Reykjavík suðursins

Heimsókn til Tíflís, höf­uð­borgar Georgíu, og lýs­ing á sam­skiptum við georgíska landamæra­verði sem hljóta að mati höf­undar að telj­ast þeir vin­gjarn­leg­ustu í heimi.

Reykjavík suðursins
Tíflís Ólíkt flestum Evr­ópu­borgum fyrrum Sovét var Tíflís ekki lögð í rúst í stríð­inu og því ekki end­ur­reist af komm­ún­istum þó finna megi Sov­ét­blokkir í útjaðr­inum. Mynd: Valur Gunnarsson

Í Rúss­landi gera landamæra­verðir í því að vera ógn­vekj­andi, enda vita þeir sem er að Vest­ur­landa­búar eru smeykir við Rússa í ein­kenn­is­bún­ingum. Í Úkraínu eru þeir hins vera vin­gjarn­legir, vilja ganga í augun á Evr­ópu­mönnum og kalla á vini sína til að sjá íslenskan passa í fyrsta sinn. En hvernig ætli tekið sé á móti manni í Georgíu?

„Er þetta fyrsta skiptið þitt hér?“ spyr konan bak við glerið og rýnir stíft á pass­ann. „Já,“ segi ég. Þykir það grun­sam­legt? Varla. „Vel­kom­inn,“ segir hún og réttir mér vín­flösku. Hvað sem öðru líður hljóta georgískir landamæra­verðir að vera þeir vin­gjarn­leg­ustu í heimi.

Það kemur í ljós að við­tök­urnar eru byggðar á gam­alli georgískri hefð. Í Sololaki-fjöllum gnæfir styttan Kartliis Deda, sem merkir víst „móðir Georgía“, yfir borg­inni. Hefur hún vín­glas í einni hendi og sverð í hinni. Vínið er til að bjóða þá vel­komna sem koma með friði en sverðið er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár