Of dýrt að hafa ókeypis á næturnar

Flokkur fólks­ins lagði til að gjald­frjálst yrði í bíla­stæða­hús Reykja­víkur á næt­urnar. Borgin segir það kosta um 25 millj­ónir króna. Sjálf­stæð­is­menn vilja að bíla­stæða­húsin verði einka­rekin.

Of dýrt að hafa ókeypis á næturnar
Kolbrún Bald­urs­dóttir Tillögu full­trúa Flokks fólks­ins var hafnað.

Kostn­aður við að hafa gjald­frjálst í bíla­stæða­hús Reykja­vík­ur­borgar að nóttu til mundi vera um 15 millj­ónir króna á ári og tekjur myndu drag­ast saman um 5 til 10 millj­ónir. Þetta kemur fram í svari við til­lögu Kol­brúnar Bald­urs­dóttur, borg­ar­full­trúa Flokks fólks­ins, í skipu­lags- og sam­göngu­ráði þess efnis, en til­lagan var felld af meiri­hlut­anum.

Nýting hús­anna að næt­ur­lagi er um 10 til 15 pró­sent sam­kvæmt svar­inu, að með­töldum lang­tíma­not­endum með mán­að­ar­kort. „Vel má skoða leiðir til að auka nýt­ingu bíla­stæða­húsa og jafn­framt að auka tekjur af þeim og bæta þjón­ust­una,“ segir í bókun meiri­hlut­ans. „Þá væri æski­legt að leita leiða til að færa bíla­leigu­bíla í auknum mæli af íbúða­götum og inn í bíla­stæða­hús. Tillagan sem lögð er fram ein og sér myndi hins vegar leiða til tekju­taps sem við teljum ekki vera æski­legt.“

Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins vilja hafa bíla­stæða­húsin opin allan sól­ar­hring­inn gegn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár