Segir að Landspítali myndi lamast

Fram­kvæmda­stjóri Sjúkra­liða­fé­lags Íslands segir næsta víst að verk­falls­boðun félags­ins verði sam­þykkt í atkvæða­greiðslu sem nú stendur yfir. Samn­ingar hafa verið lausir í tæpa 10 mán­uði og fólk er orðið „pirrað“.

Segir að Landspítali myndi lamast
Á Land­spít­ala Sjúkra­liðar sem starfa hjá ríki og Akur­eyr­arbæ kjósa nú um verk­falls­boðun og það sama gera 17 aðild­ar­fé­lög BSRB. Verði af verk­falli þess­ara félaga myndi það hafa veru­leg áhrif á starf­semi Land­spít­ala. Mynd: Heiða Helgadóttir

Næsta víst er að félags­menn í Sjúkra­liða­fé­lagi Íslands muni sam­þykkja verk­falls­boðun. Þetta segir Gunnar Örn Gunn­ars­son fram­kvæmda­stjóri félags­ins, en kosn­ing um boðun verk­falls stendur nú yfir. Hún hófst í gær og lýkur á morgun og þátt­taka er komin yfir það lág­mark­s­við­mið sem þarf til að hún telj­ist gild. Samn­ingar hafa verið lausir í tæpa 10 mán­uði og fólk er orðið „pirrað“, að sögn Gunnars.

Kosið er um verk­falls­að­gerðir hjá þeim sjúkra­liðum sem starfa hjá rík­inu og Akur­eyr­arbæ. Kosn­inga­þát­taka er nú komin yfir 55% hjá þeim sem starfa hjá rík­inu og yfir 58% hjá sjúkra­liðum hjá Akur­eyr­arbæ og Gunnar segir að góð þátt­taka komi sér ekki á óvart því hann hafi merkt mikla ólgu og vilja til aðgerða hjá félags­mönnum. Kosning um verk­fall hjá aðild­ar­fé­lögum BSRB stendur einnig yfir og Gunnar segir að fari svo að verk­falls­að­gerðir verði sam­þykktar hjá báðum félögum sé lík­legt að starf­semi Land­spít­al­ans lamist, en hluti starfs­fólks á Land­spít­al­anum er í aðild­ar­fé­lögum BSRB. 

Ekki bundin af Lífskjarasamningnum

Spurður í hverju kröfur sjúkra­liða felist segir Gunnar að kraf­ist verði 120 þús­und króna launa­hækk­unnar á mán­uði. Þá snú­ist kröf­urnar meðal ann­ars um stytt­ingu vinnu­vik­unnar. „Að dag­vinnu­fólk vinni 36 tíma á viku og ákveð­inn hluti vakta­vinnu­fólks fari niður í 32 tíma,“ segir hann. „Árið 2015 gáfum við frá okkur til­tekin líf­eyr­is­rétt­indi á grund­velli þess að laun yrðu jöfnuð á milli almenna mark­að­ar­ins og hins opin­bera. Það hefur enn ekki verið gert. Síðan var sett svokölluð launa­skriðs­trygg­ing - við höfum enn ekki séð hana. Og við teljum okkur ekki á neinn hátt bundin af Lífs­kjara­samn­ingnum, enda áttum við enga aðkomu að gerð hans.“

Frá BSRB feng­ust þær upp­lýs­ingar að atkvæða­greiðsla færi vel af stað. Að henni standa 17 aðild­ar­fé­lög, ýmist er kosið raf­rænt eða skrif­lega og heild­ar­tölur um þátt­töku liggja fyrir á fimmtu­dag­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár