Stórar hótelkeðjur í Noregi segja upp 4.000 starfsmönnum

Tvær af stærri hót­el­keðjum Noregs hafa sagt upp 4.000 starfs­mönnum og eru byrj­aðar að loka hót­elum sínum. Hót­el­eig­andi á Íslandi hefur sagt að hót­elin í land­inu séu að tæm­ast. Ísland er miklu háð­ara ferða­þjón­ust­unni en Noregur og Svíþjóð þar sem um 9 pró­sent þjóð­ar­fram­leiðsl­unnar kemur frá ferða­þjón­ustu en 3.7 pró­sent í Noregi.

Stórar hótelkeðjur í Noregi segja upp 4.000 starfsmönnum
9 pró­sent á Íslandi, 3.7 pró­sent í Noregi Línu­ritið sýnir hlut­fall ferða­þjón­ust­unnar sem pró­sentu af þjóð­ar­fram­leiðslu á Íslandi, Noregi, Svíþjóð og eins í heim­inum öllum að með­al­tali. Þetta hlut­fall er áætlað rúm­lega 9 pró­sent á Íslandi árið 2019 en 3.7 pró­sent í Noregi. Heimild: Alþjóða­bank­inn/World Bank

Tvær af stærri hót­el­keðjum Noregs, Nordic Choice og Thon Hotels, sögðu á mánu­dag­inn upp tæp­lega 4.000 þús­und starfs­mönnum tíma­bundið út af kór­óna­vírusnum. Útbreiðsla vírus­ins hefur leitt til þess að mörg þús­und flug­ferðum hefur verið aflýst til og frá Noregi.  Hót­el­keðjan  Nordic Choice er í eigu Petter Storda­lens sem er einn af þekkt­ari fjár­festum Noregs og rekur fyr­ir­tækið mörg hótel á Norð­ur­lönd­unum. Fram­kvæmda­stjóri hót­el­keðj­unnar, Torgeir Silseth, segir við við­skipta­blaðið Dagens Nær­ingsliv í dag að búið sé að segja upp 3.000 starfs­mönnum en að engum hót­elum hafi hingað til verið lokað. 

3000 tíma­bundnar upp­sagnirPetter Storda­len er med þekkt­ari kaup­sýslu­mönnum Noregs og er lík­lega fræg­asti hót­el­eig­andi Skand­in­avíu. Fyr­ir­tæki hans, Nordic Choice, hefur nú sagt upp 3000 starfs­mönnum tíma­bundið.

Ferðamannageirinn leggur niður starfsemi

Frétt­irnar af upp­sögn­unum koma í kjöl­farið á tíð­indum af stór­felldum upp­sögnum hjá flug­fé­lög­unum norska flug­fé­lag­inu Norwegian og SAS.

Norwegian sagði frá því fyrir helgi að félagið myndi segja upp 7.000 starfs­mönnum tíma­bundið, meðal ann­ars sökum flug­banns­ins til Banda­ríkj­anna en 46 pró­sent flug­sæta Norwegian var til lands­ins, og SAS sagði frá því á mánu­dag­inn að félagið þyrfti að segja upp 90 pró­sent starfs­fólks tíma­bundið, aflýsa flugum og nán­ast leggja starf­sem­ina niður að mestu tíma­bundið. Ruðn­ings­á­hrifin sem þetta hefur á ferða­manna­iðn­að­inn í Noregi og á önnur lönd í Skand­in­avíu er nú þegar orð­inn mik­ill og verða enn meiri. 

Frétt­irnar um starf­semi hót­el­anna í Noregi eru í raun­inni sama eðlis. Verið er að leggja starf­semi þeirra af tíma­bundið. 

Loka fjórum hótelum

Thon hot­els hafa sagt upp 900 starfs­mönnum og lokað fjórum hót­elum í Osló og segir Morten Thor­vald­sen, fram­kvæmda­stjóri hót­el­anna, að ekki sé hægt að halda hót­elum með 150 til 200 her­bergjum opnum fyrir aðeins örfáa gesti.  „Eins og er þá erum við að tala um 900 starfs­menn. Því miður lítur staðan ekki út fyrir að vera skamm­vinn og við getum ekki haldið opnum hót­elum með 150 til 200 her­bergjum ef aðeins koma örfáir gestir,“ segir Thor­vald­sen í við­tai við Dagens Nær­ingsliv. 

„Hótelin verða nán­ast tóm innan tíðar.“

Ekkert sambærilegt tilkynnt á Íslandi

Enn sem komið er hefur ekki verið tikynnt um sam­bæri­legar aðgerðir hjá Icelandair eða hót­elum á Íslandi þó vissu­lega hafi verið sagt frá miklum áhyggjum og vænt­an­legum aðgerðum hjá Icelandair og eins í ferða­þjón­ust­unni. Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair, sagði í gær að staðan kall­aði á „erf­iðar og sárs­auka­fullar aðgerðir“ og er ljóst að fyr­ir­tækið mun þurfa að segja upp fólki. 

Í við­tali við Frétta­blaðið í gær mál­aði Krist­ó­fer Oli­vers­son, for­maður Fyrir­tækja í hótel- og gisti­þjón­ustu, upp afar dökka mynd af stöð­unni. „Bók­an­irnar eru í raun og veru að sóp­ast út. Hótelin verða nán­ast tóm innan tíðar. Það stefnir í það enda er allt flug nán­ast stoppað,“ sagði Krist­ó­fer sem jafn­ramt er fram­kvæmda­stjóri og einn eig­enda CenterHotels, keðju sem rekur sjö hótel í Reykja­vík og sem er ein af þeim stærri í land­inu.

Rík­is­stjórnin mun hins vegar vænt­an­lega til­kynna um aðgerðir á næst­unni til að koma til móts við fyr­ir­tæki sem sjá frá tekju­tap og rekstr­ar­erf­ið­leika vegna kór­óna­veirunnar. Sér­stak­lega er rætt um Icelandair og ferða­þjón­ust­una í þessu sam­bandi sam­kvæmt frétt Frétta­blaðs­ins. 

Tæp 9 prósent af þjóðarframleiðslunni

Þegar hlut­fall ferða­þjón­ustu í vergri lands­fram­leiðslu á Íslandi er borið saman við Noreg og Svíþjóð kemur ágæt­lega í ljós sá munur sem er á þjóð­hags­legu mik­il­vægi þess­ara atvinnu­greina fyrir löndin.

Samkvæmt tölum frá Alþjóð­bank­anum, World Bank, stóð ferða­þjón­usta fyrir 8,63 pró­sent af vergri þjóð­ar­fram­leiðslu á Íslandi árið 2018 og 3,7 pró­sentum í Noregi og 2,44 pró­sentum í Svíþjóð. Spáin fyrir Ísland árið 2019 (end­an­legar tölur liggja ekki fyrir) er rétt rúm­lega 9 pró­sent fyrir Ísland en 3,7 pró­sent fyrir Noreg. Línurit um þetta frá Alþjóða­bank­anum sýnir hvað Ísland reiðir sig mikið á ferða­þjón­ustu í samamn­burði við þessi tvö lönd sem og önnur lönd í heim­inum öllum en heims­með­al­talið um mik­il­vægi ferða­þjón­ust­unnar í ein­staka löndum er nokkuð svipað og hjá Noregi. 

Út frá þessu má sjá hversu miklu meiri afleið­ingar má ætla að kór­ana­vírus­inn muni hafa á Íslandi þegar fyrir liggur að ferða­þjón­usta, sem atvinnu­grein, mun nán­ast hverfa sem tekju­póstur í hag­kerf­inu næstu vikur og lík­lega mán­uði. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár