Stefán Eiríksson nýr útvarpsstjóri

Stjórn Rík­is­út­varps­ins sam­þykkti sam­hljóða á fundi sínum í gær að ráða Stefán.

Stefán Eiríksson nýr útvarpsstjóri
Nýr útvarps­stjóri Stefán hefur verið ráð­inn útvarps­stjóri RÚV.

Stefán Eiríks­son hefur verið ráð­inn útvarps­stjóri Rík­is­út­varps­ins. Stefán hefur fram til þessa verið borg­ar­rit­ari Reykja­vík­ur­borgar en var áður sviðs­stjóri vel­ferð­ar­sviðs borg­ar­innar og þar áður lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Stefán er ráð­inn til fimm ára og tekur hann við af Magnúsi Geir Þórð­ars­syni sem lét af störfum á síð­asta ári í kjöl­far þess að hann var skip­aður Þjóð­leik­hús­stjóri.

Stefán er mennt­aður lög­fræð­ingur, lauk emb­ætt­is­prófi frá Háskóla Íslands árið 1996 og hdl. prófi árið 1997. Hann hefur auk þess lokið sér­hæfðu stjórn­enda­námi Bloomberg Harvard City Leaders­hip Ini­ti­ative.

Stefán starf­aði sem blaða­maður á Tímanum á árunum 1990 til 1991 og á Morg­unablað­inu á árunum 1991 til 1996, sam­hliða námi. Stefán starf­aði í sendi­ráði Íslands í Brussel á árunum 1999 til 2001 en var svo skip­aður skrif­stofu­stjóri dóms­mála- og lög­gæslu­skrif­stofu, dóms- og kirkju­mála­ráðu­neyt­is­ins 2002. Hann var skip­aður lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 15. júlí 2006 og gegndi því emb­ætti til árs­ins 2014, þegar hann var ráð­inn sviðs­stjóri vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar. Hann var síðan ráð­inn borg­ar­rit­ari í des­em­ber 2016 og hefur gegnt hlut­verki stað­geng­ils borg­ar­stjóra.

Stefán tekur form­lega við starf­inu 1. mars næst­kom­andi.

Meðal þeirra sem óska Stefáni vel­farn­aðar er Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík. „Það er ástæða til að óska Rík­is­út­varp­inu og stjórn Rúv ohf. til ham­ingju með þessa ákvörðum. Stefán Eiríks­son er sann­ar­lega fengur fyrir útvarpið og að sama skapi skilur hann eftir sig skarð sem nú þarf að fylla hjá borg­inni. Hann hefur verið frá­bær sam­starfs­maður, fyrst sem lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, síðan sviðs­stjóri vel­ferð­ar­sviðs borg­ar­innar og síð­ast en ekki síst sem borg­ar­rit­ari og stað­geng­ill borg­ar­stjóra. Hann fékk því mín bestu með­mæli þegar eftir því var leitað, enda á Stefán ekki annað skilið: frá­bær og traustur sam­starfs­maður, leið­togi og heil­steypt mann­eskja svo fátt eitt sé talið - og fjári skemmti­legur í þokka­bót. Til ham­ingju Rúv og gangi þér allt að sólu, kæri Stebbi!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár