Mistök TPP og utanríkisarfleifð Obama

Nýkjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna, Donald Trump, hefur til­kynnt að hann muni yfir­gefa frí­versl­un­ar­við­ræð­urnar um Trans-Pacific Partners­hip (TPP)-samn­ing­inn um leið og for­seta­tíð hans byrjar í jan­úar. Afleið­ing­arnar gætu orðið fleiri en bara efna­hags­legar.

Rúm átta ár eru síðan TPP-við­ræð­urnar hófust og voru aðild­ar­lönd alls tólf tals­ins (Ástralía, Banda­ríkin, Brúnei, Kanada, Síle, Japan, Malasía, Mexíkó, Nýja-Sjáland, Perú, Singapúr og Víetnam) þegar samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður í febr­úar á þessu ári en hann á eftir að verða full­gildur hjá aðild­ar­lönd­unum. Eins og nafnið gefur til kynna eiga aðild­ar­löndin það sam­eig­in­legt að vera stað­sett við strendur Kyrra­hafs­ins, en þau hafa sam­eig­in­legan íbúa­fjölda á um 800 millj­ónir manns og standa fyrir um 40% af heims­hag­kerf­inu. TPP var einn af horn­steinum svo­kall­aðrar "Pivot to Asia"-stefnu frá­far­andi for­seta Banda­ríkj­anna, Barack Obama, og stefndi að því beina áherslu utan­rík­is­stefnu lands­ins að Asíu til þess að tryggja leið­andi hlut­verk Banda­ríkj­anna í fjöl­menn­asta og hrað­ast vax­andi efna­hags­svæði heims. Samn­ing­ur­inn, sem hefði einnig verið mik­il­vægur hluti af umdeildri utan­rík­is­póli­tískri arf­leifð Obama, virt­ist eiga sér enga fram­tíð sama hvor for­seta­fram­bjóð­and­inn hefði unnið. Hvað veldur því að einn metn­að­ar­fyllsti frí­versl­un­ar­samn­ingur sög­unnar hafi ekki náðst og hverjar eru afleið­ing­arnar?

Vernd­ar­stefna og sveiflu­ríki

Gagnrýni gegn TPP í Banda­ríkj­unum, rétt eins og gegn frí­versl­un­ar­samn­ingum almennt í þró­uðum ríkjum, bein­ist að miklu leyti að ótta um að fjöl­mörg iðn­að­ar­störf flytj­ist til ann­arra landa þar sem launa­kjör eru lægri. Þar að auki stuðli þessi aukna sam­keppni að eins konar "kapp­hlaupi að botn­inum" þar sem umhverfis- og mann­rétt­inda­staðlar fara sílækk­andi. Andúð við TPP er nátengd vernd­ar­stefnu og þeirri hug­mynd að alþjóða­við­skipti séu núllsúmmu­leikur, og var hamrað á því í kosn­inga­bar­áttum margra fram­bjóð­enda, meðal ann­ars Trump og Bernie Sanders, að það væri frí­verslun hnatt­væð­ing­ar­innar að kenna að iðn­að­ar­störf hyrfu úr Banda­ríkj­unum.

Rök af þessu tagi fengu góðan hljóm­grunn víðs­vegar í Banda­ríkj­unum og einna helst í ríkjum sem hafa séð þús­undir iðn­að­ar­starfa hverfa á síð­ustu árum og ára­tugum en mörg þeirra, ríki á borð við Michigan, Ohio og Illinois, eru yfir­leitt sveiflu­ríki í for­seta­kosn­ingum. Meira að segja Hillary Clinton, for­seta­fram­bjóð­andi Demókra­ta­flokks­ins, sem var utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna þegar TPP-samn­inga­við­ræð­unum lauk og kall­aði samn­ing­inn "gold stand­ard" frí­versl­un­ar­samn­inga, skipti um skoðun í kosn­inga­bar­átt­unni og tal­aði fyrir vernd­ar­stefnu í til­raun til að fá þessi gíf­ur­lega mik­il­vægu atkvæði sveiflu­ríkj­anna.

Ofmetnaður er falli næst

Metnaður TPP felst í því að til við­bótar við að lækka hefð­bundna versl­un­ar­tolla, sem þegar voru til­tölu­lega lágir milli aðild­ar­landa, inn­heldur hann einnig ákvæði um við­skipta­hindr­anir aðrar en tolla. Dæmi um slíkar hindr­anir eru reglu­gerðir hjá hinu opin­bera sem mis­muna gegn erlendum fyr­ir­tækjum en við­skipta­lög af þessu tagi eru meg­in­hindr­anir frí­versl­unar í þró­uðum ríkjum. Þá inni­heldur samn­ing­ur­inn einnig ýmsa staðla varð­andi umhverf­is­mál, kjör laun­þega og höf­und­ar­rétt, og mek­anísma sem refsa löndum sem upp­fylla ekki staðl­ana. Metnaður TPP hefði veitt Banda­ríkj­unum leið­toga­hlut­verk í efna­hags­þróun Austur-Asíu og sett háar kröfur til Kína og ann­arra landa sem geta sóttu um aðild að samn­ingnum síðar. Hins vegar gerðu umsvif samn­ings­ins það að verkum að við­ræð­urnar dróg­ust á lang­inn og ljóst er að hinn sex þús­und blað­síðna langi samn­ingur verði ekki að veru­leika að þessu sinni.

Samhliða TPP-við­ræð­unum leiddi Kína aðrar frí­versl­un­ar­við­ræður við hóp ríkja sem að hluta til sam­anstendur af TPP-ríkjum við vest­ur­strönd Kyrra­hafs­ins undir nafn­inu Regional Comprehensive Economic Partners­hip (RCEP). Sá samn­ingur inni­heldur einnig ríki með stór hag­kerfi á borð við Suður-Kóreu og ört vax­andi ríki á borð við Indland, Indónesíu og Fil­ips­eyjar. RCEP er tolla­lækk­un­ar­samn­ingur af gamla skól­anum en hefð­bundnir tollar eru stærri álita­mál milli RCEP-ríkj­anna en TPP-ríkj­anna. Kosning Trump hefur fært byr í segl Kína til að ljúka RCEP-við­ræð­unum, sem þó líka hafa sínar hindr­anir, sér­stak­lega vegna var­kár­legs sam­bands Indlands og Kína, og hefur for­sæt­is­ráð­herra Japans, Shinzo Abe, tjáð að Asíuríki munu hverfa frá TPP til RCEP enda væri TPP án Banda­ríkj­anna lít­ils virði.

Hörfað til baka

Afleið­ingar þess að TPP-samn­ing­ur­inn hafi ekki náð í gegn eru ekki síður póli­tískar heldur en efna­hags­legar. Obama tjáði í vor að TPP myndi leyfa Banda­ríkj­unum að "skrifa leik­regl­urnar" fyrir alþjóða­verslun og gaf í skyn að Kína myndi gegna því hlut­verki ef TPP yrði ekki að veru­leika. Í sjálfu sér ætti ekki að vera sjálf­gefið að TPP sé í beinni sam­keppni við RCEP en í víð­ara sam­hengi myndi ákvörðun banda­rískra stjórn­valda að hörfa frá frí­versl­un­ar­stefnu í vernd­ar­stefnu breyta einni af meg­in­stoðum ítökum þeirra í Asíu. Aðild­ar­ríki TPP myndu að sama skapi missa af tæki­færi til að stór­auka aðgengi að Banda­ríkja­mark­aði sem ætti að vera nægur hvati til að umbæta lög­gjöf sam­kvæmt stöðlum samn­ings­ins, sem væri sér­stak­lega mik­il­vægt fyrir þró­un­ar­ríki á borð við Víetnam og harð­stjórnir á borð við Malasíu.

Aðild­ar­lönd TPP í Asíu munu þó leggja meiri áherslu á þátt­töku í RCEP-við­ræð­unum og aðild­ar­lönd að RCEP sem stóðu utan TPP munu vænt­an­lega taka því fagn­andi að TPP hafi ekki náð í gegn. Banda­ríkin munu bæði líða fyrir það að hlut­verk þeirra sem stefnu­mót­andi afl í Asíu skerð­ist og mögu­lega einnig efna­hags­lega eftir því sem þau standa utan RCEP-við­ræðn­anna. Trump hefur tjáð að hann vilji "sann­gjarna" tví­hliða­samn­inga frekar en stærri frí­versl­un­ar­samn­inga sem hann telur bitna á Banda­ríkj­unum. Hins vegar er afskap­lega erfitt að spá fyrir um hvaða Asíu­stefnu Trump hyggst taka í stað TPP og "Pivot to Asia"-stefn­unnar enda er horn­steinn utan­rík­is­stefnu hans óút­reikn­an­leik­inn sjálfur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

alþjóðaviðskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár