Skemmtiferðaskip afbóka komur til Íslands: „Mikið högg fyrir samfélagið“

Fyrsta skemmti­ferð­ar­skipið sem átti að koma til Ísa­fjarðar í maí kemur ekki til bæj­ar­ins út af COVID-far­aldr­inum. 120 skemmti­ferð­ar­skip áttu að koma til bæj­ar­ins í sumar. Hafn­ar­stjór­inn á Ísafirði býst við fleiri afbók­unum en vonar það besta og krossar fingur sína.

Skemmtiferðaskip afbóka komur til Íslands: „Mikið högg fyrir samfélagið“
Högg fyrir Ísa­fjarð­arbæ Fyrsta skemmti­ferð­ar­skipið sem átti að koma til Ísa­fjarð­ar­bæjar í vor hefur ofboðað komu sína. Bærinn verður af miklum tekjum ef skemmti­ferð­ar­skipin koma ekki í sumar vegna veirunnar.

Fyrsta skemmti­ferð­ar­skipið sem átti að koma til Ísa­fjarðar þann 10. maí hefur afbókað komu sína til bæj­ar­ins vegna COVID-far­ald­urs­ins. Þetta segir Guð­mundur Magnús Krist­jáns­son hafn­ar­stjóri Ísa­fjarð­ar­hafnar.  „Það er búið að afbóka eitt skip. Svo höfum við bara verið að fylgj­ast með frétta­til­kynn­ingum skipa­fé­lag­anna. Þau eru að leggja skip­unum svona 4 til 8 vikum fram í tím­ann,“ segir Guð­mundur. Umrætt skip, Balmoral, sem átti að koma til bæj­ar­ins  getur borið allt að 1930 far­þega. 

Ferða­þjón­usta hefur á liðnum árum orðið mik­il­væg­asta atvinnu­grein íslensku þjóð­ar­innar og kemur tæp­lega þriðj­ungur af vergri þjóð­ar­fram­leiðslu Íslands úr grein­inni með beinum eða óbeinum hætti. Mikil aukn­ing hefur verið í komu ferða­manna til lands­ins í kjöl­far efna­hags­hruns­ins á Íslandi árið 2008. Aukinn fjöldi skemmti­ferð­ar­skipa hefur komið til lands­ins ár frá ári og var metár í fyrra en þá komu meðal ann­ars rúm­lega 200 skip bæði til Reykja­víkur og Akur­eyrar. Áætlaður þjóð­hags­legur ávinn­ingur af komu skemmti­ferð­ar­skipa er um 16.4 millj­arðar króna. 

Allt útlit er fyrir að færri eða jafn­vel engin skemmti­ferð­ar­skip komi til lands­ins í sumar þar sem ljóst er að afleið­ing­arnar af útbreiðslu kór­óna­veirunnar munu teygja sig yfir næstu mán­uði. Fólki er ráðið frá því að ferð­ast á milli landa að óþörfu til að hindra útbreiðslu COVID-víruss­ins  og ferða­menn sem koma til lands­ins munu þurfa að fara í sótt­kví í tvær vikur við kom­una.  Í þess­ari stöðu mun hinn rúm­lega 16 millj­arða ávinn­ingur þjóð­ar­bús­ins af komu skemmti­ferð­ar­skip­anna vænt­an­lega þurrkast út.

Næsta skip á eftir Balmoral á að koma til Ísa­fjarðar þann 13. maí. Þegar Guð­mundur er spurður að því hvort ekki megi búast við fleiri afbók­unum á næst­unni segir hann að fast­lega megi gera ráð fyrir því. 

Óvíst með 100.00 gestiÓvíst er hvort um 100.000 gestir komi til Ísa­fjarðar með skemmti­ferð­ar­skipum. Guð­mundur Magnús Krist­jáns­son, hafn­ar­stjóri á Ísafirði, segir að fyrsta afbók­unin hafi borist út af Covid-veirunni.

Beinar og óbeinar tekjur upp á 1200 milljónir

Um 120 skemmti­ferð­ar­skip eiga að koma til Ísa­fjarðar í sumar segir Guð­mundur og hefur Ísa­fjarð­ar­bær beinar tekjur upp á um 140 millj­ónir króna af þessum skipum.  „Við erum að gera ráð fyrir að hafa um 140 millj­ónir króna í tekjur af skemmti­ferð­ar­skipum í ár. Það var gerð könnun hérna í bænum fyrir tveimur árum um fjár­hags­leg áhrif af komu skemmti­ferð­ar­skipa til bæj­ar­ins og nið­ur­staðan var að þetta væru 1.2 millj­arðar á sumri,“ segir Guð­mundur en áætl­anir bæj­ar­ins gerðu ráð fyrir um 100 þús­und gestum til bæj­ar­ins með skemmti­ferð­ar­skip­unum í ár.

„Þetta kemur til með að breyta miklu fyrir okkur“ 

„Þetta kemur til með að breyta miklu fyrir okkur,“ segir Guð­mundur um þá stað­reynd að byrjað sé að afbóka skemmti­ferða­skipa­komur til bæj­ar­ins. „En það eru tveir mán­uðir í að ver­tíð­ina hefj­ist og við vitum ekki um end­an­legt tjón fyrr en þetta er yfir­staðið.“

Beinu tekjur bæj­ar­ins út af hafn­ar­gjöldum og öðrum aðstöðu­gjöldum eru því rúm­lega 140 millj­ónir og svo bæt­ist við þetta um 1 millj­arður króna í óbeinar tekjur, það er að segja tekjur veit­inga­staða, versl­ana, ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja og ann­arra rekstr­ar­að­ila á Ísafirð segir Guð­mundur.

Högg fyrir samfélagið

Guð­mundur segir að ef öll skipin 120 afbóki komi sína þá sé það högg fyrir Ísafjörð. „Þetta eru veru­legir fjár­munir í svona litlu sam­fé­lagi eins og Ísafirði. Þetta verður mikið högg fyrir sam­fé­lagið ef þessar tekjur vantar í sumar. En hvað getum við gert? Við getum ekki breytt fram­vind­unni frekar en nokkur annar. Hafn­ar­rekst­ur­inn hefur gengið mjög vel hjá okkur síð­ast­liðin ár og þannig lagað séð og við höfum skilað góðum rekstr­ar­af­gangi.“

 „Við krossum bara fingur og von­andi fer allt vel“ 

Guð­mundur horfir þó bjart­sýnn fram á veg­inn og vonar það best: „Við erum þannig lagað séð ágæt­lega undir það búin að taka skell­inn ef hann kemur. En von­andi verður hann ekki og við verðum ágæt­lega sátt þó við fengjum ekki nema helm­ing­inn af þeim skipum sem eru bókuð,“ segir hafn­ar­stjór­inn.  „Við krossum bara fingur og von­andi fer allt vel.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár