Þetta eru kröfur Eflingar og viðbrögð Reykjavíkurborgar

Samn­inga­nefnd Reykja­vík­ur­borgar svar­aði síð­asta til­boði Eflingar í kjara­deil­unni engu. Engar til­lögur eru komnar fram hjá borg­inni um hvernig skuli brugð­ist við kröfu um hækkun grunn­launa fyrir um 1.000 manns innan Eflingar.

Þetta eru kröfur Eflingar og viðbrögð Reykjavíkurborgar
Á fundi rík­is­sátta­semj­ara Samn­inga­nefnd Eflingar fékk engin svör við til­boði sínu til Reykja­vík­ur­borgar á síð­asta samn­inga­fundi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Samn­inga­nefnd Reykja­vík­ur­borgar svar­aði ekki til­boði Eflingar sem lagt var fram á samn­inga­fundi hjá Rík­is­sátta­semj­ara 26. febr­úar síð­ast­lið­inn. Þar var kynnt leið til hækk­unar grunn­launa félags­manna Eflingar auk sér­stakra leið­rétt­inga á kjörum kvenna­stétta. Samn­inga­nefnd Eflingar fékk engin við­brögð við til­boð­inu á fund­inum og hefur enn ekki fengið slík svör. Stundin hefur undir höndum kröfur Eflingar og við­brögð Reykja­vík­ur­borgar við þeim.

Af hálfu samn­inga­nefndar Reykja­vík­ur­borgar hafa bara verið lögð fram tölu­leg til­boð um hækkun grunn­launa starfs­fólks með fimm mis­mun­andi starfs­heiti. Þau til­boð snerta ríf­lega 650 manns innan raða Eflingar. Eftir standa ríf­lega 1.000 manns, sem bera um 40 starfs­heiti, sem samn­inga­nefnd Reykja­vík­ur­borgar hefur ekki lagt fram sér­stök til­boð fyrir eða brugð­ist við kröfum Eflingar þeim til handa. Samn­inga­nefnd Eflingar veit því ekki hvað borgin hefur að, eða vill, bjóða og ekk­ert heyr­ist úr ranni samn­inga­nefndar borg­ar­innar. Ekki hefur verið boð­aður nýr fundur í kjara­deil­unni.

Efling býður samninga á grundvelli tillögu sem borgin kynnti

Tilboð Eflingar gekk út á að grunn­laun allra félags­manna stétt­ar­fé­lags­ins yrðu hækkuð með fyr­ir­mynd í dæmi sem borgin kynnti á heima­síðu sinni 20. febr­úar síð­ast­lið­inn, um hækkun grunn­launa ófag­lærðs starfs­fólks í leik­skóla um 110 þús­und krónur. Það dæmi var einnig lagt fram á samn­inga­fundi Eflingar og borg­ar­innar 19. febr­úar, í plaggi sem heitir Kjara­samn­ingar 2019/2020 – Viðbrögð Reykja­vík­ur­borgar við til­lögum Eflingar. Stundin hefur það plagg undir höndum og einnig önnur gögn sem deilu­að­ilar hafa lagt fram á síð­ustu vikum. Fram kemur í því plaggi að verið er að miða við starfs­fólk sem gegnir starfs­heit­inu starfs­maður 2 á skóla- og frí­stunda­sviði. Reykja­vík­ur­borg býður umræddum starfs­manni 110 þús­und króna hækkun á grunn­launum sem skipt­ast þannig að 90 þús­und króna hækkun kemur til á grunn­laun að for­dæmi Lífs­kjara­samn­inga, 9 þús­und króna hækkun næst fram með sam­ræm­ingu bila milli launa­flokka hjá borg­inni og 11 þús­und krónur kæmu til sem sér­stök hækkun.

Efling bauð að grunn­laun félags­mamanna myndu hækka með sama hætti og umrætt dæmi gerir ráð fyrir. 90 þús­und króna hækkun grunn­launa fengju allir félags­menn Eflingar að fyr­ir­mynd Lífs­kjara­samn­ings­ins, en um það ríkir sam­komu­lag milli samn­ings­að­ila. Hluti grunn­launa­hækk­unar myndi svo nást fram með því að launa­bil á milli launa­flokka hjá borg­inni verði sam­ræmd og jöfnuð. Sú aðgerð myndi skila launa­hækk­unum til allra starfs­heita, um nálægt því 7 þús­und krónur að með­al­tali. Reykja­vík­ur­borg hefur þegar boðið þessa aðgerð og Efling fellst á hana.

„Krafa borg­ar­innar var sú að við gæfum eftir þessar greiðslur en við höfum alfarið hafnað því“

Það sem út af stæði myndi nást fram með sér­stökum hækk­unum sem færu lækk­andi eftir því sem hærra væri farið í launa­flokka. Þannig myndu þeir sem lægst grunn­launin hafa fá hæstu hækk­un­ina, 11 þús­und krónur. Sú hækkun færi svo lækk­andi um 500 krónur fyrir hvern launa­flokk eftir launa­flokk 228, en í honum er starfs­fólk sem ber starfs­heitið leið­bein­andi 1 á skóla- og frí­stunda­sviði. Þannig fengi starfs­maður sem ber starfs­heitið félags­liði í heima­þjón­ustu, á vel­ferð­ar­sviði borg­ar­innar, til dæmis 6.500 króna grunn­launa­hækkun og yfir­maður mötu­neytis leik­skóla á skóla- og frí­stunda­sviði fengi 2.000 króna hækkun grunn­launa. Við þessu til­boði Eflingar kom ekk­ert svar frá sam­inga­nefnd Reykja­vík­ur­borgar, hvorki á fund­inum síð­ast­lið­inn mið­viku­dag né eftir það.

Borgin samþykkir að viðbótargreiðslur haldist

Í við­bragði Reykja­vík­ur­borgar við til­lögum Eflingar sem lagt var fram 19. febr­úar og áður hefur verið vísað til kom fram að borgin myndi tryggja að þeir starfs­menn sem hafi fengið sér­stakar við­bót­ar­greiðslur umfram grunn­laun myndu halda þeim, þó í breyttu formi yrði. Um er að ræða greiðslur fyrir fasta yfir­vinnu til starfs­manna á leik­skólum fyrir að mat­ast með börn­unum, fasta yfir­vinnu starfs­manna á vel­ferð­ar­sviði vegna kaffi­tíma sem falla út og vegna hádeg­is­hlés sem telur til vinnu­tíma hjá ýmsu starfs­fólki á skóla- og frí­stunda­sviði, vel­ferð­ar­sviði og umhverfis- og skipu­lags­sviði. Um er að ræða mál sem hafði verið mik­ill ásteyt­ing­ar­steinn í samn­inga­við­ræð­unum fram til þessa að sögn Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur, for­manns Eflingar. Í við­tali í Stund­inni 21. febr­úar síð­ast­lið­inn lýsti Sólveig Anna því að lengi vel hefðu átökin yfir samn­ings­borðið að miklu leyti snú­ist um þetta. „Krafa borg­ar­innar var sú að við gæfum eftir þessar greiðslur en við höfum alfarið hafnað því.“

Efling vill leiðrétta kjör kvennastétta sérstaklega

Reykja­vík­ur­borg hafði boðið að umrædd föst yfir­vinna yrði að föstum greiðslum, upbbót sem yrði á bil­inu 35 til 45 þús­und krónur fyrir starfs­menn leik­skóla og á bil­inu 46 til 55 fyrir starfs­fólk í heima­þjón­ustu. Samn­inga­nefnd Eflingar lagði einnig fram til­boð vegna þess­ara greiðslna á samn­inga­fund­inum 26. febr­úar síð­ast­lið­inn. Það til­boð fól í sér að umræddar greiðslur yrðu auknar nokkuð sem mark­mið að því að leið­rétta kjör sögu­lega van­met­inna kvenna­stétta hjá Reykja­vík­ur­borg. Tilboð Eflingar hljóð­aði upp á að upp­bætur til starfs­manna á leik­skólum yrðu flöt upp­hæð, 47 þús­und krónur, 57 þús­und krónur til þeirra sem vinna við heima­þjón­ustu. Umræddar upp­bætur teld­ust ekki til grunn­launa og hefðu þar með ekki áhrif á yfir­vinnu­greiðslur eða yrðu til breyt­inga á launa­flokkum.

Þá fór Efling einnig fram á að lagt yrði á breyti­legt jöfn­un­ar­á­lag, starfstengt, handa ákveðnum hópum og var áætlað að það næði til innan við 300 starfs­manna. Um væri að ræða upp­hæðir á bil­inu 3 til 9 þús­und krónur á mán­uði nema að greitt yrði 20 þús­und króna álag til þeirra sem sinntu ræst­ingu.

Engin svör við tilboði Eflingar

Reykja­vík­ur­borg svar­aði þessu til­boði Eflingar ekki heldur og einu við­brögðin sem Efling fékk á umræddum fundi var að samn­inga­nefnd borg­ar­innar sendi spurn­ingar um eitt og annað sem samn­inga­fólk Eflingar svar­aði. Að því loknu barst Eflingu tveggja síðna skjal frá samn­inga­nefnd borg­ar­innar þar sem búið var að fast­setja upp­hæðir þær sem greiða ætti í stað fastrar yfir­vinnu, svo sem rakið er hér að framan. Að öðru leyti fékk Efling engin svör við til­boðum sínum, hvorki jákvæð né nei­kvæð, og gekk samn­inga­nefndin við svo búið af fundi.

Því eru það ekki nema 12 þús­und krónur sem ber á milli samn­ings­að­il­anna í umræddu dæmi

Ekki hefur verið boð­aður nýr samn­inga­fundur í deil­unni. Vekur það athygli í ljósi þess að ýmsum kann að finn­ast að ekki beri mikið á milli samn­ings­að­ila, sé horft til dæm­is­ins sem borgin setti fram um ófag­lærðan starfs­mann á leik­skóla og Efling hefur gert að til­lögu sinni að verði grund­völlur samn­ing­anna. Aðeins er mein­ing­ar­munur um upp­hæð upp­bótar vegna neyslu­hlés starfs­manna. Borgin hefur boðið að sú greiðsla verði 35 þús­und krónur en Efling fer fram á að upp­bótin verði 47 þús­und krónur. Því eru það ekki nema 12 þús­und krónur sem ber á milli samn­ings­að­il­anna í umræddu dæmi.

Um 1.000 manns standa enn algjörlega út af borðinu

Í skjali samn­inga­nefndar Reykja­vík­ur­borgar kemur fram að borgin ætli sér að hækka laun lægst laun­aða hóps­ins með sér­tækum aðgerðum en jafn­framt að ekki sé hægt að láta þær sér­tæku aðgerðir ganga yfir öll störf.

Enn sem komið er hafa ekki komið nein til­boð frá borg­inni til samn­inga­nefndar Eflingar um end­an­lega útfærslu á launa­hækk­unum til handa ríf­lega 1.000 félags­mönnum stétt­ar­fé­lags­ins, svo sem nefnt er í upp­hafi frétt­ar­innar. Sam­komu­lag er um grunn­launa­hækkun allra félags­manna Eflingar upp á 90 þús­und krónur að fyr­ir­mynd Lífs­kjara­samn­ings­ins. Þá hefur borgin kynnt jöfnun á bilum milli launa­flokka sem muni leiða til hækk­unar grunn­launa, mis­mikið eftir starfs­heitum, en þó verði tryggt að sú hækkun verði aldrei lægri en 6.500 krónur. Um þessi atriði ríkir sátt.

Hins vegar hefur Reykja­vík­ur­borg aðeins kynnt hald­föst til­boð um launa­hækk­anir til handa fólki sem ber fimm starfs­heiti. Í fyrsta lagi er þar um að ræða fólk sem ber starfs­heitið starfs­maður 2 á leik­skólum og er þar um að ræða tæp­lega 400 manns. Hækkun á grunn­laun þeirra yrði auk þess sem nefnt er hér að framan 11 þús­und krónur. Fólk sem ber starfs­heitið leið­bein­andi 1 á leik­skóla fengi hækkun sem næmi 5.600 krónum en þeir starfs­menn eru um 150 tals­ins. Auk þess fengi ófag­lærður deild­ar­stjóri á leik­skóla, deild­ar­stjóri C, 12 þús­und króna hækkun auk hækk­unar í anda lífs­kjara­samn­inga en ekki liggur fyrir hversu mik­ill hluti þeirrar hækk­unar kæmi til vegna jöfn­unar á launa­bilum í launa­töflu.

Þá fengi starfs­fólk með starfs­heitið verka­maður við bæj­ar­fram­kvæmdir og garð­yrku um 13 þús­und króna hækkun en um er að ræða 34 starfs­menn. Þá fengju tveir starfs­menn sem bera starfs­heitið kaffi­um­sjón­ar­maður um 11 þús­und króna hækkun grunn­launa. Önnur til­boð um launa­hækk­anir til þeirra félags­manna Eflingar sem út af standa hefur borgin ekki lagt fram. Í því ljósi ber að skoða yfir­lýs­ingu Eflingar, sem send var út eftir samn­inga­fund­inn 26. febr­úar, þar sem sagði: „Á fund­inum fékkst ekk­ert svar við því hvert væri raun­veru­legt inn­tak til­boðs Reykja­vík­ur­borgar frá því fyrir helgi, en mikið ósam­ræmi var milli þess sem kynnt var á samn­inga­fundi og þess sem borgin lýsti í fjöl­miðlum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár