Líf á götunni bíður þeirra í Grikklandi

Á síð­ustu miss­erum hefur hæl­is­um­sóknum ein­stak­linga sem þegar höfðu fengið vernd í öðru ríki fjölgað til muna. Í upp­hafi árs­ins 2019 voru jafn­margar umsóknir af því tagi í vinnslu hjá Útlend­inga­stofnun og voru afgreiddar allt árið 2018. Fjórir ungir menn, sem hafa fengið vernd í Grikk­landi, eru í sívax­andi hópi þeirra sem óska eftir hæli hér. Þeir segja ekk­ert nema göt­una bíða þeirra í Grikk­landi.

Líf á götunni bíður þeirra í Grikklandi

Flótta­menn sem þegar hafa fengið dval­ar­leyfi í Grikk­landi sækja í auknum mæli til Íslands eftir hæli. Slíkum til­fellum hefur fjölgað frá mán­uði til mán­aðar að und­an­förnu. Tölur frá Útlend­inga­stofnun sýna að í upp­hafi árs­ins 2019 voru um það bil 70 mál ein­stak­linga, sem þegar höfðu fengið vernd í öðru ríki, í vinnslu hjá Útlend­inga­stofnun. Það er nálægt heild­ar­fjölda þeirra mála sem afgreidd voru allt árið í fyrra. Fjölg­un­ina má einnig sjá í því að 25 mál af þessu tagi, svokölluð vernd­ar­mál, voru 25 á fyrri helm­ingi árs­ins 2018 og 45 á síð­ari helm­ingi árs­ins.  

Á meðal þeirra sem eru í þess­ari stöðu eru þeir Ruhollah og Jamshid frá Afganistan og Mojtaba og Milad frá Íran. Allir fjórir hafa þeir fengið synjun um dval­ar­leyfi á Íslandi á grund­velli þess að þeir hafi nú þegar alþjóð­lega vernd í Grikk­landi. Þeim ber hins vegar saman um að sá stimp­ill sé verri en …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár