Menningarviðburðir sendir út á Stundinni

Menn­ing­ar­húsin í Kópavogi halda við­burði á meðan sam­komu­banni stendur, sem sendir verða út á Stund­inni. Sævar Helgi Bragason stjörnu­fræð­ingur, Gerður Kristný skáld, Jógvan, Matti Matt, Vignir Snær og Andri Snær Magnason rit­höf­undur eru á meðal þeirra sem koma fram. Fyrsti við­burð­ur­inn er í dag.

Menningarviðburðir sendir út á Stundinni

Stundin mun á næstu vikum senda út menn­ing­ar­við­burði í sam­starfi við Menn­ing­ar­húsin í Kópavogi. Við­burð­irnir verða haldnir klukkan 13 á mánu­dögum, mið­viku­dögum og föstu­dögum á meðan sam­komu­banni stendur vegna COVID-19 heims­far­ald­urs­ins. Hægt verður að sjá við­burð­ina á for­síðu Stund­ar­innar, á Facebook-síðu Stund­ar­innar og Facebook-síðu Menn­ing­ar­hús­anna í Kópavogi.

Meðal þeirra sem koma fram í við­burða­röð­inni eru Sævar Helgi Bragason stjörnu­fræð­ingur, Gerður Kristný skáld,  Jógvan, Matti Matt, Vignir Snær, Ragna Fróða­dóttir, Andri Snær Magnason rit­höf­undur, Sig­ur­björn Bern­harðs­son, Halla Oddný, Þor­grímur Þrá­ins­son, Elín Björk Jón­as­dóttir, Einar Falur, Kordo kvar­tett­inn og Hrönn Egils­dóttir.

Fyrsti við­burð­ur­inn í Kúltúr klukkan 13 eru tón­leikar með Jógvan Hansen, Matth­í­asi Matth­í­assyni og Vigni Snæ Vig­fús­syni, í dag klukkan 13. Streymi af við­burð­unum verður birt í þess­ari frétt og á fyrr­greindum Facebook-síðum ásamt for­síðu Stund­ar­innar. Þá verður upp­taka til­tæk á sömu stöðum í kjöl­farið.

Eft­ir­far­andi er til­kynn­ing frá menn­ing­ar­hús­unum í Kópavogi um fyrsta við­burð­inn:

Fyrsti viðburðurinn í röðinni Kúltúr klukkan 13

Nokkur af bestu lögum Eagles í Salnum

Fyrsti við­burð­ur­inn í Kúltúr klukkan 13, nýjum vef-dag­skrár­lið Menn­ing­ar­hús­anna í Kópavogi, eru tón­leikar með þeim Jógvan Hansen, Matth­í­asi Matth­í­assyni og Vigni Snæ Vig­fús­syni. Þeir félagar mæta í Salinn í Kópavogi og flytja nokkur af bestu lögum Eagles.

Hljóm­sveit­ina Eagles þekkja allir enda hefur hún boðið heims­byggð­ina upp á fjöldan allan af þekktum lögum sem hafa verið mikið spiluð í gegnum árin. Má þá nefna lög á borð við Hotel California, Take it easy, Lying Eyes, Tequila Sunrise o.fl.

Jógvan, Matti og Vignir slógu í gegn á tvennum Eagles tón­leikum í vetur fyrir frá­bæran flutn­ing og skemmti­lega kvöld­stund í Salnum og eru þeir spenntir fyrir því að geta boðið lands­mönnum upp á þessa fal­legu tón­list Eagles -  beint heim í stofu!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kúltúr klukkan 13

GerðarStundin klukkan 13: Mósaík úr matvælum
MenningKúltúr klukkan 13

Gerð­ar­Stundin klukkan 13: Mósaík úr mat­vælum

Stund­in send­ir út menn­ing­ar­við­burði á veg­um Menn­ing­ar­hús­anna í Kópa­vogi á með­an sam­komu­banni stend­ur. Í dag verð­ur þriðja Gerð­ar­Stund­in send út frá Gerð­arsafni þar sem mynd­list­ar­menn­irn­ir Berg­ur Thom­as And­er­son, Logi Leó Gunn­ars­son og Una Mar­grét Árna­dótt­ir leiða skap­andi fjöl­skyldu­smiðju í Stúd­íói Gerð­ar. Út­send­ing­in hefst klukk­an 13.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár