Fjórar brottfarir Icelandair frá Keflavík í dag

Á vegum Icelandair voru 23 brott­farir fyr­ir­hug­aðar, öllum hefur verið aflýst nema fjórum.

Fjórar brottfarir Icelandair frá Keflavík í dag
Aflýst! 37 brott­farir voru á áætlun frá Kefla­vík­ur­flug­velli í dag, en 31 hefur verið aflýst. Mynd: Skjáskot af airport.is

FI532 Munchen: Aflýst. FI520 Frank­furt: Aflýst. FI 342 Helsinki: Aflýst. FI542 París: Aflýst.

Svona heldur list­inn á vef­síðu Kefla­vík­ur­flug­vallar áfram yfir brott­farir í dag áfram. 37 brott­farir voru á áætlun í dag, en  75% þeirra, öllum nema níu, hefur verið aflýst.

Fjórar flugferðir Icelandair 

Á vegum Icelandair voru 23 brott­farir fyr­ir­hug­aðar, öllum hefur verið aflýst nema fjórum. Þrjár voru til Evr­ópu­landa í morgun og ein til Boston síð­degis.

SAS flýgur til Ósló í hádeg­inu, sömu­leiðis mun British Airways fljúga til London og þangað mun Wizz Air fljúga í kvöld.  Þá eru tvær ferðir Easy Jet til Bret­lands á áætlun. 

Icelandair til­kynnti í morgun um að segja þyrfti upp 240 starfs­mönnum og að 92% starfs­manna þar myndu taka á sig skert starfs­hlut­fall. Hluti starfs­manna njóta úrræða rík­is­stjórn­ar­innar um mót­fram­lag vegna skerð­ingar á starfs­fhlut­falli. Bogi Nils Bogason, for­maður félags­ins, sagði í til­kynn­ingu sem hann sendi starfs­mönnum að þessar aðgerðir væru nauð­syn­legar til að tryggja fram­tíð­ar­rekstur félags­ins. 

Í dag voru áætl­aðar komur 36 flug­véla. Öllum nema átta hefur verið aflýst. 23 vélar Icelandair áttu að koma í dag, öllum hefur verið aflýst nema þremur. 

Stundin ræddi við Boga Nils Bogason, for­stjóra Icelandair, rétt í þessu. Þar kom fram að flug­fram­boð í sumar yrði minna en ráð­gert var vegna kór­óna­veirunnar. „Við til­kynntum um það núna fyrir skemmstu að við værum að gera ráð fyrir því að flug­fram­boð okkar í sumar yrði að minnsta kosti 25 pró­sent minna en við vorum áður búnir að gera ráð fyrir. Við erum samt að búa okkur undir að það geti orðið enn minna. Við erum í raun að búa okkur undir það versta en erum að reyna að tryggja ákveð­inn sveigj­an­leika svo við getum farið af stað þegar eft­ir­spurn fer aftur af stað og bók­un­ar­gluggar opn­ast.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár