Halla Oddný og Einar Falur ræða ljósmyndun og myndlist

Stundin sendir út menn­ing­ar­við­burði á vegum Menn­ing­ar­hús­anna í Kópa­vogi á með­an sam­komu­banni stend­ur. Að þessu sinni ræðir Halla Oddný Magn­ús­dóttir fjöl­miðla­kona við Einar Fal Ing­ólfs­son ljós­mynd­ara um ljós­myndun og mynd­list í tengslum við sýn­ing­una Afrit sem nú stendur yfir í Gerð­ar­safni. Útsend­ingin hefst klukkan 13.

Stundin mun á næstu vikum senda út menn­ing­ar­við­burði í sam­starfi við Menn­ing­ar­húsin í Kópavogi. Við­burð­irnir verða haldnir klukkan 13 á mánu­dögum, mið­viku­dögum og föstu­dögum á meðan sam­komu­banni stendur vegna COVID-19 heims­far­ald­urs­ins. Hægt verður að sjá við­burð­ina á for­síðu Stund­ar­innar, á Facebook-síðu Stund­ar­innar og Facebook-síðu Menn­ing­ar­hús­anna í Kópavogi.

Meðal þeirra sem koma fram í við­burða­röð­inni eru Sævar Helgi Bragason stjörnu­fræð­ingur, Gerður Kristný skáld,  Jógvan, Matti Matt, Vignir Snær, Ragna Fróða­dóttir, Andri Snær Magnason rit­höf­undur, Sig­ur­björn Bern­harðs­son, Halla Oddný, Þor­grímur Þrá­ins­son, Elín Björk Jón­as­dóttir, Einar Falur, Kordo kvar­tett­inn og Hrönn Egils­dóttir.

Að þessu sinni mun Einar Falur Ing­ólfs­son ljós­mynd­ari ræða um ljós­myndun og mynd­list í tengslum við sýn­ing­una Afrit sem nú stendur yfir í Gerð­ar­safni. Streymi af við­burð­inum verður birt í þess­ari frétt og á fyrr­greindum Facebook-síðum ásamt for­síðu Stund­ar­innar. Þá verður upp­taka til­tæk á sömu stöðum í kjöl­farið.

Eft­ir­far­andi er til­kynn­ing frá menn­ing­ar­hús­unum í Kópavogi um við­burð­inn:

Halla Oddný Magn­ús­dóttir fjöl­miðla­kona spjallar við Einar Fal Ing­ólfs­son ljós­mynd­ara um sýn­ing­una Afrit í Gerð­ar­safni. Nú þegar ekki er hægt að fara á sýn­ing­una Afrit í Gerð­ar­safni, gefst fólki færi á að upp­lifa sýn­ing­una heima í stofu. 

Á sýn­ing­unni Afrit eru verk eftir mynd­list­ar­menn­ina Önnu Júlíu Frið­björns­dóttur, Bjarka Bragason, ClaudiuHausfeld, Hall­gerði Hall­gríms­dóttur, Katrínu Elvars­dóttur, Pétur Thomsen og Þórdísi Jóhann­es­dóttur. Sýn­ing­ar­stjóri er Brynja Sveins­dóttir. 

Einar Falur hefur sinnt list­grein sinni, ljós­myndun, með marg­vís­legum hætti í gegnum tíð­ina og munu hann og Halla Oddný ræða um list­formið eins og það birt­ist á sýn­ing­unni í Gerð­ar­safni.

Einar Falur hefur haldið margar sýn­ingar á verkum sínum, hér­lendis og erlendis, verið sýn­ing­ar­stjóri að ljós­mynda­sýn­ingum, rit­stýrt eða komið að gerð ljós­mynda­bóka, sjálfur skrifað bækur, kennt áfanga í ljós­myndun við hina ýmsu skóla og haldið fyr­ir­lestra víða um heim. Þá var hann lengi mynd­stjóri Morg­un­blaðs­ins og hefur nú umsjón með menn­ing­ar­um­fjöllun blaðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kúltúr klukkan 13

MenningKúltúr klukkan 13

Gerð­ar­Stundin klukkan 13: Mósaík úr mat­vælum

Stund­in send­ir út menn­ing­ar­við­burði á veg­um Menn­ing­ar­hús­anna í Kópa­vogi á með­an sam­komu­banni stend­ur. Í dag verð­ur þriðja Gerð­ar­Stund­in send út frá Gerð­arsafni þar sem mynd­list­ar­menn­irn­ir Berg­ur Thom­as And­er­son, Logi Leó Gunn­ars­son og Una Mar­grét Árna­dótt­ir leiða skap­andi fjöl­skyldu­smiðju í Stúd­íói Gerð­ar. Út­send­ing­in hefst klukk­an 13.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár