Hafa leyst hluta ráðgátunnar um píramídana

Nýjar rann­sóknir á Níl­ar­fljóti sýna hvernig Egyptum tókst að byggja hina gríð­ar­miklu píramída í Giza fyrir þús­undum ára.

Píramídarnir í Giza eru sannarlega mikið undur en smám saman eykst þekking okkar á því hvernig þeir voru byggðir.
Píramíd­arnir í Giza eru sann­ar­lega mikið undur en smám saman eykst þekk­ing okkar á því hvernig þeir voru byggðir. Mynd: Pexels

Þeir sem byggðu píramídana stór­kost­legu í Egypta­landi nýttu sér að öllum lík­indum nú upp­þorn­aða þverá Níl­ar­fljóts til að flytja bygg­ing­ar­efnið á svæðið. Þetta er nið­ur­staða rann­sóknar sem land­fræð­ing­ur­inn Hader Sheisha sem starfar við Aix-Marseille háskóla í Frakk­landi gerðu og birt var í lok ágúst í vís­inda­tíma­rit­inu Proceedings of the National Academy of Sciences. Sheisha og félagar komust að þess­ari nið­ur­stöðu með því að gera fræði­legt líkan að rennsli og far­vegum Níl­ar­fljóts síð­ustu átta þús­und árin.

Nið­ur­staðan er sú að fyrrum vatna­svið fljóts­ins og hærra vatns­borð þess fyrir 4.500 árum hafi gagn­ast til að byggja píramídana í Giza sem voru eitt af svo­nefndu sjö undrum ver­aldar til forna.

[adspot]

Píramídar voru reistir sem graf­hýsi fyrir faraóa, kon­unga Egypta, allt frá árinu 2650 fyrir Krist. Fræg­astir þeirra eru píramíd­arnir í Giza og er sá stærsti búinn til úr 2,3 millj­ónum steina og er með­al­þyngd hvers þeirra 2,5 tonn.

Vís­inda­menn hafa lengi viðrað þá kenn­ingu að Forn-Egyptar hljóti að hafa notað Níl til að flytja allt grjótið, ýmist úr kalksteni eða granít, til að byggja hinar gríð­ar­miklu bygg­ingar. Níl rennur hins vegar í tals­verðri fjar­lægð frá Giza. Kenn­ingin um að graf­inn hafi verið skurður að næstu þverá og árs­tíð­ar­bundin flóð í ánni svo notuð til að flytja bygg­ing­ar­efnið um skurð­inn.

Hingað til hefur hins vegar vantað rann­sóknir og þar með þekk­ingu á því hvernig þetta var fram­kvæm­an­legt.

Greindu berg og steingervinga

Sheisha og félagar söfn­uðu marg­vís­legum gögnum til að end­ur­byggja flæði­engjar Níl­ar­fljóts til forna. Þannig telja þau sig hafa kom­ist að því að verk­fræð­ingar Egypta hefðu getað notað þverána Khufu, sem er löngu upp­þornuð, til verks­ins.

Fyrsta verk vís­inda­hóps­ins var að greina berg­lög í bor­kjörnum af flæði­engjum Nílar til að meta hvar vatn stóð í þveránni Khufu fyrir þús­undum ára. Þeir rann­sök­uðu einnig stein­gerðar frjó­korna­leyfar af svæð­inu í sama til­gangi.

Göngin sýna að þeirra mati að Khufu-svæðið stóð í blóma á árunum 2700-2200 fyrir Krist – einmitt á þeim tíma sem þrír stærstu píramíd­arnir voru lík­lega reistir í Giza. Þveráin getur því vel hafa gegnt því hlut­verki að vera flutn­ings­leið fyrir bygg­ing­ar­efnið í mann­virkin miklu.

Hins vegar lækk­aði vatns­yf­ir­borð í Khufu um árið 525 fyrir Krist og árið 332 f.Kr. var áin lík­lega orðin lík­ari lækj­ar­sprænu.

Nið­ur­staðan þykir styðja vel við þá kenn­ingu að verk­fræð­ingar píramíd­anna hafi nýtt sér Níl­ar­fljótið og þverár þess til flutn­inga. Að minnsta kosti er sannað að nóg vatn hafi verið í Khufu til slíks.

„Bylt­ing­ar­kennd upp­götvun,“ hefur CNN eftir Joseph Manning, sagn­fræð­ingi við Yale-háskóla, sem segir rann­sókn­ina sýna hversu mik­il­væg lofts­lags­vís­indi séu til að auka þekk­ingu okkar á mann­kyns­sög­unni. Hann segir forn­leifa­fræð­inga og sagn­fræð­inga hingað til hafa verið þá sem helst hafi fundið púsl hvað varðar menn­ingu fyrri alda og árþús­unda en að umhverf­is­vís­indi séu sífellt farin að spila stærra hlut­verk og geti jafn­vel „koll­varpað“ fyrri kenn­ingum með nýjum og fram­úr­stefnu­legum rann­sóknum.

Þurfa að vinna saman

Manning segir að margir vís­inda­menn hafi til þessa haldið því fram að Egyptarnir hefðu þurft að grafa skurð frá þverá Nílar til að koma bygg­ing­ar­efn­inu til Giza. Hins vegar sýni rann­sókn land­fræð­ing­anna að hægt var að nota nátt­úru­legan árfar­veg til flutn­ing­anna. Hann segir að mesta tæki­færið felist í sam­starfi sagn­fræð­inga og umhverf­is­vís­inda­manna, fólks sem beiti ólíkum aðferðum við rann­sóknir, og að meira þurfi að gera að slíku í fram­tíð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár