Vara­formaður Íslensku þjóð­fylk­ing­ar­innar rekur óskráðan fjöl­miðil

Net­mið­ill í eigu stjórn­mála­flokks sem berst gegn inn­flytj­endum birtir orðróm um hæl­is­leit­anda. Vefurinn er sagður frétta­mið­ill en er ekki á skrá fjöl­miðla­nefndar, sem beitt getur stjórn­valds­sektum.

Vara­formaður Íslensku þjóð­fylk­ing­ar­innar rekur óskráðan fjöl­miðil
Helgi Helgason Vara­for­maður Íslensku þjóð­fylk­ing­ar­innar er rit­stjóri og eig­andi vefs­ins. Mynd: Kristinn Magnússon

Nýja net­miðl­inum Skinnu, sem meðal ann­ars hefur birt orðróm um hæl­is­leit­anda, er stýrt af aðilum í Íslensku þjóð­fylk­ing­unni. Rit­stjóri vefs­ins er Helgi Helgason, vara­for­maður flokks­ins, sem beitir sér fyrir hertri inn­flytj­enda­lög­gjöf.

Á vefnum má finna fjölda greina, meðal ann­ars um hæl­is­leit­endur og inn­flytj­enda­mál, auk greina­bálks um afrakstur Donalds Trump í starfi Banda­ríkja­for­seta. Á meðal þeirra sem skrifa greinar á vef­inn eru Guð­mundur Þor­leifs­son, for­maður Íslensku þjóð­fylk­ing­ar­innar.

Ekki er tekið fram um tengslin við Íslensku þjóð­fylk­ing­una á vefnum og skil­greinir hann sig sem frétta­miðil. „Skinna.is er gagn­rýn­inn og borg­ara­legur net­mið­ill en honum er ætlað að flytja fréttir, bæði erlendar (með meiri áherslu á Norð­ur­löndin) og inn­lendar,“ segir á vefnum. „Hann mun þró­ast með tím­anum. Megin áhersla er lögð á frétta­skýr­ingar, þar sem líð­andi atburðir eru greindir og skyggst á bak við tjöldin. Við teljum að frétta­mennskan í dag sé yfir­borðs­kennd og almenn­ingur sjái ekki sam­hengið á bak við ein­stakar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár