Nýtt efni

Oddvitasamtöl í Tjarnarbíó
Oddvitasamtöl Heimildarinnar hefjast í kvöld, en þá mætast Sanna Magdalena Mörtudóttir fyrir Vinstrið og Silja Sóley Birgisdóttir fyrir Sósíalistaflokk Íslands í fyrri umferð og Einar Þorsteinsson fyrir Framsókn og Björg Magnúsdóttir fyrir Viðreisn í þeirri seinni.

Oddvitasamtöl Heimildarinnar hefjast í kvöld
Lesendur geta sent inn spurningar fyrir oddvitasamtöl Heimildarinnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Í kvöld mætast Sanna Magdalena Mörtudóttir fyrir Vinstrið og Silja Sóley Birgisdóttir fyrir Sósíalistaflokk Íslands í fyrri umferð og Einar Þorsteinsson fyrir Framsókn og Björg Magnúsdóttir fyrir Viðreisn í þeirri seinni.

Leiðtogi Norður-Kóreu ítrekar stuðning við „heilagt stríð“ Rússa
Rússneskir embættismenn heimsækja Norður-Kóreu. Á fundi með varnarmálaráðherranum hét Kim Jong-un áframhaldandi stuðningi í stríðinu við Úkraínu. Flugeldum var skotið upp og látinna hermanna minnst fyrir hetjudáð. Er því haldið fram að þeim hafi verið fyrirskipað að svipta sig lífi frekar en að nást á lífi.

Kína hótar ESB gagnaðgerðum
„Made in Europe“ stefna Evrópusambandsins til verndar störfum kallar fram hótanir frá Kína um mótvægisaðgerðir.

„Ef við viljum gera róttækar breytingar á hagkerfinu erum við betur sett utan ESB“
Fullveldi Íslands og sjálfstæði í peninga- og ríkisfjármálum þarf að vera til staðar ef vinstri stjórn kemst til valda og vill gera róttækar breytingar, segir Jökull Sólberg Auðunsson, stjórnarmaður í Til vinstri við ESB. Hann vill horfa til BRICS-ríkjanna og varar við möguleikanum á herskyldu innan ESB.


Þorvaldur Örn Árnason
Alræði auðsvalds
Auðsvald eða almannavald? Hver eru ríkjandi trúarbrögð – og hvert stefnum við?

Íslenskt kollagen framleitt á Blönduósi
Norðan heiða, nánar tiltekið á Blönduósi, er íslenskt kollagen framleitt. Um er að ræða fyrirtækið Protis sem nýtir sér verksmiðju Vilko þar á slóðum, en um er að ræða sömu eigendahópa að miklu leyti. Það er ýmislegt í farvatninu hjá þeim, meðal annars samstarf við drykkjarvöruframleiðendur erlendis sem eigandinn bindur miklar vonir við.

Sólveig Anna Jónsdóttir og Stefán Ólafsson
Ofsagróði leigusala
Þegar leiga hækkar óhóflega þá eykst hagnaður leigusala óhóflega, rétt eins og að hagnaður banka eykst stórlega þegar Seðlabankinn hækkar vexti, enda vaxtatekjur helstu tekjur bankanna.

Pressa í borginni: Oddvitasamtöl í Tjarnarbíó
Heimildin efnir til samtals við oddvita í Reykjavíkurborg. Streymt verður frá umræðunum á vefnum auk þess sem hægt er að tryggja sér sæti í salnum.


Jón Trausti Reynisson
Með miklu stærra bílastæði en þú
Herra Hnetusmjör heldur áfram að rappa um eignastöðu sína og tekjuflæði og bætir við lóð, bíl og stæði.

Lífeyrissjóðskerfið fær aukið frelsi og sjávarútvegur nýtur góðs af
Myntbandalag mun að líkindum auka samkeppni, efla efnahagsumhverfi Íslendinga auk þess sem myntbandalag myndi færa lífeyrissjóðum aukið frelsi til fjárfestinga. Sjávarútvegurinn nyti einnig góðs af því.


Eggert Gunnarsson
Horfðu til himins
Eggert Gunnarsson rekur sögulegan aðdraganda átakanna í Íran og varar við hættulegri þróun heimsmála, sérstaklega kjarnorkuógn og veikara alþjóðasamstarfi.

„NATO verður að halda áfram að vera sameinað“
Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, segir að styrkja verði evrópska stoð NATO „sem verður augljóslega að vera viðbót við þá bandarísku“. Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, sagðist „engar áhyggjur“ hafa eftir að nafnlaus heimildarmaður Reuters sagði Bandaríkjastjórn skoða leiðir til að víkja Spáni úr Atlantshafsbandalaginu.

Skátafjör og aldargamalt víðavangshlaup
Sumardeginum fyrsta var fagnað víða á landinu í gær en í Reykjavík settu skátafjör og aldargamalt víðavangshlaup svip sinn á daginn. Þó að gjarnan sé fremur kuldalegt á sumardeginum fyrsta markar hann upphaf sumarmánaðanna sex í gamla norræna tímatalinu. Dagurinn er fyrsti dagur Hörpu og er haldinn fyrsta fimmtudag eftir 18. apríl ár hvert.

Algör viðsnúningur á afstöðu til stöðu efnahagsmála
Meirihluti íslensku þjóðarinnar telur efnahagsstöðuna á Íslandi slæma. Aðeins í efstu aldurshópunum eru fleiri sem telja stöðuna góða. Ýmis teikn eru á lofti sem gætu skýrt þess afstöðu en verðbólga, vextir og atvinnuleysi eru á uppleið á sama tíma og fasteignamarkaður nálgast frostmark.

Athugasemdir