Ískyggilegar niðurstöður úr Norður-Íshafi

Lífríkið undir ísnum í Norður-Íshafinu er ekki það sem vís­inda­menn áttu von á. Í nýrri rann­sókn kom í ljós að vist­kerfið ein­kenn­ist ekki af teg­undum sem helst ein­kenna hin köldu heim­skauta­svæði.

Rannsóknarskipið Hákon krónprins við rannsóknir í Norður-Íshafi.
Rann­sókn­ar­skipið Hákon krón­prins við rann­sóknir í Norður-Íshafi. Mynd: Norska hafrannsóknarstofnunin

Um helm­ingur allra þeirra teg­unda sem finn­ast undir ísnum í Norður-Íshafi til­heyra hlýrri svæðum heims­haf­anna. Á þessum slóðum er fáa fiska að finna en fjöl­margar aðrar líf­verur sem eru ekki dæmi­gerðar fyrir heim­skauta­svæði.

Þetta segir Randi Ing­vald­sen, vís­inda­kona við norsku Haf­rann­sókna­stofn­un­ina um nýja og nýstár­lega rann­sókn á líf­ríkið í haf­inu á hjara ver­aldar. Ísbrjót­ur­inn Hákon krón­prins var nýttur til verks­ins og flot­varpa notuð við að toga undan ísnum í kringum 87,5 gráðu norð­lægrar breiddar, rétt undan hinum eig­in­lega norð­ur­pól.

[adspot]

Rann­sóknin var gerð í fyrra og var trollið dregið inn tólf sinnum. Sam­an­lagt fund­ust hins vegar aðeins sjö fiskar m.a. þorskur, grá­lúða og lýsa. Það hljómar skringi­lega en kemur ekki á óvart á þessum slóðum, segir Ing­vald­sen, sem tók þátt í rann­sókn­inni, við Norska rík­is­út­varpið, NRK. Hún segir það hafa verið almenn vit­neskja að ekki væri mikið um fisk í Norður-Íshafinu.

Annað sem kom upp úr kaf­inu við rann­sókn­ina kom veru­lega á óvart. Fyrst og fremst sú stað­reynd að afl­inn sam­an­stóð fyrst og fremst af far­teg­undum. „Við fundum næstum því fleiri teg­undir sem eru algengar á suð­rænni slóðum en af þeim sem eru algengastar á heim­skauta­slóðum,“ segir Ing­vald­sen við NRK. Þá fannst einnig mak­ríll og marglyttur. Fleiri marglyttur en fiskar veidd­ust. Aðeins sjö af þeim 29 teg­undum sem fund­ust við rann­sókn­ina eru taldar hrein­rækt­aðar heim­skauta­teg­undir.

Fylgja hafstraumum

Helsta skýr­ingin er talin sú að teg­undir fylgja oft haf­straumum. Og þeir eru að breyt­ast. Bodil Bluhm, vís­inda­maður við UiT, háskóla norð­ur­slóða, segir nú mik­il­vægt að fylgj­ast með hvernig þessum teg­undum reiðir af. Heim­skauta­svæðin eru að taka miklum breyt­ingum vegna lofts­lags­breyt­inga af manna völdum. Hitastig fer hækk­andi og ísinn bráðnar hraðar en áður. „Þessi rann­sókn sýnir að [lofts­lags­breyt­ingar] eru raun­veru­lega að eiga sér stað,“ segir Nils Gunnar Kvamstø, „og að breyt­ing­arnar hafi áhrif á sjáv­ar­líf­ríkið.“

Nú þegar fiskur virð­ist sækja norðar vegna hlýn­unar sjávar, breyt­inga á haf­straumum og fleiri þátta, mun það auka ásókn í veiðar, líka í Norður-Íshafinu. Bluhm bendir á að miðað við nið­ur­stöður þeirra rann­sókna gætu veiðar á þeim slóðum ekki verið arð­bærar.

Brátt verði ekki aftur snúið

Hún segir að þótt nið­ur­staðan hafi verið þessi, að mjög lítið af fiski sé að finna svo norð­ar­lega hafi rann­sóknin gefið ýmsar mik­il­vægar upp­lýs­ingar – stoppað í nokkur göt í þekk­ingu okkar.

Kvamstø segir nið­ur­stöð­urnar ískyggi­legar. Sú stund nálgist að ekki verði aftur snúið. „Við verðum að nýta þá vit­neskju sem við höfum aflað til athafna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár