„Ég er lífhrædd í fyrsta sinn á ævinni“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir biður fólk um að fylgja fyr­ir­mælum almanna­varna. Sjálf fór hún út á land með fjöl­skyld­una, til að forð­ast návígi við annað fólk.

„Ég er lífhrædd í fyrsta sinn á ævinni“

„Ég er líf­hrædd í fyrsta sinn á ævinni,“ skrifar Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir, um leið og hún biður fólk um að fara var­lega og fylgja fyr­ir­mælum almanna­varna. 

„Það er í mér beygur og ég get ekki vel skýrt af hverju hann stafar. Mér líður ekk­ert ósvipað og síð­ustu mán­uð­ina sem Stefán lifði. Þegar maður vissi að það var enga stjórn hægt að hafa á fram­gangi mála, allt færi á versta veg.“ 

Eftir frá­fall Stefáns sé hún með­vituð um að yngstu börnin eigi bara eitt for­eldri og því mik­il­vægt að hún standi upp­rétt eitt­hvað aðeins lengur. Fjöl­skyldan er nú í sjálf­skip­aðri sótt­kví úti á landi, þar sem hún ákvað að taka börnin úr skóla og fara nær nátt­úr­unni. Hún seg­ist finna fyrir eirð­ar­leysi gagn­vart aðstæðum, en þakkar fyrir að þau séu öll hraust. 

Nú sé það skylda okkar allra að gæta að heil­brigði okkar nán­ustu. Allir þeir sem kom­ist heil­brigðir í gegnum næstu vikur geri sam­fé­lag­inu mikið gagn. Því sé það skylda okkar að virða sam­komu­bann og gæta þess eins og kostur er að smit­ast ekki, eða smita aðra.

„Það var rauna­legt að horfa á Víði á fund­inum í dag þar sem hann var for­viða á hegðun fólks og íþrótta­fé­laga sem hundsa sam­komu­bann. Við eigum að vera for­viða líka. Að fylgja þessum fyr­ir­mælum er nú það minnsta sem við getum gert fyrir sam­fé­lagið okkar.“ 

Fólk mun veikjast

Pistill hennar er birtur í heild sinni hér að neðan. 

Það er í mér beygur og ég get ekki vel skýrt af hverju hann stafar. Mér líður ekk­ert ósvipað og síð­ustu mán­uð­ina sem Stefán lifði. Þegar maður vissi að það var enga stjórn hægt að hafa á fram­gangi mála, allt færi á versta veg. Nú kann ein­hver að segja að ég sé svart­sýn og kannski tak­ist íslenskum stjórn­völdum að hafa hemil á veiru­skratt­anum með ákvörð­unum sínum. En eftir stendur að fólk mun veikj­ast mikið og deyja hér á Íslandi af völdum Covid-19 og það mun snerta okkur öll. Það mun auka á kvíða okkar þegar fólk fer að týn­ast af sjón­ar­svið­inu. Jafnvel þótt við þekkjum við­kom­andi ekki neitt.

Ég er líf­hrædd í fyrsta sinn á ævinni og kann því illa, hef lifað í frjálsu falli óhrædd við allt og alla fram á þennan dag. Núna er ég afar með­vituð um það að börnin mín yngstu eiga bara eitt for­eldri og að það er mik­il­vægt að ég standi upp­rétt eitt­hvað aðeins lengur.

Ég haga mér eins og áður þegar ég hef ekki ráðið neitt við neitt, dálítið eirð­ar­laus, bjástra mikið við eitt og annað mis­gagn­legt, tek til, blessa upp­vaskið og viss­una um það að vinnan göfgar mann­inn og að aðgerða­leysi er kvíða­vald­andi. Ég fylgist með fréttum og ekki bara inn­lendum fréttum og fyr­ir­mælum fram­varð­ar­sveit­ar­innar heldur reyni ég að lesa mér til um ástandið víða um heim og sjúk­dóm­inn eins mikið og mér er unnt. Mér líður betur þegar mér finnst ég hafa kynnt mér eitt­hvað sjálf og mér lýst sann­ar­lega ekk­ert á blik­una og skynja að auki áþreif­an­lega van­mátt fram­varð­ar­sveit­ar­innar hug­prúðu. Þau eru að gera sitt besta og aug­ljós­lega afbragðs­fólk en þau eru hvorki spá­menn né töfra­menn þótt þau reyni að feta vand­ratað ein­stigi upp­lýs­ingar og kvíða­stjórn­unar.

„Haldið ykkur frá öðru fólki en frískum fjöl­skyldu­með­limum ef þess er nokkur kostur“

En hvað getum við sjálf gert? Tilmæli til fólks eru all­staðar þau sömu. Gætið ykkar með einu ráðunum sem í boði eru: Haldið ykkur frá öðru fólki en frískum fjöl­skyldu­með­limum ef þess er nokkur kostur. Og það gefur okkur öllum til­gang í þess­ari bar­áttu að gera einmitt það.

Ég hlusta eftir inn­sæi mínu og eðl­is­á­vísun sem sagði mér að þrátt fyrir að skólar standi opnir að það væri skyn­sam­legt að taka börnin mín úr skóla og tak­marka umgengni þeirra við önnur börn til að minnka smit­hættu og fyrst við hefðum tök á því að fara út á land ættum við að gera það.

Eitthvað sagði mér að sam­veran gæti orðið bæri­legri og fjöl­breytt­ari þar sem hægt er að vera úti í nátt­úr­unni. Nú erum við í sjálf­skip­aðri sótt­kví því ekki viljum við eiga það á hættu að smita sveit­unga af Covid19 ef ske kynni að við hefðum nú þegar smit­ast sem ég veit ekk­ert um.

Ég veit að ég hef það gott að geta gert þetta og að líða vel með fólk­inu mínu. Það eru ekki nándar nærri allir sem líður vel heima hjá sér eða með sínum næst­stand­andi.

Það tekur á taug­arnar að vera heima með börn­unum sínum öllum stundum, þeim finnst ég heldur leið­in­legur kenn­ari og ég sting ekki upp á nógu skemmti­legum hlutum. Ég reyni eins og ég get að van­þakka ekki óþreyj­una og pirr­ing­inn í börn­unum, maður verður víst nógu fljótt gam­all og einn. Það er ekk­ert auð­velt fyrir börn að vera svipt frelsi sínu. Og mikið vildi ég að ég byggi yfir meira æðru­leysi og gæti hamið skap mitt betur.

En börnin eru hraust og ég og elskan mín líka. Það er mik­ils virði. Best er sæta lagi og gera eitt­hvað fyrir sjálfan sig þegar börnin hafa fundið eitt­hvað að bauka við af sjálfs­dáðum.

Ég held ekki að við getum flúið flens­una, flensan snertir senni­lega flesta lands­menn fyrir rest en ég veit hins­vegar að í hönd ganga afar erf­iðar vikur á Íslandi þar sem heil­brigð­is­kerfið verður reynt til þrautar og mér finnst að skylda okkar allra að gæta heil­brigðis okkar nán­ustu. Því allir sem kom­ast heil­brigðir í gegnum næstu vikur gera sam­fé­lagi sínu mikið gagn. Þess vegna er það skylda okkar allra að virða sam­komu­bann og gæta þess eins og kostur er að smit­ast ekki eða smita aðra. Það var rauna­legt að horfa á Víði á fund­inum í dag þar sem hann var for­viða á hegðun fólks og íþrótta­fé­laga sem hundsa sam­komu­bann. Við eigum að vera for­viða líka. Að fylgja þessum fyr­ir­mælum er nú það minnsta sem við getum gert fyrir sam­fé­lagið okkar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár