Stórar hótelkeðjur í Noregi segja upp 4.000 starfsmönnum

Tvær af stærri hótel­keðjum Noregs hafa sagt upp 4.000 starfs­mönnum og eru byrjaðar að loka hótelum sínum. Hótel­eigandi á Íslandi hefur sagt að hótelin í landinu séu að tæmast. Ísland er miklu háðara ferða­þjónustunni en Noregur og Svíþjóð þar sem um 9 prósent þjóðar­fram­leiðslunnar kemur frá ferða­þjónustu en 3.7 prósent í Noregi.

9 prósent á Íslandi, 3.7 prósent í Noregi
9 pró­sent á Íslandi, 3.7 pró­sent í Noregi Línu­ritið sýnir hlut­fall ferða­þjón­ust­unnar sem pró­sentu af þjóð­ar­fram­leiðslu á Íslandi, Noregi, Svíþjóð og eins í heim­inum öllum að með­al­tali. Þetta hlut­fall er áætlað rúm­lega 9 pró­sent á Íslandi árið 2019 en 3.7 pró­sent í Noregi. Heimild: Alþjóða­bank­inn/World Bank

Tvær af stærri hótel­keðjum Noregs, Nordic Choice og Thon Hotels, sögðu á mánudaginn upp tæplega 4.000 þúsund starfs­mönnum tíma­bundið út af kóróna­vírusnum. Útbreiðsla vírusins hefur leitt til þess að mörg þúsund flug­ferðum hefur verið aflýst til og frá Noregi.  Hótel­keðjan  Nordic Choice er í eigu Petter Stordalens sem er einn af þekktari fjár­festum Noregs og rekur fyrir­tækið mörg hótel á Norður­löndunum. Framkvæmda­stjóri hótel­keðjunnar, Torgeir Silseth, segir við viðskipta­blaðið Dagens Næringsliv í dag að búið sé að segja upp 3.000 starfs­mönnum en að engum hótelum hafi hingað til verið lokað. 

3000 tíma­bundnar upp­sagnirPetter Storda­len er med þekkt­ari kaup­sýslu­mönnum Noregs og er lík­lega fræg­asti hót­el­eig­andi Skand­in­avíu. Fyr­ir­tæki hans, Nordic Choice, hefur nú sagt upp 3000 starfs­mönnum tíma­bundið.

Ferðamannageirinn leggur niður starfsemi

Fréttirnar af uppsögnunum koma í kjölfarið á tíðindum af stór­felldum uppsögnum hjá flug­félögunum norska flug­félaginu Norwegian og SAS.

Norwegian sagði frá því fyrir helgi að félagið myndi segja upp 7.000 starfs­mönnum tíma­bundið, meðal annars sökum flug­bannsins til Banda­ríkjanna en 46 prósent flugsæta Norwegian var til landsins, og SAS sagði frá því á mánudaginn að félagið þyrfti að segja upp 90 prósent starfs­fólks tíma­bundið, aflýsa flugum og nánast leggja starfsemina niður að mestu tíma­bundið. Ruðnings­áhrifin sem þetta hefur á ferðamanna­iðnaðinn í Noregi og á önnur lönd í Skandinavíu er nú þegar orðinn mikill og verða enn meiri. 

Fréttirnar um starfsemi hótelanna í Noregi eru í rauninni sama eðlis. Verið er að leggja starfsemi þeirra af tíma­bundið. 

Loka fjórum hótelum

Thon hotels hafa sagt upp 900 starfs­mönnum og lokað fjórum hótelum í Osló og segir Morten Thorvaldsen, framkvæmda­stjóri hótelanna, að ekki sé hægt að halda hótelum með 150 til 200 herbergjum opnum fyrir aðeins örfáa gesti.  „Eins og er þá erum við að tala um 900 starfs­menn. Því miður lítur staðan ekki út fyrir að vera skammvinn og við getum ekki haldið opnum hótelum með 150 til 200 herbergjum ef aðeins koma örfáir gestir,“ segir Thorvaldsen í viðtai við Dagens Næringsliv. 

„Hótelin verða nánast tóm innan tíðar.“

Ekkert sambærilegt tilkynnt á Íslandi

Enn sem komið er hefur ekki verið tikynnt um sambærilegar aðgerðir hjá Icelandair eða hótelum á Íslandi þó vissulega hafi verið sagt frá miklum áhyggjum og væntanlegum aðgerðum hjá Icelandair og eins í ferða­þjónustunni. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, sagði í gær að staðan kallaði á „erfiðar og sársauka­fullar aðgerðir“ og er ljóst að fyrir­tækið mun þurfa að segja upp fólki. 

Í viðtali við Frétta­blaðið í gær málaði Kristófer Oli­vers­son, for­maður Fyrir­tækja í hótel- og gisti­þjónustu, upp afar dökka mynd af stöðunni. „Bókanirnar eru í raun og veru að sópast út. Hótelin verða nánast tóm innan tíðar. Það stefnir í það enda er allt flug nánast stoppað,“ sagði Kristófer sem jafnramt er framkvæmda­stjóri og einn eigenda CenterHotels, keðju sem rekur sjö hótel í Reykjavík og sem er ein af þeim stærri í landinu.

Ríkis­stjórnin mun hins vegar væntanlega tilkynna um aðgerðir á næstunni til að koma til móts við fyrirtæki sem sjá frá tekjutap og rekstrar­erfiðleika vegna kóróna­veirunnar. Sérstak­lega er rætt um Icelandair og ferða­þjónustuna í þessu sambandi samkvæmt frétt Frétta­blaðsins. 

Tæp 9 prósent af þjóðarframleiðslunni

Þegar hlutfall ferða­þjónustu í vergri lands­framleiðslu á Íslandi er borið saman við Noreg og Svíþjóð kemur ágætlega í ljós sá munur sem er á þjóð­hagslegu mikilvægi þessara atvinnu­greina fyrir löndin.

Samkvæmt tölum frá Alþjóð­bankanum, World Bank, stóð ferða­þjónusta fyrir 8,63 prósent af vergri þjóðar­framleiðslu á Íslandi árið 2018 og 3,7 prósentum í Noregi og 2,44 prósentum í Svíþjóð. Spáin fyrir Ísland árið 2019 (endanlegar tölur liggja ekki fyrir) er rétt rúmlega 9 prósent fyrir Ísland en 3,7 prósent fyrir Noreg. Línurit um þetta frá Alþjóða­bankanum sýnir hvað Ísland reiðir sig mikið á ferða­þjónustu í samamnburði við þessi tvö lönd sem og önnur lönd í heiminum öllum en heims­meðaltalið um mikilvægi ferða­þjónustunnar í einstaka löndum er nokkuð svipað og hjá Noregi. 

Út frá þessu má sjá hversu miklu meiri afleiðingar má ætla að kóranavírusinn muni hafa á Íslandi þegar fyrir liggur að ferða­þjónusta, sem atvinnu­grein, mun nánast hverfa sem tekju­póstur í hagkerfinu næstu vikur og líklega mánuði. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár