Fjölskylda sem varð ríkari vegna stríðs, píramídar, mútugreiðslur og ofboðslegur hiti

Mest lesnu erlendu fréttir árs­ins á Kjarn­anum komu víða að. Viðfang þeirra voru meðal ann­ars mold­rík banda­rísk fjöl­skylda, rétt­ar­höld í Namibíu, ís í Norður-Íshafi, Egypta­land og vest­an­verð Evrópa.

5. Ein ríkasta fjölskyldan verður enn ríkari vegna stríðsins í Úkraínu

Systk­inin James, Austen og Marianne, barna­barna­börn Wallice nokk­urs Cargill, skut­ust upp á lista yfir 500 rík­ustu mann­eskjur ver­aldar vegna stríðs­ins í Úkraínu.

Langafinn stofn­aði fyr­ir­tæki árið 1865 sem hefur fært afkom­endum hans gríð­ar­leg auð­æfi.

Lestu frétt­ina í heild hér.

4. „Guð minn góður, af hverju hefði ég átt að fá greiddar mútur?“

Tam­son „Fitty“ Hatuikulipi, einn hinna ákærðu í Sam­herj­a­mál­inu, sagð­ist í júlí aldrei hafa þegið mútu­greiðslur frá Sam­herja. „Guð minn góð­ur, af hverju hefði ég átt að fá greiddar mút­ur? Ég var ekki hand­hafi kvóta. Ég fékk greitt sam­kvæmt þeirri vinnu sem ég vann. Pen­ing­arnir voru greiddir með lög­legum hætti fyrir þjón­ustu sem var veitt.“

Hann sagði Jóhannes Stef­áns­son, aðal­vitni sak­sókn­ar­ans, hafa viljað eyði­leggja fyrir Samherja með öllum ráðum og því bendlað sig við málið.

Lestu frétt­ina í heild hér.

3. Ískyggilegar niðurstöður úr Norður-Íshafi

Lífríkið undir ísnum í Norður-Íshafinu er ekki það sem vís­inda­menn áttu von á. Í rann­sókn sem birt­ist síð­sum­ars kom í ljós að vist­kerfið ein­kenn­ist ekki af teg­undum sem helst ein­kenna hin köldu heim­skauta­svæði.

Lestu frétt­ina í heild hér.

2. Hafa leyst hluta ráðgátunnar um píramídana

Þeir sem byggðu píramídana stór­kost­legu í Egypta­landi nýttu sér að öllum lík­indum nú upp­þorn­aða þverá Níl­ar­fljóts til að flytja bygg­ing­ar­efnið á svæð­ið.

Þetta er nið­ur­staða rann­sóknar sem land­fræð­ing­ur­inn Hader Sheisha sem starfar við Aix-Marseille háskóla í Frakk­landi gerðu og birt var í lok ágúst.

Lestu frétt­ina í heild hér.

1. Söguleg hitabylgja í uppsiglingu

Hún var sögð geta orðið lífs­hættu­leg, hita­bylgjan sem geis­aði í vest­an­verðri Evr­ópu um miðjan júlí og átti sam­kvæmt spám eftir að teygja sig víð­ar.

Veð­ur­fræð­ingar ótt­uðust að hit­inn mikli ætti eftir að ríkja í jafn­vel vik­ur og að hita­bylgjan yrði jafn­vel sú mesta á þessum slóðum í tæpar þrjár aldir.

Lestu frétt­ina í heild hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár