Óhagstæð lög og stefna stjórnvalda hindrar innflytjendur á vinnumarkaði

Fjöl­menn­ing­ar­ráð Reykja­vík­ur­borgar vill að gripið verði til aðgerða til að bæta aðgengi inn­flytj­enda að ábyrgð­ar­störfum. Stefna stjórn­valda skapi jafn­vel fleiri vanda­mál en hún leysir.

Óhagstæð lög og stefna stjórnvalda hindrar innflytjendur á vinnumarkaði
Ráðhús Reykja­víkur Fjöl­menn­inga­ráð hvetur borg­ina til að grípa til aðgerða í málum inn­flytj­enda.

Reykja­vík­ur­borg þarf að grípa til aðgerða til að bæta aðgengi inn­flytj­enda að ábyrgð­ar­störfum innan borg­ar­kerf­is­ins og mögu­leikum til starfs­þró­unar. Þetta er mat fjöl­menn­ing­ar­ráðs Reykja­vík­ur­borgar sem sam­þykkt var á fundi þess á mánu­dag.

Á fund­inum var kynnt skýrsla um jafn­rétti inn­flytj­enda á atvinnu­mark­aði sem unnin var fyrir vel­ferð­ar­ráðu­neytið í fyrra. Í henni kemur fram að margs­konar hindr­anir standi í vegi mennt­aðra inn­flytj­enda að vinnu hjá hinu opin­bera. „Þar á meðal er ófull­nægj­andi íslensku­kunn­átta, sem vegur þungt, en samt sem áður má rekja margar hindr­anir til óhag­stæðra laga og stefnu stjórn­valda, sem og fram­kvæmdar,“ segir í skýrsl­unni, sem kynnt var fyrir fjöl­menn­ing­ar­ráði á fund­inum.

Tekið er fram að athug­anir sýni að stefnu­mótun Íslands vegna aðlög­unar inn­flytj­enda skapi í raun fleiri hindr­anir en lausnir fyrir þátt­töku inn­flytj­enda í sam­fé­lag­inu. „Nið­ur­stöður benda jafn­framt til þess að flókið sé fyrir inn­flytj­endur að fá menntun sína metna, bæði vegna laga­legra og skipu­lags­legra hind­r­ana, þar sem gegn­sæi skortir og einnig þar sem fleiri en 10 lög­að­ilar sjá um mat mennt­unar og reynslu hér­lendis.“

Fjöl­menn­ing­ar­ráð hvetur borg­ina til að skoða þær hug­myndir að aðgerðum sem nefndar eru í skýrsl­unni. Á meðal þeirra eru ein­földun mats­ferlis á erlendri menntun og tíma­bundnar jákvæðar aðgerðir sem miða að sam­þætt­ingu á vinnu­mark­aði fyrir inn­flytj­endur almennt sem og konur af erlendum upp­runa. Meðal þeirra gætu verið starfs­nám, nám­skeið í stjórn­sýslu­rétti og fram­kvæmd, brú­ar­nám­skeið sem miða að því að fá menntun og reynslu metna, sér­sniðin íslensku­nám­skeið og fleira.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár