­ar­við­burði í sam­starfi við Menn­ing­ar­húsin í Kópavogi. Við­burð­irnir verða haldnir klukkan 13 á mánu­dögum, mið­viku­dögum og föstu­dögum á meðan sam­komu­banni stendur vegna COVID-19 heims­far­ald­urs­ins. Hægt verður að sjá við­burð­ina á for­síðu Stund­ar­innar, á Facebook-síðu Stund­ar­innar og Facebook-síðu Menn­ing­ar­hús­anna í Kópavogi.

Meðal þeirra sem koma fram í við­burða­röð­inni eru Sævar Helgi Bragason stjörnu­fræð­ingur, Gerður Kristný skáld,  Jógvan, Matti Matt, Vignir Snær, Ragna Fróða­dóttir, Andri Snær Magnason rit­höf­undur, Sig­ur­björn Bern­harðs­son, Halla Oddný, Þor­grímur Þrá­ins­son, Elín Björk Jón­as­dóttir, Einar Falur, Kordo kvar­tett­inn og Hrönn Egils­dóttir.

Í þess­ari útsend­ingu spjallar Halla Oddný Magn­ús­dóttir fjöl­miðla­kona við Gerði Kristnýju skáld á Bóka­safni Kópavogs. Út­send­ing­in hefst klukk­an 13. Streymi af við­burð­inum verður birt í þess­ari frétt og á fyrr­greindum Facebook-síðum ásamt for­síðu Stund­ar­innar. Þá verður upp­taka til­tæk á sömu stöðum í kjöl­farið.

Eft­ir­far­andi er til­kynn­ing frá menn­ing­ar­hús­unum í Kópavogi um við­burð­inn:

Halla Oddný fjöl­miðla­kona spjallar við Gerði Kristnýju skáld á Bóka­safni Kópavogs mánu­dag­inn 30. Mars í vef-við­burð­ar­liðnum Kúltúr klukkan 13. 

Gerður Kristný segir frá einum fremsta rit­höf­undi Norð­ur­land­anna Per Olov Enquist og verkum hans, aðal­lega Bóka­safni Nemós skip­stjóra sem kom út á Íslandi árið 1993. Einnig verður sagt frá því þegar Enquist reyndi að ráða bug á áfeng­is­púk­anum í með­ferð hér á landi en lagði þaðan á flótta á sokka­leist­unum.

Gerður Kristný er afkasta­mik­ill rit­höf­undur og ljóð­skáld en hún hefur bæði skrifað fyrir börn sem og full­orðna. Hún hefur auk þess unnið við fjöl­miðlun og tekur virkan þátt  í þjóð­fé­lags­um­ræð­unni þar sem hún sér jafnan spaugi­legar hliðar á mál­efnum sem eru efst á baugi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kúltúr klukkan 13

GerðarStundin klukkan 13: Mósaík úr matvælum
MenningKúltúr klukkan 13

Gerð­ar­Stundin klukkan 13: Mósaík úr mat­vælum

Stund­in send­ir út menn­ing­ar­við­burði á veg­um Menn­ing­ar­hús­anna í Kópa­vogi á með­an sam­komu­banni stend­ur. Í dag verð­ur þriðja Gerð­ar­Stund­in send út frá Gerð­arsafni þar sem mynd­list­ar­menn­irn­ir Berg­ur Thom­as And­er­son, Logi Leó Gunn­ars­son og Una Mar­grét Árna­dótt­ir leiða skap­andi fjöl­skyldu­smiðju í Stúd­íói Gerð­ar. Út­send­ing­in hefst klukk­an 13.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár