Verði að auka útflutning um milljarð á viku

Utan­rík­is­ráð­herra segir nauð­syn­legt fyrir Íslend­inga að stór­auka útflutn­ings­verð­mæti sín næstu 20 árin til þess að halda uppi sömu lífs­kjörum.

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra Mynd: Birgir Þór Harðarson

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra segir íslenska þjóðin verða að auka útflutn­ings­verð­mæti um einn millj­arð á viku næstu tutt­ugu árin, vilji hún halda uppi sömu lífs­kjörum. Þetta sagði Guð­laugur í sam­tali við útvarps­stöð­ina K100 í morgun, en mbl.is greinir fyrst frá.

Í við­tal­inu talar Guð­laugur um alþjóða­við­skipti, en hann telur það vera afar mik­il­vægt að ekki verði til neinar við­skipta­hindr­anir í Evrópu á næstu árum. Í því sam­bandi nefnir hann úrsögn Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu og full­yrðir jafn­framt að í henni liggja ýmis tæki­færi. [adspot]

Samkvæmt honum er óljóst hvort Ísland muni semja sjálft um frí­versl­un­ar­samn­ing við Bretland eða með EFTA-ríkj­unum, en öll við­brögðin sem hann hafi fengið frá breskum stjórn­völdum hafi verið jákvæð.

[links]Guð­laugur lýsti einnig yfir áhyggjum yfir stöðu EES-samn­ings­ins, en hann ótt­að­ist að grafið sé undan honum. Sem aðgerð gegn þeirri þróun sagði ráð­herr­ann rík­is­stjórn­ina hafa aukið fjár­út­lát vegna hags­muna­gæslu Íslands í EES um 200 millj­ónir króna.

Einnig minnt­ist Guð­laugur á við­skipti utan Evrópu, en hann sagði Íslend­inga þurfa að hafa aðgang að nýjum mörk­uðum sem væru að mynd­ast sam­hliða rísandi milli­stéttum um allan heim. Aukin við­skipti við nýja mark­aði væru nauð­syn­leg, því Íslend­ingar þyrftu að auka útflutn­ing sinn veru­lega til þess að halda í sömu lífs­kjör og við búum nú við:

„Ef við Íslend­ingar ætlum að halda uppi okkar lífs­kjörum eins og við viljum sjá, verðum við að auka útflutn­ings­verð­mæti okkar um einn millj­arð á viku næstu tutt­ugu árin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

alþjóðaviðskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár