Góð könnun fyrir Sósíalista og Sjálfstæðisflokkinn

Sós­í­alista­flokkur Íslands mælist með mesta fylgi sitt í nýrri könnun MMR. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir við sig og vantar lítið upp í kjör­fylgi sitt.

Góð könnun fyrir Sósíalista og Sjálfstæðisflokkinn
Gunnar Smári Egilsson Formaður fram­kvæmda­ráðs Sós­í­alista­flokks Íslands. Mynd: Pressphotos

Ný könnun mark­aðs­rann­sókna­fyr­ir­tæk­is­ins MMR sýnir fylg­is­aukn­ingu hjá Sjálf­stæð­is­flokknum um þrjú pró­sentu­stig, á sama tíma og Viðreisn, keppi­nautur Sjálf­stæð­is­flokk­ins á hægri væng stjórn­mál­anna, tapar 2,7 pró­sentu­stigum.

Á sama tíma eykst fylgi Vinstri grænna um tvö pró­sentu­stig, upp í 10,7%, sem er ríf­lega sex pró­sentu­stigum minna en í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum 2017.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina fer upp í 41,9%, sem er meiri stuðn­ingur en við síð­ustu fjórar rík­is­stjórnir að sama tíma liðnum eða minna.

Á sama tíma fellur Sam­fylk­ingin um 1,5% í stuðn­ingi, niður í 15,1%, og Mið­flokk­ur­inn fellur um 1,8%, í 13,3%. 

Athygli vekur að Sós­í­alista­flokkur Íslands styrkir stöðu sína og nær fimm pró­senta þrösk­uldnum til að ná fólki inn á þing. Forsenda þess að eiga rétt á jöfn­un­ar­sæti í alþing­is­kosn­ingum er að hafa fengið 5% fylgi.

Fylgi flokks­ins mælist 5,3 pró­sent, en mæld­ist 4,9% í síð­ustu könnun MMR í jan­úar. Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur áður mælst mest með 5,3% í Þjóð­ar­púlsi Gallup í jan­úar í fyrra en hefur mælst með minni stuðn­ing þar til nú. Sós­í­alistar fá meira fylgi en Flokkur fólks­ins, sem náði fjórum þing­mönnum inn á þing 2017, en tveir þeirra gengu í Mið­flokk­inn. Þá vantar Sós­í­alista aðeins 1,5 pró­sentu­stig til að ná Fram­sókn­ar­flokknum í fylgi.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist nú með 22% fylgi en fékk 25,2% atkvæða í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum. Það er sögu­lega lágt hjá flokknum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár