Fordómar lögreglu, trúðar í Mosfellsbæ, kynferðisbrot valdamanna og Helgi Seljan

Mest lesnu fréttir árs­ins 2022 sýndu fjöl­breytt áhuga­svið les­enda. Flestar mest lesnu frétt­irnar eiga það sam­eig­in­legt að þær snú­ast um hluti sem ein­hver gerði, ákvað eða fann fyrir.

5. Vítalía um fráfarandi forstjóra Festi: „Ég á Eggerti mikið að þakka“

„Ég á Egg­erti mikið að þakka og ég vona að hann viti það,“ sagði Vítalía Laz­areva í færslu á Twitt­er. Í færsl­unni birti hún hlekk á umfjöllun Mann­lífs þar sem ýjað er að því að nokkuð óvænt tíð­indi um starfs­lok Egg­erts Þórs Krist­ó­fers­son­ar, for­stjóra Festi, í júní teng­dust frá­sögn Vítalíu af kyn­ferð­is­of­beldi í jan­úar þar sem hún sagði sig hafa orðið af hendi þriggja manna.

Einn þeirra, Þórður Már Jóhann­es­son, var stjórn­ar­for­maður Festi.

Lestu frétt­ina í heild hér.

4. Helgi Seljan búinn að segja upp – RÚV á ekki að þurfa að stilla upp í vörn

Helgi Selj­an, sem hafði starfað hjá frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik hjá RÚV árum saman og þar áður hjá Kast­ljósi, sagði upp störf­um í jan­úar. Hann réð sig í kjöl­farið sem rann­sókn­ar­rit­stjóra Stund­ar­innar.

Í stöðu­upp­færslu sem Helgi birti inni lok­uðu vef­svæði starfs­manna RÚV, þar sem hann greindi frá ákvörð­un­inni, sagði hann að hún hafi hvorki tekin í skyndi eða af neinni vonsku. „Ég ætla þó ekki að halda því fram að atburð­ar­rás und­an­far­inna miss­era hafi ekki haft nein áhrif á að ég yfir­leitt fór að velta þessum mögu­leika fyrir mér.“

Lestu frétt­ina í heild hér.

3. Kallar sigurvegara í prófkjöri Sjálfstæðisflokks í Mosfellsbæ trúða og segir sig úr flokknum

Fram­bjóð­andi sem sótt­ist eftir þriðja sæti í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Mos­fellsbæ í aðdrag­anda sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga fyrr á árinu sagði sig­ur­veg­ara próf­kjörs­ins hafa smalað atkvæðum.

Hún sagði skilið við flokk­inn – „Ég þarf ekki lengur að starfa með þessum tveimur trúðum.“

Lestu frétt­ina í heild hér.

2. Ragnar Þór: Allir vissu en ekk­ert var aðhafst fyrr en málið komst í fjöl­miðla

Í byrjun árs ásak­aði Vítalía Lazareva þrjá valda­menn í íslensku við­skipta­lífi um kyn­ferð­is­brot. Kjarninn leit­aði álits Ragnars Þórs Ing­ólfs­sonar, for­manns VR stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins, á mál­inu.

Hann sagði að íslenskt sam­fé­lag væri „óþol­andi með­virkt“ og að oft væri horft fram­hjá alvar­legum málum ef þau kom­ast ekki í almenna umræðu eða fara á for­síðu frétta­miðla. Líf­eyr­is­sjóðir, stærstu fjár­festar lands­ins, virt­ust ekki hafa mik­inn hvata til að leita réttar síns ef grunur léki á brot­legri eða sið­lausri hátt­semi stjórn­enda fyr­ir­tækja sem þeir fjár­festa í, þrátt fyrir fag­ur­gala um sið­ferð­is­við­mið og alþjóð­leg sam­fé­lags­leg við­mið.

Lestu frétt­ina í heild hér.

1. „Ekkert annað en fordómar“

Lög­reglan hafði afskipti af 16 ára dreng í annað sinn á tveimur dögum þann 21. apríl vegna leitar að stroku­fanga. Í þetta skiptið var hann að kaupa bakk­elsi með móður sinni, mann­rétt­inda­lög­mann­inum Claudiu Wilson.

Hún sagði í sam­tali við Kjarnann að þetta væri ekk­ert annað en áreiti úr hendi lög­regl­unnar. Hún tók upp atvikið sem um ræðir.

Lestu frétt­ina í heild hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár