Nýr útvarpsstjóri í Morfís – „Jörðin okkar er eins og lítil rós, falleg en viðkvæm“

Stefán Eiríks­son, nýráð­inn útvarps­stjóri, þótti mælskur þegar á ung­lings­árum. Var val­inn ræðu­maður Íslands í úrslita­keppni Morfís árið 1989. „Þegar ég er orð­inn gam­all maður bíður mín það erf­iða hlut­skipti að færa barna­barni mínu þessa rós.“

Nýr útvarpsstjóri í Morfís – „Jörðin okkar er eins og lítil rós, falleg en viðkvæm“
Dramat­ísk ræða Stefán var útnefndur ræðu­maður Íslands árið 1989.

Stefán Eiríks­son, nýráð­inn útvarps­stjóri, hefur verið áber­andi allt frá unga aldri. Á náms­árum sínum var hann virkur þátt­tak­andi í félags­lífi þeirra skóla sem hann stund­aði nám við og gegndi þar trún­að­ar­stöðum.

Stefán lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum við Hamra­hlíð árið 1990. Hann keppti í Gettu betur fyrir hönd skól­ans en einnig í Morfís, Mælsku- og rök­ræðu­keppni fram­halds­skól­anna. Var hann meðal ann­ars val­inn ræðu­maður Íslands í úrslita­keppni Morfís árið 1989, en með­fylgj­andi mynd­brot er einmitt úr þeirri keppni. Umræðu­efni keppn­innar í þeirri úrslita­viður­eign var Hafa vís­indin bætt heim­inn? Gera má ráð fyrir að Stefán hafi haft efa­semdir um að svo væri, sé horft á ræðu­brotið hér að neðan. 

Stefán keppti einnig fyrir hönd Mennta­skól­ans við Hamra­hlíð í Gettu betur, spurn­inga­keppni fram­halds­skól­anna.  Árið 1990 komst hann ásamt liðs­fé­lögum sínum, Jóni Yngva Jóhanns­syni og Snorra Ein­ars­syni, í und­an­úr­slit keppn­innar en þar hafði lið Versl­un­ar­skóla Íslands betur svo nam fjórum stigum. 

Stefán í Gettu betur.Stefán er hér fyrir miðju.

Þá var Stefán for­maður Orator, félags laga­nema við Háskóla Íslands, árin 1993-1994 og sat í Stúd­enta­ráði Háskóla Íslands fyrir hönd Vöku árin 1992 til 1994.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár