Sólveig Anna setur skilyrði fyrir fundi með Degi

Borg­ar­stjóri og for­maður Eflingar standa í skeyta­send­ingum á Facebook. Dagur B. Egg­erts­son vill hitta Sólveigu Önnu Jóns­dóttur á fundi. Hún er til­búin til þess að upp­fylltum skil­yrðum.

Sólveig Anna setur skilyrði fyrir fundi með Degi
Standa í skeyta­send­ingum Skeyti fljúga milli borg­ar­stjóra og for­manns Eflingar á sam­fé­lags­miðlum.

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, seg­ist til­búin til að hitta Dag B. Egg­erts­son borg­ar­stjóra á fundi til að ræða kjara­deilu stétt­ar­fé­lags­ins við borg­ina eins og Dagur bauð í gær á Facebook-síðu sinni. Hún setur þó tvö skil­yrði fyrir því og gangi Dagur að þeim seg­ist Sólveig til­búin til að hitta hann á fundi hvenær sem honum henti.

Klukkan ell­efu árdegis í gær sendi Efling Degi til­boð um tveggja sól­ar­hringa frestun á verk­falli stétt­ar­fé­lags­ins. Svo að til þess kæmi fór Efling hins vegar fram á að Dagur und­ir­rit­aði svo­kallað Kast­ljóstil­boð, til­boð sem Dagur setti fram í Kast­ljósi 19. febr­úar síð­ast­lið­inn. Það inni­bar að hækkun grunn­launa Efl­ing­ar­fólks yrðu á bil­inu 100 til 110 þús­und krónur á samn­ings­tím­anum. Tilboðið tók ekki til ann­arra þátta, svo sem álags­greiðslna eða upp­bóta.

Tilboð Eflingar stóð til klukkan fjögur síð­degis í gær en ekk­ert svar barst frá borg­ar­stjóra fyrir þann tíma. Dagur birti hins vegar á sjötta tím­anum í gær færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann sagð­ist fagna því að Efling opn­aði á að fresta verk­falli. „Ég stend að sjálf­sögðu við allt sem ég sagði í Kast­ljósi á sínum tíma en það er ekki gagn­legt þegar reynt er að að snúa út úr þeim yfir­lýs­ingum eða standa í skeyta­send­ingum í fjöl­miðlum til að leysa kjara­deilur. Gott til­boð borg­ar­innar um að hækka laun Efl­ing­ar­fólks hjá borg­inni liggur fyrir, með sér­stakri áherslu á að bæta lægstu laun og kjör kvenna­stétta. Tilboðið er á grunni lífs­kjara­samn­ing­anna, með leng­ingu orlofs og útfærslu á stytt­ingu vinnu­vik­unnar. Í stað þess að standa í frek­ari skeyta­send­ingum í fjöl­miðlum vil ég bjóða Sólveigu Önnu for­mann Eflingar til fundar til að ræða hina erf­iðu stöðu við­ræðna og hvar ber á milli aðila.“ Þetta svar sendi Dagur á Eflingu, eftir klukkan fjögur í gær.

Sólveig Anna hefur nú svarað Degi, á hans Facebook-síðu, og seg­ist til­búin til að hitta hann á fundi svo sem hann leggi til, en þó með tveimur skil­yrðum. „Í fyrsta lagi að þú birtir opin­ber­lega það til­boð (glær­urnar) sem samn­inga­nefnd minni var kynnt á samn­inga­fundi 19. febr­úar, dag­inn sem þú mættir í Kast­ljós­svið­talið, þannig að allir geti borið til­boðið saman við ummæli þín í Kast­ljós­inu.

Í öðru lagi að þú fall­ist á að mæta mér eða öðrum full­trúa Eflingar í setti í útvarps- eða sjón­varps­við­tali áður en vikan er úti.

Ef þú fellst á þetta þá skal ég koma og hitta þig til fundar á hvaða tíma sem hentar þér.

Kveðja, Sólveig Anna Jóns­dóttir.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár