Ein ríkasta fjölskyldan verður enn ríkari vegna stríðsins í Úkraínu

Systk­inin James, Austen og Marianne, barna­barna­börn Wallice nokk­urs Cargill, hafa skot­ist upp á lista yfir 500 rík­ustu mann­eskjur ver­aldar vegna stríðs­ins í Úkraínu. Langafinn stofn­aði fyr­ir­tæki árið 1865 sem hefur fært afkom­endum hans gríð­ar­leg auð­æfi.

Löndin við Svartahaf, þeirra á meðal Úkraína, hafa verið stórtæk í útflutningi á hveiti á síðustu árum.
Löndin við Svarta­haf, þeirra á meðal Úkraína, hafa verið stór­tæk í útflutn­ingi á hveiti á síð­ustu árum. Mynd: Pexels

Á nýbirtum lista Bloomberg yfir 500 rík­ustu mann­eskjur heims er að finna hóp fólks sem teng­ist nánum fjöl­skyldu­böndum. Nokkur þeirra voru þar fyrir en önnur eru „nýliðar“ meðal mestu millj­arða­mær­ing­anna og skýr­ingin á fyrst og fremst rætur að rekja til stríðs­rekstrar Rússa í Úkraínu.

Stríð hafa áhrif á heims­hag­kerfið. Allt á það til að hækka, hvort sem það er matur, orka eða jarð­málmar hvers konar. Stríðið í Úkraínu er þar engin und­an­tekn­ing, stríð sem hefur staðið í meira en fimm­tíu daga, lagt heilu og hálfu borg­irnar í rúst, orðið til þess að millj­ónir hafa lagt á flótta og hund­ruð ef ekki þús­undir almennra borg­ara látið lífið eða særst. Og því virð­ist ekk­ert ætla að ljúka á næst­unni. Rússar gerðu áhlaup á margar borgir Úkraínu í nótt og morgun. Það versta gæti enn átt eftir að koma, vilja úkra­ínsk stjórn­völd meina.

[adspot]

Verð á mat­vælum í heim­inum fer sam­hliða stríð­inu hækk­andi og það veru­lega. Sam­ein­uðu þjóð­irnar vara við enn frek­ari hækk­unum og að þær gætu orðið meiri en nokkru sinni áður. Matvæla- og land­bún­að­ar­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna (FAO) benda á að mat­ar­vísi­tala hennar hafi hækkað um tæp 13 pró­sent milli febr­úar og mars og hafi tekið „risa­stórt stökk“ upp í „nýjar og hæstu hæðir“ frá því að hún var fyrst tekin saman í upp­hafi tíunda ára­tugar síð­ustu aldar.

Þetta er ekki eina „risa­stökkið“ sem orðið hefur að und­an­förnu því á öðrum lista, millj­arða­mær­inga­lista Bloomberg, hafa sumir einnig tekið gríð­ar­leg stökk síð­ustu daga og vikur. Nýliðar vik­unnar eru systk­ini sem til­heyra hinni ofur­ríku, banda­rísku Cargill-fjöl­skyldu. Þau James Cargill, Austen Cargill og Marianne Liebmann, hafa nú skot­ist upp á lista yfir 500 rík­ustu mann­eskjur jarðar og slást þar með í hóp frændsystk­ina sinna sem þar voru fyrir þeirra Pauline Keinath og Gwendolyn Sontheim Meyer. Öll eru þau barna­barna­börn Wallace Cargill sem stofn­aði árið 1865 fyr­ir­tækið Cargill. Fyr­ir­tæki sem nú er með 155 þús­und starfs­menn í vinnu í um sjö­tíu löndum víðs vegar um heim­inn. Og þetta fyr­ir­tæki, sem frændsystk­inin fimm eiga meiri­hluta í, verslar með ýmis­legt en fyrst og fremst mat­væli.

Methagnaður í fyrra

Auður þeirra er sam­kvæmt Bloomberg met­inn á bil­inu 5,4-8 millj­arða banda­ríkja­dala, eða um 650-1.000 millj­arða íslenskra króna. Cargill-sam­steypan, sem á mikið undir í mat­væla­mark­aði sem og við­skiptum með orku og málma, býst við met hagn­aði í ár og að hann slái met síð­asta árs en þá nam hann 5 millj­örðum dala. Fyr­ir­tækið rekur jafnt naut­gripabú sem gríð­ar­stór slát­ur­hús, ræktar korn, pakkar mat­vælum af öllum toga og dreifir. Cargill-fjöl­skyldan, sem á um 90 pró­sent í fyr­ir­tæk­inu, er talin sú fjórða rík­asta í Banda­ríkj­unum.

Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa varað við „högg­bylgju“ áhrifa á hrá­vöru­mark­aði hafa átt sér stað, m.a. á korn fyrir búfénað og græn­met­is­ol­íur. FAO segir að verð þessum vörum, sem og korn­vörum almennt og kjöti, séu hærra en nokkru sinni.

Í grein á vef breska blaðs­ins Guardian, þar sem fjallað er um Cargill sem og hvers vegna stríðið hafi þessi áhrif á mark­aði, kemur fram að rof hafi orðið í flutn­ingum um Svarta­hafið en löndin umhverfis það hafa flutt út meira en fjórð­ung alls hveitis í heim­inum, svo dæmi sé nefnt. Úkraína var stór­tækt í útflutn­ingi á bæði hveiti og maís og er bæði sú fram­leiðsla og sá útflutn­ingur í upp­námi. Þá hefur Rússland lagt mikið til marg­vís­legs útflutn­ings en þar sem landið sætir nú ýmsum við­skipta­þving­unum, bæði hvað varðar sölu á vörum og flutn­inga, m.a. með skipum, hefur það áhrif sem hrísl­ast um allt alþjóða hag­kerfið.

Í grein Guardian er tekið sem dæmi að verð á hveiti hafi hækkað um 19,7 pró­sent á einum mán­uði og verð á maís um 19 pró­sent. Aðrar korn­teg­undir hafa sömu­leiðis hækkað veru­lega í verði.

Það er ekki aðeins stríðið í Úkraínu sem hefur haft áhrif á hagnað Cargill-sam­steypunnar. Nokkru fyrir stríð var verð á ýmsum varn­ingi, m.a. mat­vælum, farið að hækka sem rekja má til kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Á meðan far­aldr­inum stóð rofn­uðu ýmsar fram­leiðslu- og flutn­ings­keðjur og við­búið var að það myndi taka tíma að kom­ast aftur í samt horf.

Hagnaður Cargill jókst um 63 pró­sent í fyrra miðað við árið 2020 og hefur aldrei verið meiri í 157 ára sögu fyr­ir­tæk­is­ins.

Íbúar á vest­ur­löndum geta margir hverjir kom­ist af þrátt fyrir þetta. Það eru fátæk­ustu jarð­ar­bú­arnir sem munu helst súpa seyðið af þessum hækk­unum – hækk­unum sem gætu, verði þær við­var­andi, steypt millj­ónum ofan í hyl­dýpi fátæktar með ófyr­ir­séðum afleið­ingum til fram­tíðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

alþjóðaviðskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár