Fór einn í fylgd fjögurra lögreglumanna til Grikklands

Maður, sem synjað var um alþjóð­lega vernd hér á landi og var sendur aftur á göt­una í Grikk­landi, flúði þaðan aftur og bíður nú efn­is­með­ferðar í Bret­landi. Hann segir að þar hafi saga hans um hætt­una sem honum er búin verið tekin alvar­lega, öfugt við hér á landi. Hann segir breska kerfið halda mun betur utan um hæl­is­leit­endur en það íslenska. Þar séu hæl­is­leit­endum þó sýndir meiri for­dómar.

Fór einn í fylgd fjögurra lögreglumanna til Grikklands
Milad Þegar hann dvaldi á Íslandi vakn­aði hjá honum von um að hann fengi að setj­ast hér að. Hann fékk því áfall þegar hann var sendur með fjög­urra lög­reglu­manna fylgd aftur til Grikk­lands. Mynd: Davíð Þór

Einn þeirra margra sem hafa á und­an­förnum árum óskað eftir hæli hér á landi, verið synjað um það og sendir aftur til Grikk­lands, er Milad, sem dvaldi á Íslandi um níu mán­aða skeið árin 2018 og 2019. Hann vill ekki að fram komi hvaðan hann er vegna þess að hann ótt­ast að fréttir af honum ber­ist til heima­lands hans, þar sem fjöl­skylda hans hafi orðið fyrir ofsóknum hans vegna eftir að hann flúði. Á meðan Milad dvaldi á Íslandi reyndi hann að vekja athygli á stöðu hæl­is­leit­enda hér á landi og þess sem biði þeirra, yrðu þeir sendir aftur til heima­lands síns eða landa á borð við Grikk­land, þar sem kerfin sem halda eiga utan um flótta­menn eru löngu sprungin.

Hann sagði meðal ann­ars sögu sína í Stund­inni í febr­úar í fyrra …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár