Kallar á ný eftir afsögn stjórnar Sorpu

Kolbrún Bald­urs­dóttir borg­ar­full­trúi segir sam­flokks­menn meiri­hlut­ans í öðrum bæj­ar­fé­lögum sjá að stjórn Sorpu beri ábyrgð á vanda félags­ins eins og fram­kvæmda­stjór­inn.

Kallar á ný eftir afsögn stjórnar Sorpu
Kolbrún Bald­urs­dóttir Stjórn Sorpu situr enn, þrátt fyrir svarta skýrslu innri end­ur­skoð­unar.

Kolbrún Bald­urs­dóttir, borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins, segir stjórn Sorpu vera ábyrgð­ar­að­ili og fá greitt fyrir að fylgj­ast með fjár­málum félags­ins. Hún sitji þó enn og borg­ar­full­trúar fái skell­inn.

Í ljós kom í fyrra að 1.400 millj­ónir króna vant­aði inn í áætl­anir byggða­sam­lags­ins Sorpu. Innri end­ur­skoðun Reykja­vík­ur­borgar skil­aði svartri skýrslu um málið í des­em­ber. Björn H. Hall­dórs­son, fram­kvæmda­stjóri Sorpu, var lát­inn fara í kjöl­farið, en hann vísar allri ábyrgð á stjórn fyr­ir­tæk­is­ins.

Í skýrsl­unni er upp­lýs­inga­gjöf fram­kvæmda­stjór­ans harð­lega gagn­rýnd, en einnig fundið að stjórn Sorpu, sem skipuð er sveit­ar­stjórn­ar­mönnum úr sveit­ar­fé­lög­unum sex á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þar á Reykja­vík­ur­borg einn full­trúa eins og hin sveit­ar­fé­lögin, þrátt fyrir stærð. „Innri end­ur­skoðun leggur til að settar verði skýrar hæf­is­reglur um þá sem kosnir eru til stjórn­ar­starfa,“ segir í skýrsl­unni. „Tekið sé mið af því sjón­ar­miði að í stjórn sitji ein­stak­lingar sem óháðir eru eig­endum.“

Kolbrún vakti athygli á mál­inu á fundi borg­ar­stjórnar á þriðju­dag. Benti hún á að minni­hlut­inn í Kópavogi, sem Sam­fylk­ingin og Píratar sitja í, hafi tjáð sig um vand­ann, kallað eftir skýr­ingum og bent á að stjórnin sitji enn. „Þessi yfir­lýs­ing er áhuga­verð fyrir þær sakir að full­trúar minni­hlut­ans í Kópavogi eru sam­flokks­fólk meiri­hlut­ans í Reykja­vík,“ lét Kolbrún bóka á fund­inum. „Eins er for­maður stjórnar skip­aður af bæj­ar­stjórn Kópavogs.“

Vísar Kolbrún þar til Birkis Jóns Jóns­sonar, sem í sam­tali við Stundina sagð­ist ekki hafa íhugað að segja af sér. „Það er ákvörðun eig­enda félags­ins að gera breyt­ingar og málið er ein­fald­lega á þeim stað,“ sagði hann.

„Við blasir nú að borg­ar­búar munu taka stærsta skell­inn sem meiri­hluta­eig­endur og gjald­skrá Sorpu mun hækka“

Kolbrún hefur kallað eftir því að Líf Magneu­dóttir, borg­ar­full­trúi Vinstri grænna, segi af sér sem stjórn­ar­maður. „Meiri­hlut­inn í Reykja­vík hefur hins vegar varið hvernig komið er fyrir Sorpu og telja að nægi að fram­kvæmda­stjóri axli alla ábyrgð,“ segir hún. „Á það skal minnt að í skýrslu innri end­ur­skoð­unar fær stjórn einnig áfell­is­dóm, ekki ein­ungis fram­kvæmda­stjóri. Það er ánægju­legt að sjá að Píratar og Sam­fylk­ing í Kópavogi skilja að stjórn er ábyrgð­ar­að­ili fyrir fyr­ir­tæki enda fær stjórn greitt fyrir að fylgj­ast með öllum þráðum, vera vak­andi yfir hverri krónu og bók­halds­færslu. Við blasir nú að borg­ar­búar munu taka stærsta skell­inn sem meiri­hluta­eig­endur og gjald­skrá Sorpu mun hækka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár